Fréttablaðið - 05.10.2009, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 5. október 2009 11
AUKAKRÓNUR | landsbankinn.is | 410 4000
Þú færð meira
fyrir Aukakrónur
Þú safnar Aukakrónum þegar þú notar A-kortið þitt og fyrir þær
getur þú keypt allt mögulegt sem þig vantar eða langar í hjá
samstarfsaðilum Aukakróna.
Sæktu um A-kort á aukakronur.is
A-kortin
Kreditkort sem safna
Aukakrónum fyrir þig
N
B
I h
f.
(L
an
d
sb
an
ki
nn
),
k
t.
4
71
0
0
8
-2
0
8
0
.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
9
2
8
3
*
Á
m
yn
d
un
um
s
ér
ð
u
hv
að
þ
ú
g
æ
ti
r k
ey
p
t
h
já
s
am
st
ar
fs
að
ilu
m
A
uk
ak
ró
na
m
.v
. 1
5
0
þ
ús
un
d
k
r.
in
nl
en
d
a
ve
rs
lu
n
á
m
án
uð
i,
þ
.a
. 1
/3
h
já
s
am
st
ar
fs
að
ilu
m
. S
já
n
án
ar
á
a
uk
ak
ro
nu
r.i
s.
LÖGREGLUMÁL Talsvert blóð fannst á vettvangi inn-
brots í Garði, þar sem þrír piltar eru grunaðir um
að hafa verið að verki. Lögreglan á Suðurnesjum
hefur nú til rannsóknar þrjú innbrot á svæðinu, sem
öll voru framin í síðustu viku.
Um er að ræða innbrot í Gerðaskóla síðastliðna
nótt og einnig tvö innbrot í veitingastaðinn Flösina
við Garðskagavita. Hinir óboðnu gestir höfðu flat-
skjá upp úr krafsinu, svo og áfengi, sem þeir stálu
af veitingastaðnum. Við rannsókn málanna hefur
lögregla leitað í sex húsum og rætt við fjölda vitna.
Leit að þýfinu hefur engan árangur borið.
Í einu málanna er til upptaka þar sem sést til
þriggja pilta en þeirra er nú leitað. Í því sama máli
fannst blóð á vettvangi, eins og fyrr getur um, sem
bendir til þess að viðkomandi hafi skorið sig tals-
vert við að fara inn í húsið.
Lögreglan biður alla þá sem veitt geta upplýsing-
ar um þessi mál að hafa samband við lögregluna á
Suðurnesjum í síma 420-1800.
- jss
Lögreglan á Suðurnesjum leitar þriggja pilta vegna innbrotahrinu:
Blóð á vettvangi innbrots
FLATSKJÁR Þjófarnir stálu meðal annars flatskjá.
VIÐSKIPTI VBS fjárfestingarbanki
ætlar að áfrýja til Hæstaréttar
dómi Héraðsdóms Reykjavíkur
frá því á föstudag. Breski við-
skiptajöfurinn Kevin Stanford
og fjárfestingarsjóðurinn Kcaj
voru sýknaðir af 1,1 milljarðs
króna kröfu VBS. Fjárfestingar-
bankinn taldi að Stanford og Kcaj
hefðu gengist undir sjálfskuldar-
ábyrgð á 5 milljóna punda láni
til breska félagsins Ghost fyrir
tveimur árum, eða um einn millj-
arð króna. Ghost varð gjaldþrota
og Stanford og Kcaj neituðu að
greiða lánið.
Í dómi héraðsdóms kom fram
að með undirritun sinni á lána-
skjölin hefðu Stanford og Kcaj
aðeins samþykkt skilmála láns-
ins en ekki tekist á hendur sjálf-
skuldarábyrgð. Þessu hefur fjár-
festingarbankinn nú áfrýjað. - ghh
VBS leitar réttar síns:
Áfrýjar til
Hæstaréttar
vegna Stanford
NÝSKÖPUN Svana Helen Björns-
dóttir, framkvæmdastjóri Stika,
og Vilborg Einarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Mentors, munu
hitta Viktoríu krónprinsessu Sví-
þjóðar í viðhafnarkvöldverði í
dag.
Stöllurnar hafa verið valdar
fulltrúar íslenskra kvenfrum-
kvöðla í Evrópuverkefninu EU
Network of Female Entrepren-
eurship Ambassadors.
Halla Tómasdóttir og Krist-
ín Pétursdóttir frá Auði Capital
voru einnig valdar.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
- kh
Íslenskir frumkvöðlar:
Hitta Viktoríu
krónprinsessu
ELDSUPPTÖK ÓLJÓS Húsbíllinn
skemmdist mikið í brunanum.
ELDSVOÐI Eldur kom upp í húsbíl
á tjaldsvæðinu í Garði rétt fyrir
klukkan þrjú aðfaranótt sunnu-
dags.
Eigendur húsbílsins, maður og
kona, voru í næsta húsbíl þegar
eldurinn kom upp og náðu að
slökkva eldinn.
Maðurinn brenndist á höndum
og konan fékk snert af reykeitr-
un. Þau voru flutt á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja til aðhlynn-
ingar.
Húsbíllinn skemmdist mjög
mikið. Allt sem var inni í honum
brann, en ekkert er vitað um
elds upptök. Lögreglan rannsakar
nú málið. - afb
Maður brenndist í Garði:
Eldur kom
upp í húsbíl
JAPAN Shoichi Nakagawa, fyrrver-
andi fjármálaráðherra Japans,
fannst látinn á heimili sínu um
helgina.
Nakagawa, sem var 56 ára
gamall, vakti heimsathygli á
fundi sjö helstu iðnríkja heims
í Róm fyrr á árinu, þegar hann
virtist vera ölvaður á blaða-
mannafundi. Málið þótti afar
vandræðalegt fyrir stjórnvöld í
Japan og í kjölfarið missti hann
sæti sitt í ríkisstjórn landsins.
Eiginkona Nakagawa kom að
honum þar sem hann lá á mag-
anum í rúminu á heimili þeirra í
Tókýó. Lögreglan rannsakar nú
lát hans. - afb
Fulli fjármálaráðherrann:
Fannst látinn
á heimili sínu