Fálkinn - 20.06.1966, Side 15
AGA KHAN
BERI LJÓSSINS
þýðir ljós. Noor hefur borizt
mann fram af manni frá
spámanninum sjálfum til
mín. Og næsti Aga Khan
mun taka við því af mér.
Yður hefur stundum ver-
ið líkt við páfann. Eruð þér
talinn óskeikull eins og
hann?
Orð Imamsins (trúarleið-
togans) eru álitin óskeikult
lögmál þegar um trúarleg
efni er að ræða. Og það er
til þess ætlazt, að allir
Ismailítar fari eftir þeim.
Flokkurinn beygir sig alger-
lega fyrir valdi Imamsins
og persónulegum skoðunum
hans á trúarlegum efnum.
Ismailíti sem ekki hlýðir
boðum mínum — trúarlega
séð — er samt ekki talinn
trúvillingur. En hann til-
heyrir ekki lengur Jamath,
þ. e. flokki Ismailíta. Hann
er Múhameðstrúarmaður eft-
ir sem áður, en ekki Ismai-
líti. Það er gerður alger
greinarmunur á trúarlegum
og veraldlegum málum hvað
þessu viðvíkur. Ismailíti get-
ur spurt mig ráða varðandi
önnur mál en trúarleg og
látið vera að fylgja þeim.
En ef hann virðir að vettugi
ákvarðanir Imamsins í trúar-
legum efnum vekur hann
andúð og óánægju annarra
Ismailíta.
Hafið þér nokkurn tíma
neytt valds yðar til að gera
róttækar breytingar á trú
Ismailíta?
Það er ekki hægt að
breyta trúarbrögðum. Það
er aðeins hægt að breyta
vissum siðvenjum. Afi minn
nam til dæmis úr gildi það
lögboð, að konur Ismailíta-
flokksins skyldu ganga með
blæju fyrir andlitinu. Ég
hef ekki tekið neinar slíkar
ákvarðanir. En ég held, að
mér sé óhætt að segja, að
skoðanir mínar samræmist
kröfum nútímans. Að ýmsu
leyti er ég ólíkur afa mín-
um, og það hlýtur að hafa
sín áhrif á trúarbrögð okk-
ar, þótt ekki beri mikið á
því.
Hafið þér gert nokkrar
skyssur?
Vissulega. Ég er mennsk-
ur maður, en ekki guð.
Iðrizt þér þeirra?
Maður hlýtur alltaf að
iðrast þegar manni verður
á að gera skyssu sem hefur
skaðlegar afleiðingar. Þá
reynir maður venjulega að
bæta fyrir brot sitt með ein-
hverjum hætti. Það er líka
hægt að gera skyssur án
þess að vita af því eða af
því að maður hefur fengið
slæmar ráðleggingar eða af
dómgreindarskorti. Ástæð-
urnar geta verið margar.
Finnst yður oft, að þér
séuð misskilinn?
Stundum. Ég held, að vest-
rænar þjóðir geri sér litla
grein fyrir stöðu minni,
hvað ég geri og til hvers.
Að sumu leyti stafar það af
alls konar vitleysu sem um
mig hefur verið skrifuð í
blöðin, að öðru leyti á það
sér sögulegar og trúarlegar
orsakir. Þið Vesturlandabú-
ar eruð svo vanir því að líta
á trúarleiðtoga sem ólíka
öðrum mönnum, ekki sem
þátttakendur í venjulegu
lífi. Við lítum allt öðruvísi
á það. Trúarleiðtogi hjá okk-
ur getur lifað eins og hver
annar maður. Spámaðurinn
Múhameð var bæði herfor-
ingi og kaupsýslumaður
þegar allt kom til alls. Hjá
ykkur er trúarlegt og ver-
aldlegt sitt hvað, en hjá okk-
ur blandast það í eina heild.
Ef til vill eru það auð-
æfi yðar sem valda þessum
misskilningi. Kristindómur-
inn prédikar fátækt, og nú-
tímapólitík jafnrétti, svo að
fólk hefur tilhneigingu til að
álíta aúðmenn vera annað
hvort léttúðuga eða sið-
spillta eða hvort tveggja í
senn.
Múhameðstrúarmenn eru
ekki eins heillaðir af auð-
æfum og þið á Vesturlönd-
um. Og trú okkar heimtar
ekki, að við lifum eins og
betlarar eða látumst vera
fátækir.
Ekki gerir vestrænn kapí-
talismi það heldur.
Nei, en kristindómurinn
upphefur fátæktina. Enginn
Múhameðstrúarmaður sér
neitt athugavert við ríkan
mann ef hann lætur gott af
sér leiða. Hann má gjarnan
njóta auðæfa sinna og láta
mikið á þeim bera ef hann
kærir sig um, og engum
dettur í hug að áfellast hann
fyrir það.
Annað mál sem við lítum
öðruvísi á en þið er hjóna-
bandið. Gifting er ekki trú-
arleg athöfn hjá okkur. Hún
er samningur milli manns
og konu sem biðja að vísu
um blessun guðs þegar þau
gifta sig, en eru ekki rekin
úr söfnuðinum, þótt þau
skilji að skiptum. Mér virð-
ist það skapa mikil vandræði
hjá vestrænum þjóðum, að
það er litið á hjónaskilnað
sem synd gegn guði. Við
höfum aðra skoðun á því
máli, og hjá okkur er hjóna-
skilnaður samt ekki nærri
eins algengur og hjá ykkur
á Vesturlöndum.
Kannski af því að þið ger-
ið ykkur ekki eins miklar
óhyggjur af þessu öllu?
Ja, kannski lítum við
öðrum augum á samband
mannsins við guð. Við hugs-
um ekki eingöngu um að
snúa okkur til hans í sorg-
um og erfiðleikum. Nei, þér
megið ekki misskilja mig.
Þó að við álítum trú og gleði
geta farið vel saman þýðir
það ekki, að við höfum enga
stjórn á okkur, drekkum eða
neytum eiturlyfja.
Og ef þið gerið það?
Það er stranglega bannað.
Sá sem það gerir hefnist fyr-
ir það. Við höfum okkar
reglur — lífsreglur sem ekki
borgar sig fyrir neinn að
brjóta.
Áfengisneyzla er bönnuð
hjá ykkur?
Við segjum, að það sem
aðskilji manninn frá dýrun-
um sé hæfileiki hans til að
hugsa. Allt sem skerðir þann
hæfileika mannsins er nei-
kvætt. Þess vegna er áfengis-
neyzla bönnuð. Ég hef aldrei
á ævi minni bragðað dropa
af áfengi. Það er ekki fyrst
og fremst af trúarástæðum,
heldur af því að mig hefur
aldrei langað til þess.
Það getur líka valdið mis-
skilningi gagnvart yður, að
við hér á Vesturlöndum er-
um vön því, að valdamiklir
menn hagi sér afar virðu-
lega á almannafæri og Iáti
sér nægja að skemmta sér
í sínu einkalífi. Aftur á móti
virðizt þér léttlyndur á al-
mannafæri en alvarlegur í
einkalífi yðar.
Þótt ég fari á veðreiðar
stundum er ekki þar með
sagt, að ég geri ekkert annað
á milli. Og hvers vegna ætti
ég að bæla niður alla gleði
þegar ég er á annað borð að
skemmta mér? Mér finnst
tilhugsunin fáránleg.
Það er ekki neitt smáræði
FÁLKINN 15