Fálkinn - 24.01.1966, Page 38
KYENÞJOÐIN
ÍIITSTJÓHI: KIIISTJANA STEINGRÍMSDÓTTIR
FALLEGAR NEGLIiR PRÝÐA OG HÆFA
FALLEGiilVI HÖNDGIR
Ef þér viljið fórna Vz klst. vikulega á snyrtingu nagl-
anna, getið þér haldið þeim lýtalausum og eykur það
öryggiskennd yðar. Naglasnyrtinguna þarf að fram-
kvæma í réttri röð: Þér byrjið á því að fjarlægja allt
gamalt lakk með lakkeyði, sem í er olía.
2
Með naglaþjöl — annað en sandpappírsþjöl eða d>
mantsþjöl koma ekki til greina (demantsþjöl er dýr,
en endist aftur á móti lengi) — eru neglurnar sorfnar.
Sverfið ekki fram og tilbaka en aðeins frá annarri
hlið og inn að miðju. Gætið þess vel að sverfa ekki
niður með hliðunum, það veikir neglurnar.
Mýkið naglaböndin í volgu sápuvatni og þerrið þau
vel. Núið góðum naglabandsáburði inn með hringlaga
hreyfingum. Slíkur áburður gengur vel inn í nagla-
böndin, mýkir þurr og klofin naglabönd. Gleymið
heldur ekki naglaböndunum, þegar þið notið handá-
burð daglega.
4
Vefjið bómull um trépinna úr appelsínuviði, dýfið
honum ofan í naglabandseyði og ýtið naglaböndunum
varlega niður, svo að hálfmáninn á nöglunum komi
í ljós. Munið að fara mjög varlega.
5
Fjarlægið svo allt dautt hörund meðfram köntunum
með sljóva enda trépinnans. Gætið þess vel að skemma
ekki naglrótina, þá geta komið hvítir blettir á negl-
urnar eða þær verða hrjúfar.