Fálkinn


Fálkinn - 20.06.1966, Blaðsíða 36

Fálkinn - 20.06.1966, Blaðsíða 36
Nei, mér var aldrei kalt á höfðinu í vetur. Hvað er maðurinn að ana með vélina upp á miðjan hnakka. b::::dikt viggósson skrifar fyrir unga fólkid * Klukkan er um hálfþrjú á mánudegi. Starfsmenn Rakara- stofu Austurbæjar hafa loksins fengið smá pásu eftir stanzlausá ös frá því um morguninn, en brátt er friðurinn úti, því rétt í þessu kemur nýr viðskiptavinur inn. Þetta er ungur piltur með hár niður á herðar. Einp bítillinn enn, hugsar hárskerinn og lítur hlakk- andi á hið síða hár. þegár piltur- inn lýsir því yfir, að það eigi að burstaklippa sig. Vélklippan er sett í gang og hárskerinn skóflar miskunnarlaust hárinu í burtu. 4f nógu er að taka. Hann kveðst heita Jón Gíslason frá Mýrdal í Kolbeinsstaðahreppi og síðast fór hann til hárskera fyrir rúmiega hálfu ári. Ég kann vel við að hafa svona mikið hár, segir Jón, en foreldrarnir voru aiveg æfir út af þessu. Ég geri betta bara til að þóknast þeim. Hins vegar er vafasamt, hvort bau þekkja mig aftur. Hefurðu gaman af ,,beat“- músík? Já mjög og ég held mikið upp á Hljóma Hins vegar er ég ekki að taka þá neitt sérstaklega til fyrirmyndar, hvað hárið snertir. Mér finnst bara einfaid'ega þægi- legt að hafa mikíð A ''“turna. Ég hefði kannski ekki átt að biðja um búrstaklippingu. Burstinn fer mér bara vel, en skyldi mamma þekkja mig, þegar ég kem heim. 36 FALK.INN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.