Fálkinn - 24.01.1966, Blaðsíða 39
6
Með ýtrustu gætni má nú klippa með naglatöng eða
skærum allt lauslegt á naglaböndunum. Gætið þess
að særa ekki umhverfi naglanna, slíkar sprungur gróa
oft seint og vill oft grafa í þeim.
7
Ef hörundið kringum neglurnar er þurrt og hefur til-
hneigingu til að springa er hægt að mýkja það með
nuddi. Notið við það möndluolíu, nuddið í hring með
þumalfingri hinnar handarinnar. \
8
Áður en neglurnar eru lakkaðar á ný þarf að fjar-
lægja alla feiti, annars endist lakkið ekki. Burstið
því fingurna varlega úr volgu sápuvatni og þerrið
vel. Það er tilgangslaust að lakka rakar neglur.
9
Ef lakkið á að endast vel, ættuð þér að reyna aðferð-
ina með 3 lakktegundum. Það er fyrirhafnarmeira en
nota eitt lag af lakki, en endist líka þrefalt lengur.
Fyrst er byrjað á litlausu undirlakki, sem einnig má
bera á neðri hlið naglarinnar.
Þegar fyrsta lagið er orðið þurrt, er lakkað yfir það
með þunnu lagi af lituðu lakki. Dýfið penslinum í við
hverja nögl og hreinsið af honum við stútinn um leið
og hann er dreginn upp úr glasinu. Setjið tvö lög af
litaða lakkinu, þá verður liturinn dýpri og jafnlit-
aðri. Athugið að láta lakkið þorna vel á milli.
Þegar litaða lakkið er gegnumþurrt, er farið yfir það
með hlífðarlakki. í þetta skiptið er einnig lakkað
undir naglaroddinn, svo að lakkið flagni síður af
brúnunum. Munið að láta hvert lag af lakki full-
þorna, áður en það næsta er borið á,
Að þessu loknu er stúturinn á glasinu hreinsaður vel
með tissue. Ef þetta er ekki gert, þornar lakkið og nær
ógerlegt er að komast í glasið, auk þess sem ekki er
hægt að loka því nógu vel, svo að lakkið eyðileggst
með tímanum. Munið að loka glasinu strax að lokinni
notkun.
FALKINN
39