Fálkinn


Fálkinn - 20.06.1966, Blaðsíða 38

Fálkinn - 20.06.1966, Blaðsíða 38
Sígai'etturnar sem allir hafa beðið eftir eru nú loksins á markaðnum. Biðjum um BLACK & WHITE. MARGOVITCH PICCADILLY • LONDON • Andlít 1966_____________ Framh. at bls. 13. Karlmennirnir heimta að fá að sjá kvenfólk, almennilegt kvenfólk. I Daily Express, einu stærsta enska dagblaðinu, er skrifað um Belindu á þessa leið: Hún yljar mönnum um hjarta- ræturnar, þegar þeir hafa feng- ið nóg af þessu kjánalega kven- fólki með rjómakökuútlitið, sem blasir við okkur af síðum allra blaða, og nú langar menn til að sjá stúlkur sem eru eins og venjulegar stúlkur í útliti. — Hverjar eru framtíðar- áætlanir yðar? spurðum við Belindu. í augnablikinu hugsið þér aðeins um að öðlast sem mesta frægð. En hvað verður uppi á teningnum, þegar þér einn góðan veðurdag verðið ást- fangin og viljið gifta yður? Hún svaraði án þess að hugsa sig um: — Þá léti ég þetta allt saman lönd og leið, ef það ekki samræmdist hjónabandi mínu. Það er ekki hægt að eyða öllu lífi sínu í að dást að sjálfri sér og láta dást að sér. En við gerum okkur ekki ánægða með þetta og spyrjum enn. — Já, þér segið þetta núna. En á þetta ekki eftir að breytast, þegar tízkuheimurinn hefur náð reglulegu tangar- haldi á yður? Hún svarar snögg upp á lag- ið: — Ég vil vera eins og ég er. Ef ég finn að þetta starf breytir mér í þá átt, sem ég felli mig ekki við, þá hætti ég því og sný mér að einhverju öðru. Belinda lærði að sitja hest, þegar hún var átta ára. Hún ólst upp á sveitasetri föður síns í Hertfordshire, Chantery heitir það. Síðan hefur hún lært ýmislegt, m. a. að leika tennis, sem hún gerir mikið að, standa á sjóskíðum, en mesta yndi hennar er þó að fara í langar gönguferðir, helzt í rign- ingu og roki. — Það er sjálfsagt líka mjög gott fyrir húðina, skjótum við inn í. Þá bregður fyrir gremju- svip á andliti hennar. — Mér finnst ég geta gert margt þarf- ara en vera sífellt að hugsa um hörund mitt eða vaxtarlag. Ég á mitt einkalif og mín áhugamál, sem ég vil hafa í friði. Fram að þessu hefur enginn karlmaður verið í fastahlut- verki í einkalífi hennar. En hún á fjórar góðar vinkonur, sem eiga það sameiginlegt með Belindu, að þær hafa dálæti á kvæðum Byrons, og kvikmynd- um með Audrey Hepburn, en gróðakaupmennska tízkunnar fer í taugarnar á þeim. — Flík gerð af Courréges er alveg dýrleg. En þegar allar konurn- ar sem ganga eftir Oxford Street eru komnar í eftirlíking: ar af henni, fer dýrðin heldur að fara af henni. En hvað eigin klæðaval snertir, heldur Be- linda Willis sig að Courréges, a. m. k. hvað stuttu pilsin snert- ir. Faldurinn á pilsinu hennar er nákvæmlega 10 sm fyrir ofan hnéð. Ég er hrifin af stuttum pils- um. Fótleggir eru fallegir og óþarfi að fela þá að mestu leyti. Miitkaeldi Framh. af bls. 19. sem einangrað dæmi, er það, engan veginn einsdæmi. Um- gengni eins og sú sem þar á sér stað er því miður algild regla hér á landi. Það getur vel verið að þessi grein særi einhverja þá, sem. að framkvæmdum og framför- um standa og telja sig vera að vinna þjóðþrifastarf. Kannski eru þeir að því í mörgum til- fellum, en þeir verða að átta sig á því að þeim ber einnig . að vinna þrifastarf hver á sínu sviði og greinin er aðeins lítil tilraun til að opna augu þeirra fyrir þessum málum, en ekki til að særa þá eða aðra. • Fóstureyðingar Framh. af bls 21. stigi sem er, til bjargar lífi móðurinnar. Ekkert kaþólskt sjúkrahús eða læknir má þess vegna framkvæma fóstureyð- ingu, hvað sem í húfi er. Aðrar greinar kristinnar trúar eru umburðarlyndari, og eru mót- mælendur þeirra frjálslyndast- ir. Á nýlegri læknaráðstefnu í Bandaríkjunum kváðust sjötíu prósent aðspurðra lækna vera fylgjandi rýmkun á fóstureyð- ingalöggjöfinni, sem þeir töldu ekki byggða á læknisfræðileg- um rökum. En enda þótt sann- að sé að þessi lög séu aðeins í samræmi við skoðanir lítils mjnni hluta þjóðarinnar og víðast hvar ógerningur að fram- fylgja þeim hefur áskorunum

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.