Fálkinn - 20.06.1966, Side 28
Hvernig bregzt fólk við, þegar
ráðizt er að því úti á götu með
einhverja fáránlega spumingu
um efni, sem engin leið er að
vita fyrirfram hvort það hefur
nokkurn minnsta áhuga á?
Reynsla okkar á Fálkanum er
sú, að fólk er yfirleitt vinsam-
legt og reynir eftir beztu getu
að liðsinna okkur. Við brugð-
um okkur út eina dagstund og
hittum fólk á förnum vegi og við
störf sín og lögðum sína spurn-
inguna fyrir hverja manneskju.
Yfirleitt var hér um ungt fólk að
rœða, eða á aldrinum 13 til 30
ára og nú skulum við gefa því
orðið:
28 FÁLKINN
ÁRNI BERGMANN
blaðamaður við Þjóðviljann svarar
spurningunni: „Á að leggja niður Þjóð-
kirkjuna?“:
— Alls ekki. Mér finnst sjálfsagt að
hafa þjóðkirkju, sem tryggir manni ei-
líft líf fyrir tiltölulega hóflegt árgjald
miðað við dýrtíðina. Svo er ég ein-
dregið fylgjandi þeirri kröfu Sverris
Kristjánssonar sagnfræðings að biskup-
ar verði 39 á íslandi.
ÁRNI EINARSSON
verzlunarstjóri i unglingafataverzlun-
inni Karnahæ svarar spurningunni: „Er
viðeigandi að reisa sláturhús í Skál-
hoIti?“:
— Ég sé ekkert athugavert við það,
ef það er huggulegt slátúrhús og ekki
auðkennt með SS merkinu. Það þætti
mér dálítið óviðeigandi á þcim stað.
EINAR SVERRISSON
sagnfræðistúdent svarar spurningunni:
„Hvernig geðjast þér að Þjóðverjum?“: r
— Þjóðverjar eru heldur strembnir
í umgengni og formfastir, en að öðru
Ieyti ágætis fólk. Mér finnast þeir reynd-
ar skárri austan megin en vestan. Það
get ég líka sagt þeim til hróss, að ég
hef aldrei heyrt þá jóðla, eins og Sviss-
arar eru útsettir með.
VALGERÐUR
ÞORSTEINSDÓTTIR
svarar eftirfarandi spurningu: „Finnst
þér Esjan falleg í raun og veru?“:
— Já, mér finnst Esjan falleg. Ég
ætla samt ekki að fara út í fjallgreinar-
álit og bera hana saman við önnur f jöll,
en hún skiptir skemmtilega litum og er
aldrei eins þegar maður horfir á hana.