Fálkinn - 20.06.1966, Page 9
GRATT GAMAN
Guitary Aimeé var fátæk saumakona og hafði einu sinni
þjónað við hirð Egyptalandsdrottningar. Fyrir skömmu fékk
hún upphringingu frá lögfræðiskrifstofu, þar sem henni
var sagt, að drottningin, sem þá var nýlátin, hefði arfleitt
hana að 180 milljónum ísl. króna. Nú tóku við miklir
hamingjudagar og nábúarnir héldu henni veglega veizlu,
auðvitað í von um að einhverjir molar hrytu af borðum
saumakonunnar. Svo fékk hún aftur upphringingu frá skrif-
stofunni, þar sem hún var beðin að mæta á ákveðnum tíma.
Saumakonan gekk léttum skrcfum inn í skrifstofuna til
að taka við arfinum, en varð heldur betur fyrir vonbrigð-
um. Hún átti alls engan arf í vændum, heldur var lög-
fræðingurinn að rukka hana um andvirði einhverra bóka
fyrir hönd dánarbús drottningar. Fyrri upphringingin hafði
verið heldur grátt gaman hjá einum skrifstofuþjóninum,
sem var rekinn á stundinni. Saumakonan fékk alvarlegt
taugaáfall og nágrannarnir sáu fram á að þeir hefðu lagt
í mikinn kostnað, án þess að verða neinnar náðar aðnjót-
andi.
Er liún ólétt?
Belgar velta því nú mjög
fyrir sér hvort Fabiola
drottning þeirra sé í raun-
inni þunguð. Eða svo mað-
ur komist diplómatískt að
orði: Hvort þeir eigi í
vændum að eignast ríkis-
arfa innan skamms? Orð-
rómurinn um þetta ku
vera svo sterkur, að trú-
lega hafa þjóðarbrotin
tvö, Vallónar og frönsku-
mælandi Belgar, gleymt
málametingi sínum og
tala saman um málið á
belgísku! Málið komst á
flugstig, þegar fréttist að
páfi hafi veitt drottningu
áheyrn, en það er ná-
kyæmlega það sama og
gerðist, síðast er hún
vænti sín.
&unoA/HC/
'hioufíiQ
REYNIÐ ÞESSAR HEIMSFRÆBU GÆÐAVÖRUR OG SANN-
FÆRIZT UM ÁHRIFAMÁTT ÞEÍIRRA
FÁST i FLESTUM LEIÐANDI SNYRTIVÖRUVERZLUNUM
SIMVRTIVÖRUR Hf. HEaoveRuuN sími; 11020 11021
(
C\*naa/hC/
NÚ ER VANDALÍTIO AD VIÐHALDA UNGU ÚTLITI OG AUKA
Á FEGURÐ SÍNA
EINFALDLEGA MEÐ RVÍ AÐ NDTA SNYRTIVÖRURNAR f RÁ
FALKIIMN
9