Draupnir - 01.05.1902, Side 20
20
DEATJPNrR.
málalokin. „Elín skal taka Ara, hvað sem pað
kostar“. Hún gekk þá inn til þeirra heldur
gustmikil og sagði: „Hvar er nú komið mál-
inu börnin mín?“ og hún leit til þeirra á vixl,
en hvorugt gat svarað spurningunni, því mál-
inu hafði ekki vitundarögn þokað áfram bæði
voru þau hjartanlega óánægð. Hann sá of-
metnað hennar og hún metnaðarleysi hans
og þau hötuðu vöntunina jafnmikið hvort á
sína hlið.
„Þóra sá’hvað að fór, laut niður að dóttur
sinni og hvíslaði þessum orðum að henni:
„Festarmálin kváðu eiga að fara fram
með sérstakri risnu á Skinnastöðum11.
„Þá verður gaman að taka þátt í þeim“,
svaraði Elín svo hátt að tók undir í skáfánum;
sneri sér þá að Ara og sagði: „Takist þessi ráða-
hagur okkar, viltu þá gera það að vilja mínum að
slá kaupöli okkar saman við prestsins á Skinna-
stöðum ?“
Hann hugsaði með sér. „Já, þessa metnaðar-
fýsn þína skaltu í síðasta skiftið fáuppfyllta“. „Já!“
var allt, sem hann svaraði og það jáyrði hélt hann
trúlega.
„Þóra brók sagði við sjálfa sig himin-
glöð: „Örin hitti! Veizlan verður raunar
með þeim fátæklegustu, sem hér Iiafa verið.
Hin helga mær María sameini hjörtu ykkar
og hendur“. Að svo húnu gekk hún burtu.