Fálkinn - 31.01.1966, Síða 30
TINA
Fyrrverandi eiginkona
ONASSIS gerist ensk mark-
greifafrií
Dóttur skipaútgerðarmannsins er Onassis
skildi við vegna Mariu Callas, hefir tekizt
stökkið úr auðmannastéttinni inn í aðals-
mannastéttina með prýði. Seinna mun hún
erfa titilinn Hertogafrú af Marlborough og
drottna yfir Blenheimkastala, sem í eru 185
herbergi.
Hin unga, fagra Markgreifafrú af Blandford hefur
alla ævi verið dáð og tilbeðin innan auðmannastéttar-
innar og hins alþjóðlega hrings frægra og virtra nafna.
Auður og allsnægtir hafa ávallt verið henni sjálfsagðir
hlutir — fyrst sem dóttur hins gríska milljónamærings
Stavros Livanos og síðar sem eiginkonu Aristoteles
Onassis, sem einnig telst meðal auðugustu manna heims-
ins — og þeirra sem mest er rætt um.
En nú hefur hún líka fyrir löngu lagt Monte Carlo
að baki sér og hefur tekið við nýju hlutverki — hlut-
verki bóndakonunnar! segir maður hennar, markgreif-
inn af Blandford, brosandi.
Þetta hljóta að vera geysileg umskipti fyrir þá Tinu,
sem lifði áður æsandi lífi á stöðugri ferð milli höfuð-
borga heimsins og hinna vinsælu iþrótta- og skemmti-
staða í Svisslandi, Ameríku og á Rivieraströndinni, er
hún var gestgjafafrú á glæsilegri skemmtisnekkju. Hún
verður að byggja frá grunni nýja tilveru, sem grund-
vallast á allt öðrum hæfi- og eiginleikum en sú fyrri.
Hún þarf nú að umgangast menn og konur af göfug-
ustu ættum Englands. Fólk, sem er sér meðvitandi um
ættgöfgi sína og er oft mjög hlédrægt. Margt af því
eru nánir vinir ensku konungsfjölskyldunnar.
Á myndum, sem birzt hafa af hinni nýju Tinu, má
þegar greina hina ensku markgreifafrú. Þykk og þægi-
leg tweed-föt og lághælaðir, hentugir skór er sá klæðn-
aður, sem hún sést oftast í. Víð og hlý úlpa hylur glæsi-
legan líkamsvöxtinn, sem áður birtist í djarflega sniðn-
um módelkjólum frá dýrustu tízkuhúsunum í París og
Róm Sjálf segist hún elska þetta líf og að það sé dásam-
legt að búa í sveit.
Henni hefur líka vegnað vel. Grunsamlega vel,
segja hinir illgjörnu. Svo vel, að auðvelt væri
að líta á það sem ögrun og meðvitaða sjálfs-
upphefð gagnvart manninum, sem brást henni.
Hún hefur fengið stöðu í metorðastiga aðalsins,
og tignarnafnbót, sem fyrri eiginmaður hennar
hefði ekki getað keypt fyrir allan sinn auð. Og
í fyllingu tímans mun hún öðlast enn hærri
metorð sem Hertogafrú af Marlborough og verð-
ur þar með tengd einu sögufrægasta nafni Eng-
lands. Ef til vill verður þess ekki langt að bíða.
Tengdafaðir hennar, hinn voldugi hertogi af
Marlborough, ríkir enn í Blenheim kastala, en
hann hefur verið mjög einmana þar, síðan eigin-
kona hans dó fyrir nokkrum árum. Hann hefur
nú keypt jarðeignir á Jamaica.
Þegar Tina tekur við stjórn Blenheim kastala,
mun hún hafa um nóg að hugsa. Höllin er sú
stórfenglegasta í öllu Englandi, með 185 her-
bergjum og 20 reykháfum, sem eru svo háir,
að sótararnir komast ekki yfir að hreinsa fleiri
en tvo yfir daginn. Þeir, sem hafa þann starfa,
að hreinsa og ganga frá hinum stóru eldstæð-
um eru að því allan morguninn til hádegis. Og
starfsfólkið sem þvær gólfflisarnar í kjöllurun-
um, slitur á þeim tveim tylftum gólfskrubba
áður en það -hefur lokið verki sínu.
Saga hallarinnar hefst á tímum Önnu drottn-
ingar. Upprunalega var Blenheim ætluð sem
þjóðlegur minnisvarði um Johp Churchill, fyrsta
hertogann af Marlborough, til minningar um
sigur hans á Frökkum við Bleinheim árið 1704.
Hún er eins og ensk Versalahöll með súlum
sínum og hliðarálmum, sölum með dýrðlegum
málverkum eftir gamla meistara og feiknarlegt
safn listmuna og húsgagna.
En Blenheim er ekki aðeins sérstæð sem
bygging. Umhverfið og staðsetning hallarinnar
í því er sömuleiðis einstakt i sinni röð. „Vér
(þ. e. a. s. enska konungsfjölskyldan) eigum
ekkert, sem kemst í hálfkvisti við þetta,“ sagði
30 FÁLKINN