Fálkinn - 20.06.1966, Síða 39
Tjöld með stálsiílum föstum botni
2ja manna.................................. Kr. 1.780.00
3ja manna................................... — 1.990.00
3ja manna dönsk Cosy-tjöld.................. — 2.500.00
4ra manna.................................. — 2.290.00
5 manna .................................... — 2.790.00
5 manna dönsk Cosy-tjöld.................... — 3.800.00
5 manna með himni .......................... — 3.690.00
6 manna .................................... — 3.990.00
Sænsk tjöld, stærð 2x2.50 m................. — 3.150.00
Sóltjöld ................................... — 3.300.00
Indíánatjöld — Leiktjöld ................... — 350.00
Sænsk tjaldborð með 4 stólum................ — 998.00
Mæniásar fyrir 2—5 manna tjöld.............. — 120.1)0
Sænskar veiðistengur........................ — 198.00
Veiðistangahjól ............................ — 165.00
Frönsk gassuðutæki ......................... — 297.00
Franskar gasluktir ......................... — 395.00
Vindsængur — sólstólar...................... — 690.00
Vindsængurpumpur............................ — 78.00
Bakpokar, margar gerðir, verð frá........... — 715.00
Pottasett með stálpönnu .................... — 530.00
Veiðiúlpur.................................. — 325.00
Þið gerið beztu kaupin þar sem úrvalið er mest.
FERÐAVÖRUDEILDIN er á II. hæð.
UVERPOOL wmBm
læknastettarinnar, dómara og
lögfræðinga ekki tekizt að fá
kjarklitla stjórnmálamenn til
að hrófla við þeim.
Þar til löggjafarvaldið ákveð-
ur að breyta þessum lögum
eða afnema þau, virðist því
eina lausnin sú, að læknar
hætti að hika og hliðra sér hjá
að nota þann rétt, sem þeir
þégar hafa til að úrskurða
samkvæmt eigin dómgreind, að
lífi og heilsu barnshafandi konu
sé hætta búin, nema fóstur-
eyðing komi til. Líkur benda
hvarvetna til þess að frjáls-
legri fóstureyðingarlöggjöf yrði
fagnað meðal alls þorra manna
og andstaða vegna trúmála eða
misskilinnar siðferðiskenndar
myndi reynast mun minni en
hingað til hefur verið gert ráð
fyrir.
Þjóðfélagið getur ef til vill
þvingað móður til að ala barn
sitt lögum samkvæmt. En það
getur ekki komið í veg fyrir
að hún fyllist beiskju né held-
ur því að beiskja hennar bitni
beinlínis eða óbeinlínis á barn-
inu. Ekkert er jafnsorglegt og
örlagaríkt fyrir barnið og
skiiningur þess á því, að það er
ekki velkomið. Þessi börn, sem
fæðast í ónáð og gegn viija
foreldra sinna, ríkra jafnt sem
fátækra leggja drjúgan skerf
til íbúatölu hvers konar geð-
lækninga og uppeldisstofnana.
Munaðarleysingjahæli, upp-
eldisskólar og aðrar opinberar
stofnanir verða oftast að taka
að sér það vandasama hlut-
verk að tjasla saman sálarbrot-
Um óvelkominna yfirgefinna
barna. Skynsamlegra væ'ri, að
grípa fyrir rætur meinsins og
kappkosta að ekkert barn fædd-
ist í þennan heim, sem ekki
Væri ástríkum foreldrum sín-
Um velkomin sending.
Takmörkun barneigna, og þá
fyrst og fremst getnaðarvarnir,
með fóstureyðingar sem neyð-
arúrræði, myndi geta aukið
stórlega á hjónabandshamingju
margra kvenna. Ekkert er lík-
legra en að kona, sem fer fram
á fóstureyðingu í dag óski sér
af alhug að eignast barn að
fimm árum liðnum. Fóstrið,
sem hún lætur eyða, myndi
ahtaf verða óvelkomið barn.
Ef þörf hennar fyrir fóstur-
eyðingu er ekki fullnægt, get-
Ur hæglega svo farið, að hún
kynnist aldrei hamingjunni við
að eignast hið þráða barn.
Þjóðfélagið mun því aðeins
Vakna til ábyrgðar, að almenn
viðurkenning fáist fyrir tak-
mörkun fjölskyldustærðar, sem
jákvæðrar, skapandi stefnu.
(Þýtt og endursagt.).
• 1000 ára
Framh. af bls. 31.
Það eru nú tvö ár síðan vís-
indamenn héldu ráðstefnu í
Washington til þess að semja
áætlun um rannsóknir á fram-
lengingu mannslífa. Kostnaður
við hrað- og djúpfrystingu lík-
ama og geymslu um ótakmark-
aðan tíma var áætlaður um
£3000. Þau forréttindi, að fá
að dreifa ævi sinni yfir margra
alda tímabil, yrðu því ærið
kostnaðarsamt fyrirtæki, en
ræðumenn bentu á að þennan
kostnað mætti greiða í smá-
afborgunum líkt og þegar menn
kaupa sér vátryggingu.
Yfirleitt bendir sú staðreynd
að ráðstefnan var haldin í
Washington til þess, að áhuga-
samir menn þar séu ekki mikið
að velta vöngum yfir 3000
sterlingspunda reikningi fyrir
mannlega frystikistu.
Framlenging mannslífa gæti
leyst það vandamál við geim-
ferðalög, sem í augnablikinu
er með öllu óviðráðanlegt, en
það er að kanna hnetti ann-
arra sólkerfa. Mesti hraði, sem
hægt yrði að ná úti í himin-
geimnum, er fjörutíu þúsund
mílur á klukkustund, en á
þeim hraða yrðum við 60.000
ár að komast til nálægustu
stjörnu næsta sólkerfis, sem er
Proxima Centauri. Sú ferð yrði
því ekki farin á venjulegrí
mannsævi. En ef geimfarar
yrðu frystir lifandi í upphafi
ferðar myndu engri vandkvæði
verða á að lífga þá aftur við
á leiðarenda. Þeir myndu þá
aðeins verða fáeinum mínútum
eldri, en þegar þeir stigu inn í
frystikistu geimskipsins á
Kennedy-höfða.
Þessi möguleiki er einn af
mörgum sem verið er að rann-
saka hjá American Institute of
Aeronautics and Astronautics.
Og það er vitað, að lengst inni
í Sovét-Asíu vinna rússneskir
vísindamenn af miklu kappi
að lausn þessa sama vandamáls.
Og það er ekki þægilegt fyrir
Ameríkumenn til þess að vita
að Rússar hafa löngum verið
FALKINN
39