Fálkinn


Fálkinn - 31.01.1966, Blaðsíða 18

Fálkinn - 31.01.1966, Blaðsíða 18
ÞEGAR BARNIÐ VILL EKKI BORÐA ÞÁ ER EINA RÁÐIÐ AÐ SÝNA STILLINGU OG ÆÐRULEYSI Á fyrsta aldursári hefur barnið venjulega óaðfinnanlega matarlyst; það drekkur síaukið magn af mjólk og smám saman er bætt við hana fastri fæðu við þess hæfi. En einhvers stað- ar í kringum fyrsta afmælisdag- inn, er hætt við að nokkur breyting fari að gera vart við sig á afstöðu þess gagnvart mat og því, að vera mataður. Það verður matvandara og lystin minnkar. Þetta stafar að nokkru leyti af því, að vöxtur barnsins er nú ekki lengur jáfn ör og fvrsta árið en vaxtarkippir og matar- lyst fylgjast jafnan að. Og að hinu leytinu er ástæðan sú, að þ-yí er nú að byrja að verða ljóst, að það er aðgreind per- sóna, með sjálfstæðum vilja og eigin hugmyndir og álit á hlut- unum — og, að matardiskur er aðdáanlega hentugur vettvang- ur til að opinbera og sannprófa þessar staðreyndir. Þegar þannig er í pottinn bú- ið, geta næringarörðugleikar myndast og orðið að risavöxnu vandamáli á ótrúlega skömm- um tíma. Og það vandamál er vissulega óumflýjanlegt ef, í fyrsta lagi að barnið verður greinilega mótþróagjarnt (að likindum vegna þess, að of hart er lagt að því að taka við fæðu, sem það vill ekki) og í öðru lagi ef móðirin lætur á sjá, að hegðun barnsins valdi henni kvíða og hugarangri. Og því meiri tíma og erfiði, sem hún íeggur í að hvetja það til að borða, þeim mun meiri líkur sru fyrir því, að það borði ekki neitt. Og þeim mun minna, sem barnið borðar, eftir því eykst kviði móðurinnar. Þannig myndast vítahringur. Máltíð- irnar bera sífellt meiri keim af martröð. Þenslan milli móður og barns eykst þar til svo virð- ist sem sambúð þeirra sé öll undirlögð. Hvað er þá hægt að gera til að fyrirbyggja eða milda þess- ar óæskilegu viðureignir á matmálstímum? f fyrsta lagi ætti að gefa barninu völ á nokkrum mis- munandi tegundum af hollum mat og neyða það ekki til að borða neitt, sem það hefur greinilega óbeit á. Sem dæmi má nefna, að ef grænmetinu, sem barnið hefur til þessa borðað með beztu lyst, er allt í einu hafnað eins og það væri viðbjóðslegt eitur, þá ætti móð- irin að varast að láta sjá á sér gremju eða kvíða. Hún á um- fram allt að láta kyrrt liggja og einfaldlega að taka þennan rétt af matseðlinum um tíma. Þetta rólega samþykki af hennar hálfu án minnsta vott- ar af rifrildi, mun að líkindum verða til þess að barnið tekur fegins hendi við hinu fyrirlitna grænmeti að einni eða tveim vikum liðnum. Ef hún aftur á móti reynir að neyða barnið til að borða mat, sem það hefur einsett sér að leyfa, þá á hún á hættu að breyta tímabundinni ólyst á þeirri fæðutegund í var- anlega óbeit. Þar að' auki er hætt við að athygli barnsins vakni á því, að bardagi yfir matnum sé í rauninni skemmti- legasta afþreying, sem beini að því heilmiklu af indælu sviðsljósi og eftirtekt. En þegar barnið á öðru ári missir að mestu allan áhuga á matnum, eða eins og stundum vill verða, neitar algjörlega að borða, hvað á móðirin þá að gera? Á hún að standa aðgerða- laus hjá og horfa með ?ýaxandi skelfingu á búlduleitt og rjótt afkvæmi sitt fölna og rýrna smám saman, þar til það verð- ur að engu? Eða væri nú rétt- lætanlegt að hún reyndi að troða ofurlitlum mat i nn á milli þessara litlu, samanherptu vara? Hún á hvorugt að gera. Vegna þess, að ef gert er ráð fyrir, að barnið sé heilbrigt og hamingju- samt, eins og það er í flestum ti»- vikum, þá getur hún verið viss um, að enda þótt það virðist lifa á loftinu, þá meðtekur það samt í raun og veru nóga nær- ingu til þess að halda fullri heilsu og kröftum. Og hvað of- beldi viðvíkur þá er það alltaf árangurslaust og sálfræðilega skaðlegt. Nei, hlutverk hennar er tví- þætt. Því í fyrsta lagi verður hún að reyna að tryggja, að sá matur, sem hún fær barnið til að borða, sé hollur og nærandi og fjörefnaríkur og í öðru lagi verður hún að gera sitt ýtrasta til þess að máltiðirnar verði á- nægjulegar og friðsælar stund- ir. Þetta síðarnefnda getur orðið all erfitt í framkvæmd, þar sem • • • • Framh. á bls. 20. 18 FALKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.