Fálkinn - 20.06.1966, Side 42
SNYRTIVÖRUR HF. LAUGAVEGI 2G
SÍMAR: n02D - 11021 - 35033
STÓ RKOSTLEG
LÆKKUN
Á ÞESSU VINSÆLA
HÁRLAKKI
SAMA STÆRÐ, SEM
ÁÐUR KOSTAÐI lOB.-
KOSTAR NU AÐEINS
KR. BB.OO
lr'gt okkur í tíma en hendurn-
ar mætast yfir árabilið og við
erum eitt. Ódauðleiki manns-
ins býr í börnum hans. Ég
vona að eignast mörg, og ef
til vill mun María fæða mér
þau. Hún segist sjálf óska
þess.
Undirliðþjálfinn hefur tjáð
mér, að þér ætlið að vera svo
vinsamlegur að liðsinna bil-
stjóranum, sem var tekinn
fastur. María biður yður að
gefa honum ritvél sína og
annað, sem hún skildi eftir í
Florina, svo hann geti selt
það og átt peningana. Hann
heitir Douchko. Hún sendir
yður einnig þakkir og biður
yður afsökunar. Svo er ekki
annað eftir en að þakka yður
enn einu sinni og óska yður
ails góðs í framtíðinni. Ég
vona að við eigum eftir að
hittast aftur.
Yðar einlægur,
Franz Schirmer."
Hann hafði sjálfur skrifað
undir.
George stakk bréfinu i vasann,
sótti skjalatöskuna upp í her-
bergi sitt og lagði af stað upp
milli furutrjánna. Morgunninn
var svalur og hressandi og ilmur-
inn unaðslegur. Hann fór að
bræða það með sér, hvað hann
ætti að segja við Chrysantos of-
ursta. Ofurstinn yrði sjálfsagt
lítið hrifinn. Það yrði herra
Sistrom sömuleiðis. Ástandið
var í rauninni allt annað en gott.
George braut heilann um það,
hvers vegna hann héldi samt
áfram að hlæja innra með sér,
þar sem hann þrammaði áleiðis
til landamæranna. ENDIR.
• Brennimerkt
Framh. af bls. 24.
ljós langvinna berklaveiki eða
hreint og beint krabbamein. Hár
hans var farið að grána við
gagnaugun, en lifandi og fjör-
legt augnaráðið vóg upp á móti
þessu aldursmerki. Stenfeldt
fannst allt í einu að hann kann-
aðist við hann. Var hann lærð-
ur læknir, sem hafði dregið sig
í hlé og lifði nú kyrrlátu ein-
setumannslífi uppi í fjöllunum?
Hafði hann einhvern tíma geng-
ið um deild Stenfeldts sem þátt-
takandi í erlendri iæknaheim-
sókn? Nei, eftir því sem Sten-
feldt mundi bezt, hafði hann al-
drei verið leiðsögumaður erlends
læknahóps. Og samt sem áður
— það var eitthvað við andlit
mannsins, sem kom honum
kunnuglega fyrir sjónir.
— Fyrir tæpri viku fenguð
þér heimsókn af ungri konu, sem
hét Grete Rosenberg — hún var
Svíi eins og ég. Stendur það
heima?
— Já, það stendur heima.
Róieg en árvökur augu Meyers
viku ekki frá andliti gestsins.
Málrómur hans var vingjarnleg-
ur og umburðarlyndur, en í hon-
um var einhver undirtónn gætni
og baráttuvilja.
— Rannsökuðuð þér hana?
Reynduð þér að gefa henni ein-
hverja úrlausn?
Andlit Meyers var sviplaust.
— Ég ráðlagði henni að leita til
doktor Weisenfeld í Chur. Hún
er sérfræðingur í kvensjúkdóm-
um. Þekkið þér ungfrú Rosen-
berg eða eruð þér að leika leyni-
lögreglumann?
Fjandsamleg spenna var að
myndast á milli þeirra, og Sten-
feldt dró við sig svarið. Augna-
ráð hans hvarflaði aftur um her-
bergið. Þetta var móttökuher-
bergi skottulæknis. Bækurnar á
hillunum voru úrvalslæknabók-
menntir á ensku, þýzku, frönsku
og ítölsku. Sum verkin voru svo
ný af nálinni, að Stenfeldt sjálf-
ur hafði ekki haft tima til að
lesa þau. Á hillu lá hlaði af tima-
ritum sem enginn gat haft neina
ánægju af nema vísindamaður,
og á annarri hillu stóðu nokkrir
silfurbikarar, til skrauts eða
angurværrar minningar um þá
horfnu æskutíð, er Meyer hafði
enn ekki verið tekinn fanga-
fangabrögðum af neinum sjúk-
dómi.
Meyer náði í flösku og tvö
glös út úr einum skápnum.
— Þér hafið komið langa leið
og ekki haft erindi sem erfiði,
sagði hann. Mætti ég bjóða yður
glas af koniaki áður en leiðir
okkar skilja aftur?
Stenfeldt þáði boðið. Hann
hafði það afar sterkt á tilfinn-
ingunni, að Meyer væri meiri
læknir en hann vildi vera láta.
Hann tók við glasinu og virti
hinn holdskarpa mann fyrir sér.
Þetta sérkennilega andlit, gáska-
fullt, rólegt, árvakurt, gamalt
og drengjalega fjörlegt í senn.
Einhvers staðar hafði hann séð
það áður. Var...?
Það kom einkennilegur glampi
I augu Meyers þegar hann lyfti
glasi sínu. — Þér eruð svo
áhyggjufullur á svipinn, doktor
Stenfeldt. Ég held ekki að þér
þurfið' að bera neinn kvíðboga
fyrir ungfrú Rosenberg. Vand-
kvæði hennar eru mestmegnis
sálræn. Gefið henni ofurlitla ást
og þá mun náttúran sjá um
hitt.
Stenfeldt leit hvasst á gest-
gjafa sinn. Ráðlegging Meyers
gat verið vinsamlega ætluð én.
hún hljómaði eins og hroki. Að-
ferð til að losna i snatri en jafn-'
framt elskulega við óæskilegan
gest.
Þá sá hann allt í einu hver
maðurinn var hinum megin við
borðið. Hann lagði frá sér glas-
ið án þess að bargða á koníak-
inu og sagði stillilega:
— Fáið þér margar heimsókn-
ir á sunnudögum, herra Meyer?
— Það kemur alltaf reytingur
af ferðamönnum eftir hádegið
og vilja láta búa um skrámur
sínar. Svigbrautir eru hættuleg
leikföng.
— En nú er enn ekki komið
hádegi. Getum við átt von á að
næstu klukkustundir verið róleg-
ar?
Meyer lagði einnig frá sér
glasið. Augnaráð hans breytt-
ist og varð hart sem gler. — Vild-
uð þér tala ofurlítið Ijósara? Ég
er hræddur um að ég skilji ekki
alveg hvað þér eruð að fara.
Stenfeldt tók tilhlaup eins og
fyrir lífshættulegt stökk. — Þér
spurðuð áðan hvort ég þekkti
ungfrú ,Rosenberg eða hvort ég
væri aðeins að leika leynilög-
reglumann. Ég get svarað hvoru
tvcggja játandi. Ég elska hana,
og þess vegna ætla ég mér ekki
að yfirgefa hús yðar fyrr en ég
hef fengið skýringu á nokkrum
atriðum, sem skipta mig og hana
miklu máli. Ég vona, að þér gefið
mér þá skýringu — herra
Heinrich Hoffmann!
Náttúrulæknirinn og heimspek-
ingurinn Meyer hélt grímunni
aðdáanlega vel. Ef til vill herpt-
ust vöðvarnir í skarpleitu and-
liti hans örstutta stund, ef til
vill hertu fingur hans tak sitt
um glasið ofurlítið. En augna-
ráð hans var óbreytt og rólegt.
Allt að því fjarhuga, eins og
hann hefði ekki tekið eftir því
að sænski læknirinn kallaði hann
Heinrich Hoffmann, dreypti
hann á koníakinu og lyfti brún-
um í þögulli viðurkenningu.
Lars Stenfeldt lagði aftur aug-
un og reyndi að mana fram í
huga sér ljósmyndina, sem hann
hafði uppgötvað í Garmisch um
haustið. Aðaldrættirnir í andliti
hins unga skíðamanns bentu rak-
leitt á Meyer. Sérkennilega kant-
að hökulagið og hol gagnaugun,
sem raunar var það einkenni á
myndinni, sem sízt hafði sam-
ræmzt útliti Hoffmanns yfir-
læknis í Stokkhólmi.
— Þér eruð eitthvað að gera
að gamni yðar, herra Stenfeldt.
Ruglið þér mér ekki saman við
einhvern annan?
Stenfeldt stóð upp og gekk
gegnum herbergið. Hann tók
Framh. á bls. 44.
FALKINN