Fálkinn - 31.01.1966, Page 4
KOMA HINGAÐ TIL HUOMLEIKAHALDS
THE HOLLIES. Þeir virðast skikkanlega hárprúðir.
Hin kunna „beat“-hljómsveit, The Hollies er væntanleg
hingað um þessar mundir og ætti þegar að vera komin, er
þetta birtist. Piltarnir stanza hér í 2—3 daga og koma fram
á 4—6 hljómleikum í Háskólabíói. Tvær íslenzkar hljómsveit-
ir, Dátar og Logar, munu einnig koma fram á þessum hljóm-
leikum.
Hollies eru frá Manchester. Þeir vöktu snemma athygli
fyrir góðan söng. En lagið, sem var upphafið á frægðarferli
þeirra hét Ain’t that just like me. Næsta plata gekk enn
betur og komst á TOPP 10. listans. Lagið var Searchin; en
plata þessi seldist í tvö hundruð þúsund eintökum. Næst í
röðinni var Stay og enn bættu þeir lagi við sig í plötusölunni,
en þetta lag var marga mánuði á vinsældalistanum í Bretlandi.
síðan bættust fleiri plötur við. hver af annarri Vinsældir
Hollies jukust og hér á landi virðast þeir komast næst
Rolling Stones og The Beatles hvað vinsældir snertir.
Meðlimir hljómsveitarinnar eru Allan Clarke, Eric Haydock,
Graham Nash, Tony Hicks og Bobby Elliot. Allan bassaleikar-
inn lék áður ásamt þeim Nash, rythmagítarleikara og Hicks
söngvara í hljómsveit, sem hét Deltas. Allan kveðst hafa
mest dálæti á stúlkum, popmúsík og stúlkum. Hvað Hicks
snertir, þá er það fyrst og fremst góður matur, nú og auð-
vitað fallegar stúlkur. „Okkur er sama þótt lag okkar detti
af vinsældalistanum, en ef það tekur langan tíma að komast
á listann, stendur okkur ekki á sama,“ segja Hollies.
Það er lítill vafi á því, að fjölmennt verður í Háskólabíói,
þegar piltarnir frá Manchester fremja þar listir sínar.
4
FALKINN