Fálkinn - 20.06.1966, Qupperneq 6
Fálkinn
23. tbl. — 39. árg. — 20. júní 1966.
E F N!
SVARTHÖFÐI SEGIR .............................. 6—7
ALLT OG SUMT .................................. 8—9
VIÐ VERÐUM AÐ LÆRA AF REYNSLUNNI.
Steinunn S. Briem ræðir við Steindór Hjörleifs-
son um sjónvarpið ... ............... 10—11
ANDLIT ÁRSINS 1966 .......................... 12—13
AGA KHAN, BOÐBERI LJÓSSINS ............. 14—17
LÍF OG HEILSA, eftir Ófeig J. Ófeigsson lækni 16
MINKAELDI, MALARNÁM OG MÖRLANDINN,
eftir Grétar Oddsson ................ 18—19
UM FÓSTUREYÐINGAR í HREINSKILNI . . 20—21
SÁLFRÆÐI DAGLEGA LÍFSINS eftir Amalíu
Lindal ....................................... 21
BRENNIMERKT, framhaldssaga eftir Erik Nor-
lander .............................. 22—24
FURÐUGÁFA STÚLKUNNAR FRÁ TIFLIS ... 25
FURÐUR HIMINS OG JARÐAR eftir Hjört Hall
dórsson ............................. 26—27
HIRT UPP AF GÖTUNNI................ 28—29
OF KALT TIL AÐ DEYJA ........................ 30—31
ARFUR ÁN ERFINGJA, eftir Eric Ambler. Sögulok 32—34
STJÖRNUSPÁ ..................................... 35
í SVIÐSLJÓSINU .............................. 36—37
BARNASÍÐA ...................................... 47
FORSÍÐUMYNDIN að þessu sinni er af Maríu Guðmunds-
dóttur. Snyrtifyrirtækið Orlane í París var svo vinsamlegt
að lána okkur myndina.
I NÆSTA BLAÐI verSum viS meðal ann-
ars með grein um hinn nýja elskhuga
eins og þœr vilja hafa þá i kvikmyndun-
um, því að hið fríða og göfuga karlmenni
er ekki lengur í tizku. Þá birtum við tvœr
myndaopnur um elzta mann veraldar.
Grein verður um könnun hella og aðra
leyndardóma i iðrum jarðar, þvi að hellar
eru miklu algengari og miklu stórkost-
legri en almennt er haldið. Við heimsótt-
um líka nýlega verzlunina Karnabœ, sem
selur unglingafatnað og kynntum okkur
hvernig bitlakynslóðin vill klœðast, en sú
kynslóð heldur mikið upp á sterka liti og
afbrigðilegt snið. Og ekki má gleyma
Þrándheimsdraugnum, sem orðið hefur
að blaðaefni suður um alla Evrópu. Við
höfum grein um hann og (ja, við vitum
ekki?) mynd af honum. Föstu þœttirnir
eru eins og venjulega, að öðru leyti en
þvi, að lœknirinn okkar hefur tekið sér
fri í bili, en í staðinn er kominn þáttur
um sálfrœði daglega lífsins eftir Amalíu
Lindal.
Pitstjóri: Sigvaldi Hjálmarsson (áb.). Blaöamenn: Steinunn S.
Briem, Grétar Oddsson. Ljósmyndari og útlitsteiknari: Rúnar
Gunnarsson. Framkvœmdastjóri: Hrafn Þórisson. Auglýsingar:
Fjóla Tryggvadóttir. Dreifing: Kristján Arngrímsson. Útgefandi:
Vikublaðið Fálkinn h.f. AÖsetur: Ritstiórn, afgreiösla og auglýs-
ingar: Grettisgötu 8, Reykjavík. Símar 12210 og 16481. Pósthólf
1411. — Verð I lausasölu 30,00 kr. Askrift kostar 90,00 á mánuði,
á ári 1080,00 kr. Setning og prentun kápu: Félagsprentsmiðjan h.f.
Prentun meginmáls: Prentsmiðja Þjóðviljans. Myndamót: Mynda-
mót h.f.
Stoltlaus forusta
t ÞEIM hildarleik, sem nú er háður á bak við tjöldin um
allan heim, stendur ísland ákaflega höllum fæti. Svo virð-
ist sem einstaka lýðræðissinni íslenzkur sé farinn að gera
sér þetta ljóst, því óvæntustu menn verða til þess á síðustu
dögum að lýsa því yfir að síendurteknar traustsyfirlýsingar á
stefnu Bandaríkjanna yfirleitt beri fremur vott um að vél-
menni tali en kjörnir forustumenn þjóðarinnar. Á bak við
bggja ýmsar óhugnanlegar staðreyndir í íslenzku stjórnmála-
lífi og eiga lýðræðisflokkarnir þrír þar allir jafna sögu. Utan-
ríkisstefna íslands er ákaflega einföld í sniðum og krefst
í raun og veru ekki sérstaks ráðherra, eins og hún hefur
verið rekin síðan í stríðslok. Hinn raunverulegi utanríkis-
ráðherra íslands er það sambland af alþjóðlegum stofnunum
sem reknar eru að mestum hluta með bandarísku fjármagni
til að viðhalda og framkvæma það sem kallað hefur verið
„forustuhlutverk Bandaríkjanna". Kommúnistar hafa að sjálf-
sögðu notað þetta tækifæri og gert sig öðrum fremur að tals-
mönnum þjóðernisstefnu, og notað til þess bæði munn og
fætur. Eðlilega hafa lýðræðissinnar ekki talið sig þurfa að
taka undir við kommúnista, þar sem það eitt skorti á vellíðan
þeirra, að utanríkisstefnan kom að vestan en ekki að austan.
Hins vegar hefur þessi skrípaleikur kommúnista orðið til þess
að lýðræðissinnar hafa þagað við öllu, mögulegu og ómögu-
legu, sem Bandaríkjamenn hafa tekið sér fyrir hendur, þangað
til nú, að þeim er farið að skiljast að Bandaríkjamönnum
hefur tekizt andstöðulaust og í skjóli áróðurs kommúnista
að seilast hér til áhrifa í ríkari mæli en svo, að afsakanlegt
sé. íslenzkir stjórnmálamenn telja sig afar glögga á viðbrögð
hvors annars, og að sjá við andstæðingum sínum, en utan-
ríkismálin eru þeim trúarbrögð. Páfinn situr í Washington,
og stoltlaus forusta lýðræðissinna hér á landi hefur valið
þann kost útkjálkamannsins að hrópa halelúja hvenær sem
hann fær að stíga á kirkjugólfið.
Kauöska og slysni
T^AÐ skal aldrei sagt fyrr en í fulla hnefana, að menn beri
ekki ræktarhug til ættjarðar sinnar. Aftur á móti getur
kauðska og slysni í afstöðu til erlends ríkis valdið þeim vand-
■ Að sofa
hjá strák
Fálki minn!
Þakka þér innilega fyrir all-
ar skemmtilegu greinarnar og
framhaldssöguna Brennimerkt.
Hún er góð, og svo þakka ég
þér fyrir þáttinn „I sviðsljós-
inu“. Hann er agalega skemmti-
legur. Mig langar til að spyrja:
Er það synd að sofa hjá strák
sem maður er skotinn í? Þarf
maður að gera eitthvað ljótt
þó að maður sofi hjá honum.
Og einhvern tíma verður mað-
ur að fara að sofa hjá honum
ef maður ætlar að verða kon-
an hans. Hvenær er það þá
mátulegt? Ég er bara alveg
orðin rugluð. Fólk lætur svo
illa við mig af því að ég og
kærastinn minn erum búin að
vera saman síðan við vorum
fjórtán ára, en við höfum bara
aldrei gert neitt ljótt. Mér
finnst þær miklu verri þessar
fullorðnu konur sem maður
veit að eru ekki heilagar, en
vilja passa mann eins og smá-
barn.
Lúllý.
Svar
Faröu varlega, góöa mín.
Þegar piö eruö tilbúin aö stofna
heimili skuluö ]>iö fara aö sofa
saman, eöa aö minnsta kosti
skuluö þiö gœta ykkar á aö
eignast ekki barn fyrr en ]iiö
eruö alveg viss um aö þiö œtl-
iö aö ganga í hjónaband. Þetta
er ekki fyrst óg fremst sport,
FALKINN