Fálkinn - 20.06.1966, Page 18
MOILANDINN
TEXTI: GRETAR ODDSSOIM
UPP írá Kópavoginum gengur daiverpi milli lágra
hálsa og er kallað Fifuhvammur. Ótrúlegt er
samt að það nafn eigi við dalinn allan, heldur innsta
hluta hans og það eru hreint ekki mörg ár síðan frítt
var þangað að líta frá Hafnarfjarðarveginum. Heldur
þótti manni þó undarlegt að sjá fífubreiðurnar með-
fram veginum í Fossvogi, en sjaldan eða aldrei hvítan
koll við veginn í Fífuhvammi.
Nú eru „hættulegar bakteríur í læknum" eins og
Alþýðublaðið komst svo sniildarlega að orði og satt
er það reyndar að Kópavogslækurinn rennur til sjáv-
ar sem eitt allsherjar frárennsli frá byggðinni sunnan •
í Digraneshálsinum. Þó er mér tjáð að einn af fyrr-
verandi bæjarstjórum í Kópavogi hafi ekki skort
vilja til að bæta hér úr. Á yndisfögru sumarkvöldi
dvaldi hann við lækinn og andaði að sér ferskum
ilminum af þegnum sínum. Síðan gekk hann í stemmn-
ingu niður eftir læknum og í einni sjónhendingu
datt lausnin ofan í hann. Að setja lækinn í stokk.
En þegar hann kom niður undir ósinn rofnaði stemmn-
ingin, því honum varð allt í einu ljóst að það myndi
verða bæjarfélaginu ofviða að setja sjálfan Kópa-
voginn í stokk: Gott ef ekki verkfræðilegur ómögu-
leiki. Síðan hefur lækurinn runnið opinn til sjávar
eins og við upphaf íslandsbyggðar og íbúunum fjölg-
ar jafnt og þétt í slakkanum sunnan í hálsinum.
Sögulegar minningar, sem tengdar eru við ósa
Kópavogslækjar eru álíka ófélegar og fjaran fram
undan brúnni. Fólki, sem komst upp á kant við Stóra-
dóm, var drekkt þar eins og kettlingum í poka. Þó
stendur ekki líkt því eins mikill dýrðarljómi af lón-
inu innan við brúna og hinum drekkingarhylnum við
brúna yfir Öxará á Þingvöllum. Þarna voru menn
líka afhöfðaðir og hengdir, rétt eins og á Þingvöll-
um við Öxará og þarna ku vera dysjar út um allt.
Annars væri gaman fyrir grúskara að athuga hvort
15., 16, og 17. öldin hafi ekki dysjað fuilt eins marga
einstaklinga utangarðs í sekt, eins og hina sem fengu
kristilegan legstað í kirkjugarði.
i8 FÁLKINN