Draupnir - 01.05.1902, Blaðsíða 18

Draupnir - 01.05.1902, Blaðsíða 18
18 DRAUFNXR. ui' væri ú því að slá veizlu þeirra saman við hans, því með þvi gat hún svo áþreifanlega sannfært hann um, að hún hefði ekki minnsta snefil af kærleika til hans, og umfram allt ann- að ásetti hún sér að búast sínu bezta skarti og leika við hvern sinn fingur. Svo var held- ur ekki ómögulegt, að A;'i, þó hann væri bóndi, gæti oi'ðið ríkur og komist til álits. Eftir þessa ályktun varpaði hún af sér ábreiðunni með líkri liugprýði og Þorgeir Ljósvetningagoði forðum þá er hann sagði upp kristnilögin á alþingi, en með þeim einasta mun, að ekki er þess get- ið að hann hafi gengið grátbólginn fram fyrir þingheim, er hann las þau upp. Inn í sama skálaherberginu finnum vér þau Ara og Elínu seinna um daginn, liann sat á kistunni, en hún á rúminu sínu og bæði litu þau í gaupnir sér meðan þau töluðust við, eins og báðum þeim væri þessi ráðahagur um og ó. Hún var sviphörð og alvarleg, en hann stilltur glaðvær og góðlátlegur. — Eiginleikar, sem í augum sérhverrar annarar konu en Elinar, hefði talsvert aukið á gildi hans, því hver er sú auð- legð, sem jafnast geti við glaða og rólega skaps- muni? Hún rauf þögnina með þessari spurn- ingu,' sem kom honum til að líta upp: „Ætlar gamli Ásmundur nábúi þinn að sleppa sveitar umsjánni?“

x

Draupnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Draupnir
https://timarit.is/publication/357

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.