Fálkinn - 24.01.1966, Blaðsíða 36
HEILDSÖLUBIRGÐIR
KRISTJÁN Ó. SKAGFJÖRÐ H.F.
SIMI 24120
L (OltTLVI
bilal«»iga
ma{$niiNar
«kipliol(i 21
*ámar* 21IÍMI - 21 llt.T
Haukur CjuðmuhdAACh
HEIMASÍMI 21037
líta raunhæfast á málið, segja
að það muni ekki finnast eitt
einasta spor eftir launmorð-
ingja Rauðu handarinnar og að
engin ákæra muni verða lögð
fram nema fransk-þýzki vin-
áttusamningurinn verði num-
inn úr gildi. Þangað til verði
aðeins horft mildum augum á
það sem Rauða höndin tekur
sér fyrir hendur, vegna þess
að þýzka stjórnin getur ekki
tekið fyrir vopnasöluna tii
Alsír, nema eiga á hættu að
baka sér óvild hinna hlutlausu
Arabaríkja sem eru góðir við-
skiptavinir Þjóðverja.
Þess vegna verða bæði
franska og þýzka ríkisstjórnin
að horfa í aðra átt á meðan
Rauða höndin gerir usla á að-
dráttarleiðum FLN í Evrópu.
Þessi skýring er trúleg, eins
og aðrar sem ganga í sömu átt,
en þó full róttæk til að vera
algerlega sönn. En það sem er
ótrúlegast er, að ólögleg sam-
tök hafa á þrem árum myrt
um það bil 12 manns, eyðilagt
þrjú skip, tvo bíla, hálft skrif-
stofuhús án þess að nokkur
meðlimanna hafi verið tekinn
til fanga eða yfirheyrður. í ein-
angruðu, frumstæðu og fátæku
þjóðfélagi væri þetta skiljan-
legt, en í þjóðfélagi, þar sem
allt úir og grúir af lögreglu-
þjónum, þar sem menn ráða
yfir nýjustu tækni á sviði
glæparannsókna og þar sem
íbúarnir eru hermdarverka-
mönnunum fjandsamlegir, er
er þetta bókstaflega hlægilegt.
• Ekkert barn
Framh aí bls. 11.
sömu verkefnum í ísrael,
Bandaríkjunum og ftalíu, gætu
gefið mannkyninu von um fuli-
komnar getnaðarvarnir, svaraði
hann þessu til:
— Ekki er hægt að segja
nokkuð ákveðið um það efni.
Við vitum ekki hvernig náttúr-
an ákveður, að apar og menn
eigi aðeins eitt afkvæmi í einu.
Það er ekki nema eitt prósent
af öllum fæðingum á jörðinni,
sem eru fleirburafæðingar.
— Ef við aðeins gætum fund-
ið svarið við þessu, segir hann
brosandi.
— Gæti „viðskiptavinurinn“
ef til vill komið til okkar og
pantað eins mörg börn og hann
vill, tvö, þrjú eða fjögur.eftir
vild.
Dr. Gemzeil getur huggað þá,
sem eru hræddir um að með-
höndlunin hafi slæm áhrlf á
barnið:
— Við höfum ekki orðið var-
ir við eitt einasta tilfelli van-
skapnaðar, hvorki meðal þeirra
barna, sem fæddust á eðlileg-
um tíma, eða þegar fósturlát
hefur átt sér stað.
Hann tiltekur fósturlátin,
vegna þess að kona sem gengur
með fleirbura á alltaf meira á
hættu í þeim efnum en hin, sem
aðeins ber eitt barn undir belti,
þrátt fyrir að þróun þungans
sé með eðlilegum hætti, hvort
heldur þungann ber að með
eðlilegum hætti, eða sem afleið-
ing af hormónameðhöndlun.
Þess vegna er erfiðara að koma
í veg fyrir fósturlát, þegar um
fleirburaþunga er að ræða, en
hægt er að koma í veg fyrir
.það með því að leggja konuna
nógu snemma inn á sjúkrabús.
Ýmsar hjáverkanir geta átt
sér stað vegna sprautanna, seg-
ir dr. Gemzell, en þær eru tíma-
bundnar og hafa aðeins tiltölu-
lega lítil óþægindi í för með sér.
Samkvæmt upplýsingum hans,
getur það komið fyrir að sjúkl-
ingurinn hafi ofnæmi gegn hor-
móninum í fyrstunni og ef
hann er ekki undir stöðugu eft-
irliti, eins og sjúklingar h'ans
sjálfs á sjúkrahúsinu í Upp-
sölum, geta orðið slys. Móður-
lífið getur sprungið og inni-
haldið runnið út í holið, en
hættan er sem sé engin, ef
stöðug aðgát er höfð. .
Meðhöndlun á sjúkrahúsinu
er eitthvað á þessa leið:
Fyrst eru bæði hjónin rann-
sökuð mjög gaumgæfilega, jpig-
inmaðurinn verður að undir-
gangast sæðisrannsókn, því að
alls óvíst er að barnleysið. sé
konunni að kenna. Eiginkonan
liggur á sjúkrabeði fyrstu tíu
dagana og fær daglegar inngpaf-^
ir af sérstökum örvandi hor-‘
mónum. Síðan fær hún inngjaf-
ir af öðrum hormón, gonado-
triphin, sem er unninn úr þvagi
þungaðra kvenna. Það er þessi
hormón, sem kemur egglosinu
af stað og ryður veginn fýrir
þungunina. Egglosið hefst 12—
24 klukkustundum eftir að
seinni hormóninn er gefinn.
Það að hormónameðhöndlun-
in leiðir oft á tíðum til fleir-
burafæðinga, orsakast af þvi að
vísindamennirnir hafa ekki
fundið neitt ráð til að hafa hem-
il á egglosinu og því hve mörg
egg losna samtímis. Undir eðli-
legum kringumstæðum losnar
aðeins eitt egg, en fyrir kem-
ur að tvö eða fleiri losna og af-
leiðingin er fleirburafæðing.
Svo virðist, að meðhöndlunin
hafi of mikil áhrif á egglosið,
36
FALKINN