Draupnir - 01.05.1902, Page 24

Draupnir - 01.05.1902, Page 24
24 DRAUPNIR. inn, herðarnar og síðan ber. Hér nm bil á miðri götunni lá leið þeirra fram hjá útibúri einu, án efa var það kvennabúr, sem heyrði til einhverjum tignum og rikum borgara, út úr ])eim fáu gluggagötum sem á því voru skeinút til þeirra birta af lamjialjósi. Hipyllos nam stað- ar og hafði ekki augun af Ijósinu. Það hefir blotið að hafa i sér fólgið eitthvert töfraafl fyr- ir hann. Eins og þegar einhver mikil og liul- in gleði mætir manninum þá talar hann íleira en hann á vanda til, Hipyllos klappaði á herð- arnar á gamla þrælnum sínum og sagði- „Myrmax ! Veiztu hvaðan þetta Ijós kemur?“ og án þess að bíða eft.ir svari bætti hann við. „Það kemur úr kvennabúri Klytiasar, þar býr hin fegursta mær, sem til er í Aþenuborg“. Myrrnax gapti og starði hissa á Hipyllos „Herra minn! herra minn!“ stamaði hann upp. „Hvað hefirðu í hyggju?“ Hipyllos tók ekkert eftir hvað hann sagði, en Myrmax var hræddur um að herra sinn mundi ætla að gera eitthvert glappaskot og hann vissi, að ef einhver borgari gerði sig sekan í einhverju þess háttar og vildi svo ekki kannast við það, kom það fyrir á stundum að hann varð að láta pynta einhvern af þrælum sínum, því lögin gerðu ráð fyrir að þrællinn inundi bera vitni á móti eiganda sín- um, ef hann gerði það ekki þá var hann við- urkenndur að vera saklaus.

x

Draupnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Draupnir
https://timarit.is/publication/357

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.