Fálkinn - 20.06.1966, Qupperneq 31
VILTU VERÐA 1000 ÁRA?
GÆTIR þú hugsað þér að falla í dá á broti úr sekúndu —
vakna aftur árið 2000 og byrja lífið á ný, jafngamall og
þú ert í dag?
Eða, ef árið 2000 er ekki nógu fjarlægt, gætum við ef til
vill beðið 500 ár til viðbótar áður en þú tækir aftur upp
lífsþráðinn.
Þessi ótrúlega hugmynd, sem virðist tekin beint úr vísinda-
legu skáldriti, er síður en sVo neinn óráðsdraumur. Hún á
eftir að rætast í náinni framtíð.
Raunar eru sumir vísindamenn svo sannfærðir um að hún
sé framkvæmanleg, að þeir eru þegar farnir að veita viðtöku
umsóknum. Og ekki nóg með það heldur hefur stofnun ein
lýst sig reiðubúna að veita þessa þjónustu ókeypis þeim sem
vildu gerast tilraunadýr og taka áhættuna, en eru ekki nógu
fjáðir til að kaupa sér dáið.
Samkvæmt skýrslum í amerískum læknatímaritum, hafa
60 manns þegar gengið í Líflengingarhreyfinguna og undir-
skrifað skjalfesta beiðni um að líf þeirra verði framlengt
með dáfrystingaraðferðinni þegar dauðinn nálgast.
Sérhver húsmóðir er kunnug sumum möguleikum þessarar
aðferðar. Þegar hún kaupir djúpfryst matvæli, kynnist hún
> í raun og veru anga af þeirri aðferð, sem nú er ráðgert að
nota við varðveizlu á lífi manna og dýra.
Eins og getið er á umbúðum matvælanna, eru þau djúp-
fryst glæný á augabragði, svo engin rotnun af neinu tagi
nær að myndast. Ávextir og grænmeti eru síðan látin þiðna
aftur við eðlilegan hita og eru þá í nákvæmlega sama ásig-
komulagi og þegar þau voru fryst.
Flest þessara matvæla eru aðeins fárra mánaða gömul. En
ekkert er því til fyrirstöðu að þau séu geymd í ár eða jafn-
vel aldaraðir.
Þetta er það sem vísindamenn hafa í hyggju að gera við
lifandi dýr. Efnið sem þeir nota er fljótandi nitrogen, vökvi,
sem þolir svo ótrúlegan kulda, að hann frýs við -f- 194° C.
Hvergi á jörðinni kemst kuldinn í hálfkvisti við þetta, en
þetta kuldastig er að finna úti í himingeimnum.
Ekkert líf getur þolað þennan kulda svo mikið sem brot úr
sekúndu. Þess vegna getur engin rotnun eða breyting átt sér
stað í efni sem er hrað- og djúpfryst.
Á þessari staðreynd byggja vísindamenn þá skoðun að hægt
verði að framlengja mannslíf. Gagnrýnendur, sem halda bví
fram að þetta sé siðferðilega rangt, fá það svar að Hippocrates-
areiðurinn skuldbindi lækna til að nota allar tiltækar vísinda-
legar aðferðir í baráttu sinni við dauðann.
Gríski læknirinn Hippocrates var uppi fyrir 2300 árum.
Hann hefði ómögulega getað séð fyrir slíka túlkun á reglum
þeim, sem hann setti læknum, en í sumum tilfellum hefði
hann vafalaust samþykkt djúpfrystingu á sjúklingi.
Forsvarsmenn Líflengingar halda fram þeirri skoðun, að
þegar sjúklingur þjáist af sjúkdómi eða hafi hlotið meiðsli
sem engin kunn lækningaraðferð geti læknað hann af, ætti
að djúpfrysta hann þar til sú lækningaraðferð er fundin.
Þá verði hann vakinn aftur til lífsins og læknaður.
Undirbúningstilraunir fyrir þessa fjarstæðukenndu sjúk-
dómsmeðferð hafa þegar verið gerðar. Gullhamstrar og rott-
ur hafa verið hraðfryst og vakin til lífsins. f tilraunastofu
einni í London var gullhamstur hraðfrystur við mínus 5° C.
Það er ekki mikill kuldi og hefði, eftir fyrirliggjandi niður-
stöðum, átt að valda skemmdum í vefjum og heila. En hamst-
urinn var lífgaður við og lifði sitt æviskeið á eðlilegan hátt.
Tilraunin með kattarheilann nálgast meira hina raunveru-
legu djúpfrystingaraðferð. Hann var frystur niður í -f- 200
stig og haldið í þessum ægikulda í sex mánuði. Þegar hann
var hitaður upp aftur í hæfiiegt hitastig, sást enginn vottur
um skemmdir og hefði hann verið í lifandi dýri, myndi hann
hafa starfað á eðlilegan hátt
Framh. á bls. 39.
Stúlka fer í ískassa til að dveljast þar 18 mínútur. Hjúkrunarkona er hjá til þess að sjá um að ekkert fari aflaga.
FALKINN
31