Fálkinn


Fálkinn - 31.01.1966, Side 41

Fálkinn - 31.01.1966, Side 41
8oo kránur £ veröl. AF Það voru margir með mjög háa stigatölu í 12. umferð, langt yfir 500 stig, en sá var gallinn á, að ýmist voru orðin fáránlegur tilbúningur eða réttrituninni eitthvað ábóta- vant, svo að þær lausnir gátu ekki komið til greina. Verðlaunin: 1. verðlaun, kr. 500,00, hlýtur Bergur Ingimundarson Melhól, Meðallandi, Vestur-Skaftafellssýslu, 471 stig. Lausn Bergs: jólavasi — óvanari — lasnari — alvarins — sjóvanar — visnara — einvala — iljar — naslar — alvarins — risana. 2. verðlaun, kr. 200,00, hlýtur Jóhann Sigurðsson, Tún- götu 10, Siglufirði, 448 stig. Lausn Jóhanns: jólavasi — óvanari — lasnari — alvanir — salerna — vanaslór — einvala — iljar — nasar — al- vanir — risna. 3. verðlaun, kr. 100,00, hlýtur María Haraldsdóttir, Spítalavegi 15, Akureyri, 405 stig. Lausn Maríu: jólavers — ólesnar — Ijósvana — alvanir — sjóvanar — visnara — einvala — iljar — njólar — alvanir — rósaval. Næsta þraut Næsta lykilorð er ÓLÍKLEGA. Nýjum þátttakendum skal bent á að aðalreglan er sú að aðeins má nota þá stafi sem koma fyrir í lykilorðinu og ekki oftar í hverju orði en þá er að finna 1 lykilorðinu. Bannað er að nota persónuheiti eða staðaheiti, ennfremur heimatilbúin orð eða orðskrípi. Rita skal orð eftir ríkjandi réttritunarreglum. O"' SAMT. \ \ \ > N \ \ \ \ \ S. \ N \ \ \ X V M \ \ V \ \ V \ \ \ Samtals: Nafn: ........................................ Heimilisfang: .............................. Verðlaun: Fálkinn veitir vikulega þrenn verðlaun, kr. 500,00, 200,00 og 100,00. Ef margir ná sama stigafjölda verður dregið um verðlaunin. Frestur til að skila lausnum er þrjár vikur. Merkið umslagið ORÐ AF ORÐI 4. Utanáskriftin er: Vikublaðið Fálkinn, pósthólf 1411. * • Aika Framh. af bls. 37. Honum höfðu verið greiddir fimm þúsund dalir fyrir að sofa hjá konu. Þegar hann snæddi kvöldverð í nafnlausa veitinga- húsinu, lagði hann lag sitt við fólkið þar og það tók honum eins og bróður. Dorris, konunni, sem Liu hafði kallað Jane Russel, virtist geðjast mjög vel að honum og þau ræddu oft saman löngum stundum yfir flöskunni, sem hún bar með sér í pilsstrengnum. Á meðan þau drukku saman, sagði hún Chi- ang frá ritstörfum sínum. Stundum hafði hún yfir ljóð eða dró upp blaðsíðu með upphafi af smásögu, sem hún var að fást við og las það jyrir Chiang. Hún lét stöku sinnum hrein skilnislega í Ijós undrun sína á þvi, hvers vegna Chiang hefði engan áhuga á henni líkamlega og bauð honum oft að koma með sér heim, honum að kostnaðar- lausu, en Chiang afþakkaði jafn- an boðið. Og síðan héldu þau áfram að vera vinir á bók- menntalegum grundvelli. Hún trúði Chiang fyrir því, að eng- inn gæti framfleytt sér á þeirri atvinnu, sem hún stundaði og hún myndi láta af henni strax og sögur hennar færu að seljast. Til þess að leggja eitthvað til málanna, sagði Chiang henni í staðinn frá ávísuninni og hvern- ig hann hefði unnið fyrir henni og að hann myndi kveikja í henni strax og hann fengi vinnu. I sælli ölvímu komust þau síðan að þeirri niðurstöðu, að þau ættu bæði að láta af hinu synd- uga líferni og leita fegurðar hinnar sönnu ástar.— Það var laugardagur. Chiang fékk skeyti frá Tungumálaskól- anum, þar sem honum var gert að mæta til vinnu eftir viku. Framtíðarstaða. Stig GS 7, árs- laun 4.660.00 dalir. 1 skeytinu stóð einnig, að ef hann sæi sér ekki fært að taka boðinu, væri hann beðinn að hafa samband við ráðningarskrifstofuna án taf- ar. Chiang las símskeytið þrisvar sinnum yfir. Það var svo óvænt að honum virtist 'það skemmti- legasta lestrarefni, sem honum hefði borist í hendur árum saman. Það var eins og þung- búnum óveðursskýjum hefði skyndilega verið sópað af himn- inum og sólin væri aftur tekin að skína eftir langan gráviðris- kafla. Hann skrifaði strax svar- bréf og staðfesti, að hann myndi mæta til vinnu næsta miðviku- dag, fimmtánda desember. Hann hringdi til frú Wang og sagði henni hinar gleðilegu fréttir en hún bauð honum þá til kveðjumáltíðar á mánudags- kvöld. Þá velti hann því fyrir sér, hvort hann ætti að hringja til herra Yee og kveðja hann. Ef til vill væri betra að skrifa honum fáeinar línur frá Monter- ey; símtal gæti orðið hálf vand- ræðalegt. Þar að auki átti hann á hættu, að Aika svaraði í sim- ann. Síðastliðna mánuði hafði hann reynt að gleyma henni með hverjum þeim ráðum, sem til- tækileg voru, en með litlum ár- angri. Hann trúði því, að tíminn myndi að lokum lækna hann af þessari ásókn, svo framarlega sem hann heyrði hana hvorki né sæi. Hann hélt til nafnlausa húss- ins og ætlaði að snæða þar kvöld- verð. Það var enn of snemmt, en hann fiugsaði með sér, að hann gæti eins borðað snemma og átt síðan ánægjustund yfir stóru glasi af portvíni á eftir. Dorris var í matsalnum þegar hann kom og sat á tali við nokkra sjóliða i einum básnum. Hún var í hvítri peysu og gráu pilsi og stuttum, kínverskum slopp úr glitklæði utanyfir Þegar FALKINN 41

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.