Fálkinn - 20.06.1966, Síða 34
inn hafði fundið lista yfir alla
leynilega flokksbræðut og stuðn
ingsmenn i Saloniki umdæmínu
og við tíndum þá út úr, sem
unnu i bönkum og skrifstofum
fyrirtækja, sem höfðu háar
launagreiðsiur. Síðan leituðum
við þá uppi og gáfum þeim liís
síns gullna tækifæri tii þess að
leggja flokknum lið á neyðar-
stund, eins og stendur í bókinni
að bolsjévíkarnir hafi gert. Við
gátum alltaf sagt að við mynd-
um ljóstra upp um þá, ef þeir
yrðu tortryggnir, en við mætt-
um engri mótspyrnu. 1 hverju
einasta ráni, sem við höfum
framið, höfum við haft einhvern
á staðnum til þess að hjálpa okk-
ur að viðhalda heiðri flokksins."
Hann hló fyrirlitningarhlátri.
„Ormar í ruslatunnunum sam-
einist! Þeir gátu varla beðið
þess að fá að svíkja það fólk,
sem þeir unnu fyrir. Sumir
þeirra hefðu látið pynda móður
sína, ef fiokkurinn hefði krafizt
þess, og það með glöðu geði!
— Já, félagi. Sjálfsagt, félagi.
Segðu bara til, félagi. — Ég hef
oft verið að því kominn að kasta
upp yfir því,“ bætti hann við
með vandlætingu.
„En það gaf sem sagt töluvert
í aðra hönd?"
„Að vísu, en ég get samt sem
áður ekki þolað fólk, sem bítur
höndina sem bitann gefur.“
„Er liðþjálfinn sama sinnis?“
„Hann?" sagði hinn hlæjandi.
„Honum er sko sama, Veiztu
það, ég held að til sé alls konar
íólk. Það gerir hann ekki, hann
þekkir aðeins tvær gerðir — þá
sem maður vill hafa hjá sér
þegar móti blæs og hina, sem
maður vildi ekki hafa hjá sér
hvað sem í boði væri.“ Hann
brosti kankvíslega. „Og hann er
mjög fljótur að taka ákvarð-
anir.“
George kveikti sér í síðustu
sígarettunni sinni og horfði
hugsandi á hann um stund. Grun-
urinn varð allt í einu að vissu.
Hann kreisti tóman pakkann
saman og fleyjði honum á borð-
ið.
„Hvar eru þau, Arthur?"
„Hvar eru hver?“ Andlit Art-
hurs varð að einu stóru, sakleys-
islegu spurningarmerki.
„Hættu nú, Arthur! Þau voru
hér í gærkvöldi, það veit ég,
því ég heyrði liðþjálfann koma
inn um miðnætti og tala við
þig. En í morgun var hvorki
hann hérna né ungfrú Kolin. Að
minnsta kosti sá ég hann ekki
og henni hefur ekki verið færð
ur matur. Jæja, hvar eru þau?“
„Ég veit það ekki.“
„Hugsaðu þig aftur um.“
„Ég veit það ekki, Carey, og
það er staðreynd.“
„Er hann farinn fyrir fullt og
aiit?“
Arthur hikaði og yppti öxlum.
„Já, hann er það.“
George kinkaði kolli. Hann
hafði haft hugboð um þetta, en
nú þegar hann hafði fengið
vissu, kom fréttin eins og reið-
arslag."
„Hvers vegna er mér haldið
hér?“
„Hann verður að hafa ráðrúm
tii að komast burt.“
„Burt frá mér?“
„Nei, burt úr þessu landi.“
Arthur hallaði sér að honum.
„Sjáðu til, ef nú Chrysantos
tæki þig til meðferðar og þú
kjaftaðir frá öllu saman, að
hann væri á leið úr landinu? Ég
er ekki að segja að þú ætlir
þér að gera það, en hann er
slóttugri en refur, sá náungi. Þú
hlýtur þó að sjá, að það kynni
að eyðileggja eitt og annað, er
það ekki?"
„Jú. Hann hafði þá þegar
ákveðið hvað hann ætlaði að
gera. Mér finnst nú, að hann
hefði getað sagt mér það.“
„Hann bað mig um það, herra
Carey. Ég átti að bíða þar til
eftir kvöldmat, aðeins til að vera
viss, en þú getur allt eins vel
fengið að vita það núna. Hann
hafði ekki ýkja mikinn tíma,
skilurðu. Við höfum verið reiðu
búnir að halda af stað dögum
saman. Hann lauk við undir
búninginn í gær og kom aðeins
til að vita, hvort hún vildi koma
með.“
„Og hún vildi það?“
„Já, hvort hún vildi. Hún má
ekki af honum sjá! Það er sko
ekkert um að villast!"
„Er hann ekki hræddur um,
að hún framselji hann aftur?“
Arthur hló. „Vertu nú ekki
svona heimskur, kunningi. Hún
hefur beðið allt sitt líf eftir
manni eins og honum."
„Ég skil það samt ekki..
„Það er eflaust með þig eins
og mig,“ sagði Arthur hug-
hreystandi. „Ég vil heldur hafa
þær svolítið stilltari. En hvað
peningunum viðvíkur ...“
„Já, peningarnir."
„Við ræddum dálítið um það,
hann og ég, herra Carey, og við
komumst að niðurstöðu. Hann
hefði aldrei getað gert kröfu til
þessara peninga. Það sérðu sjálf-
ur, er það ekki? Þú varst að
tala um samþykktir varðandi
framsal á afbrotamönnum og
hvaðeina, en það er alls ekki
aðalatriðið. Þetta hefði allt kom-
Framh. á bls. 41.
LEIKIÐ
FJÓR-
HENT
Æsispennandi framhaldssaga
eftir Hildu Lawrence
HRðLLVEKJA
OG
ÁSTARSAGA
HEFS
í
NÆSTA
BLAÐI
34
FALKINN