Fálkinn - 31.01.1966, Síða 34
Kæri Astró!
Það er með mig eins og raunar fleiri að mig langar til að
vita eitthvað um framtíðina. Ég er fædd kl. G.15 að morgni
,í Reykjavík. Ég er núna búin að vera með strák í rúmt ár og
er ég mjög hrifin af honum. Mig langar til að vita hvort
eitthvað meira verði úr þessu sambandi okkar og hvernig við
eigum saman. Hvenær giftist ég? Eignast ég mörg börn?
Hvernig verður fjárhagurinn og heilsufarið á komandi árum?
Nú sem stendur vinn ég við afgreiðslustörf, hvernig á það
við mig? Svo að síðustu sendi ég mínar beztu þakkir fyrir
væntanlegt svar.
Steinunn M.
Svar til Steinunnar M:
Þú ert mjög sterk í Ljóns-
merkinu þar sem þú hefur Sól,
Mána og hið rísandi merki í
Ljónsmerkinu. Þar af leiðandi
eru einkenni þess merkis mjög
áberandi í fari þínu. Þessi
áhrif verða enn meira áberandi
þegar á ævina líður. Þetta
merki gerir þig metnaðargjarna
og áhugasama um að komast
áfram í lífinu og bera af öðr-
um með sem allra flest. Þér
líkar ekki að vera númer tvö,
í einu eða neinu. Þér er virðu-
leiki og stærilæti i blóð borið.
Þú hefur ágætan skipulagshæfi-
leika og þér gengur mjög vel
að skipuleggja fyrir aðra. Þegar
þú hefur gift þig muntu vilja
vera með í að skipuleggja starf
manns þíns og ýta honum upp
á við og reyna að koma honum
í þá stöðu sem þér finnst sæma
enda munt þú aldrei telja eftir
þér að vinna með hopum að
því. Sá gallinn er þó oft á
Ljónsmerkingum að þeim hætt-
ir til að vera of ráðríkir og
vilja að allir taki tillit til þess
sem þeir hafa til málanna að
leggja. Þegar þú hefur gifzt þá
muntu ekki una því til lengd-
ar að hugsa bara um bú og
börn, því þú vilt að þín sé get-
ið í einhverju. Samt held ég að
þú mundir ekki láta það bitna
á börnum þínum. Meðan þú ert
ung og ógift ættir þú að læra
eitthvað sem komið gæti þéi
að gagni síðar. Ljónsmerkis-
fólki þykir yfirleitt mjög vænt
um börn og skilja þau vel. Þeir
eru oft á tíðum hinir beztu
kennarar. Ég mundi ráðleggja
þér að læra eitthvað til kennslu
og uppfræðslu barna og einnig
að siðar muntu hafa ánægju
af félagsmálum. Afgreiðslustörf
held ég að eigi varla við þig
til lengdar nema þú eigir verzl-
un sjálf eða hafir á hendi
stjórn fyrirtækisins. Ljóns-
merkingar og Vogarmerkingar
giftast oft saman með góðum
árangri. Sambandið við piltinn
sem þú nefndir ætti að geta
verið gott ef þú heldur svolítið
aftur af stjórnsemi þinni. Því
hann er þannig gerður að þó
hann geti kannski verið skap-
mikill þá dregur hann fremur
í land heldur en að halda fast
við sínar skoðanir til þess að
komast hjá deilum og vandræð-
um, en hann virðist vera félags-
lyndur og þannig mann þarft
þú að eignast. Þó get ég ekki
sagt um hvort þið eigið eftir
að giftast til þess þarf ég að
vita fæðingartímann. Ýmislegt
skeður áreiðanlega hjá ykkur
báðum 1966—1968 og má búast
við að þú giftist á þessu tíma-
bili eða að minsta kosti er þetta
mjög hagstætt ár í því sam-
bandi. Þú munt ávallt þurfa
að vinna mikið fyrir þeim pen-
ingum sem þú færð, en ert
hagsýn og getur orðið rík. Þú
ættir ekki að þurfa að kvíða
heilsuleysi.
Sakir mikilla anna hjá Astró
hefur verið ákveðið að spár
sem svara á bréflega, sem
hingað til hafa kostað kr. 300.-
verði framvegis á kr. 1000.-
Hins vegar verður ekki tekið
neitt gjald fyrir þær spár sem
mega birtast í Fálkanum í
Astróþættinum, en þar eð mjög
mikið liggur fyrir af þannig
spábeiðnum hverju sinni, þá er
aðeins hægt að svara litlum
hluta þeirra.
34 FÁLKINN
2ZJ
ALLTAF FJÖLGAR VOLKSWAGEN
Volkswagen 1300 er fyrirliggjandi
GcriS samanlnirð á írágangi, öllum búnaði og gæðum Volkswagcn
og annarra In'Ia frá Vestur-Evrópu.
Komið, skoðið og reynsluakið
Varahlutaþjónusta Volkswagen er landskunn
Simi 21240 HEILDVEKZIUNIN HEKLA i Laugavéqi 170-17 2
Volkswagen 1300 — Verð kr : 149.800
Volkswagen 1500 — Verð kr : 189.200
Volkswagen 1500 er fyrirliggjandi
Volkswagen 1600 TL Fastback kr : 207.800