Fálkinn - 24.01.1966, Síða 41
8oo krónur í verðl*
AF
í 11. umferð var alltof mikið af furðulegum orðum á við
„okuninút" sem ef til vill er grænlenzka, en við könnumst
ekki við sem íslenzku. Og það má ekki nota aðra stafi en
eru í lykilorðinu hverju sinni eins og tekið er fram hér
fyrir neðan. Margir þátttakendur sendu vinsamlegar kveðj-
ur og smábréf með lausnum sínum, og okkur þykir vænt
um að fá slíkar sendingar. Það er alltaf gott að fá álit
ykkar lesendanna á efni blaðsins, því að þá gerum við
okkur frekar grein fyrir hvað þið viljið helzt lesa.
Verðlaunin:
1. verðlaun. kr. 500,00, hlýtur Guðlaug Marteinsdóttir
Rauðalæk 51, Reykjavík, 481 stig.
Lausn Guðlaugar: útilokun — tinlokin — innilukt —
luktinni — oltinni — kúlunni — unni — innilukt —
nikotín.
2. verðlaun, kr. 200,00, hlýtur Ari Hermannsson, Blöndu-
ósi, A-Hún. 471 stig. (Við þökkum þér elskulegar kveðjur,
Ari, og vonum, að þú haldir tryggð við okkur á næsta
ári líka).
Lausn Ara: útilokun — túlkunin — innilukt — luktinni
— oltinni — kitlunni — unni — nitin — innilukt — nitin.
3. verðlaun, kr. 100,00 hlýtur Sigurlaug Jónsdóttir,
Túngötu 10, Siglufirði, 464 stig.
Lausn Sigurlaugar: útilokun — túlkinn — innilukt —
luktinni — oltinni — kitlunni — unni — nitin — innilukt
— nitin.
Næsta þraut:
Næsta lykilorð er AKSTURINN. Nýjum þátttakendum
skal bent á að aðalreglan er sú að aðeins má nota þá stafi
sem koma fyrir í lykilorðinu og ekki oftar í hverju orði en
þá er að finna í lykilorðinu.
Bannað er að nota persónuheiti eða staðaheiti, ennfremur
heimatilbúin orð eða orðskrípi. Rita skal orð eftir ríkjandi
réttritunarreglum.
> X SAWT.
> \ N
V N Sv N \ N
> V \ N
> x \ \ \ N
V X \ N N
X \ \ N
V N \ N
\ Kj \ N N N
> X \ N N N
V V X N N
Samtals:
Nafn: ........................................
Heimilisfang: ..............................
Verðlaun:
Fálkinn veitir vikulega þrenn verðlaun, kr. 500,00,
200,00 og 100,00 Ef margir ná sama stigafjölda verður
dregið um verðlaunin Frestur til að skila lausnum er
þrjár vikur. Merkið umslagið ORÐ AF ORÐI 3.
Utanáskriftin er- Vikublaðið Fálkinn, pósthólf 1411
• Ekkert barn
Framh. af bls. 37.
menn vinna einnig að því að
gera bastarða frjósama, með að-
stoð þessa hormóns, en það
getur haft mikla þýðingu i
landbúnaði.
Prófessor Gemzell er, eins
og svo margir af starfsbræðrum
hans, mjög áhugasamur um of-
fjölgunarvandamálið og rann-
sóknir hans, geta einnig orðið
til ómetanlegs gagns fyrir þá,
sem reyna að finna öruggar
getnaðarvarnir. En það, sem
hefur gert það að verkum, að
Gemzell og starfsbræður hans
eru svo mjög á dagskrá um þess-
ar mundir, er hið eilífa vanda-
mál konunnar, sem þráir að
lifa þá hamingju að geta af sér
heilbrigt barn. Og hann hefur
gefið ákaflega mannlega skýr-
ingu á því, hvers vegna svo
mafgar konur, sem raun ber
vitni koma til hans í hormóna-
meðhöndlun, þrátt fyrir hætt-
una á fleirburafæðingum:
— Flestir af sjúklingum mín-
um eru á aldrinum 30—35 ára
og hafa beðið lengi eftir að
eignast börn. Fyrir kemur að
þær verða fyrir dálitlum von-
brigðum, ef barnið verður að-
eins eitt. Þær hafa beðið svo
lengi, að þær vilja gjarnan
eignast tvö í einu.
• Aika
Framh. af bls. 29.
Hann svaf illa um nóttina.
Kossinn brann í huga hans,
ruglaði hann og æsti upp í hon-
um löngun eftir meiru, eins og
dauðþyrstum manni, sem er
gefinn einn vatnssopi að drekka.
Hvers vegna hafði hún hlaupið
þannig frá honum? Hún hlaut
að bera einhverja ást í brjósti
til hans; en peningar herra Yee
freistuðu hennar um of og hrifu
hana frá honum. Þegar< honum
varð hugsað til þess, varð hann
óður af reiði.
Morguninn eftir kom hann
nærri hálftíma og seint til skrif-
stofunnar. Herra Yee var í mjög
góðu skapi og heilsaði honum
kumpánlega. „Þú ert með dökka
bauga undir augunum," sagði
hann. „Verið á stefnumóti i
gærkvöldi, ha?“
„Ég drakk of mikið kaffi,"
sagði Chiang, fremur þurrlega.
„Ég gat ekki sofnað."
„Ég tilheyri líklega þeirri
n anntegund, sem alltaf getur
sofið og etið,“ sagði herra Yee
og hló. „Þegar ég ætla mér að
sofa getur ekkert aftrað mér. Ég
loka augunum og þá lokast heil-
inn um leið; amstur og áhyggj-
ur komast ekki annað. Ég held
ekki, að kaffi breyti þar neinu
um. Maður ímyndar sér það
bara."
„Það er ef til vill rétt hjá þér,“
sagði Chiang, ófús að ræða þetta
FALKINN
41