Fréttablaðið - 23.10.2009, Blaðsíða 19
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
ÍSLANDSROVER , í samvinnu við Eðalbíla, stendur
fyrir dagsferð fyrir alla Land Rover-eigendur laugardag-
inn 24. október. Lagt verður af stað frá Eðalbílum,
Grjóthálsi 1, klukkan 10 en áætluð heimkoma er
um 15. Skráning er á skraning@islandsrover.is.
„Hráefnið á allt að vera ferskt
og vandað og samsetningin rétt
þannig að bragðefnin á hverri
sneið eigi vel saman. Svo verður
útkoman líka að vera fyrir augað
og því er alúðar þörf við frágang-
inn. Þannig verður brauðið bæði
bragðgott og girnilegt,“ segir
Steindóra þegar hún er spurð um
aðalatriðin í sambandi við smurt
brauð. Hún telur það vera að vinna
sér aukinn sess í veitingaflórunni
á Íslandi og segir til dæmis gríðar-
lega eftirspurn hafa verið eftir því
í Kaffi Flóru þar sem hún starfaði
í sumar.
Steindóra er færeysk en hefur
búið hér á landi á fjórða ára-
tug og vinnur um þessar mundir
á veitingastaðnum Kaffi París.
Í sambandi við smurða brauðið
kveðst hún leggja áherslu á ekta
hráefni svo sem alvöru smjör,
heimasteiktan lauk og heimagert
remúlaði og pestó. Líka að smyrja
viðbitið út á kantana og láta álegg-
ið þekja vel. Huga verði að holl-
ustunni og því sé majones blandað
með sýrðum rjóma og notað í lág-
marki. Rækjubrauð sé til dæmis
smurt létt með blöndu af majon-
esi og sýrðum rjóma og gott sé að
blanda aspas út í. Hún kveðst skera
skorpuna af brauðinu og þegar hún
útbýr snittur sker hún þær út úr
stórum sneiðum.
En hvað um áleggið? „Á snittur
er fínt að nota laxasneið, eggja-
hlaup og skreyta með svörtum
pipar,“ stingur hún upp á. „Hefð-
bundnar áleggstegundir eru rækj-
ur, skinka, hangikjöt, lax, egg og
roast beef. Svo er hægt að leika sér
með ýmiss konar grænmeti með,
bæði til hollustu og skrauts og
nýjar tegundir af því hafa komið á
síðustu árum sem gefa nýja liti.“
Steindóra bendir á að 16 stunda
smurbrauðsnámskeið sé fyrirhug-
að á vegum Hótel- og matvæla-
skólans fyrstu dagana í nóvember
undir handleiðslu Marentzu Poul-
sen smurbrauðsjómfrúar og mælir
með því. Nánari upplýsingar um
það er að fá í síma 594 4000 og á
www.idan.is og sfrodi@sfrodi.is.
gun@frettabladid.is
Smurbrauð á að vera
bragðgott og girnilegt
Steindóra Andreasen hefur tileinkað sér galdurinn við að smyrja brauð af smekkvísi enda hefur hún
unnið náið með Marentzu Poulsen og sótt námskeið hjá henni í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi.
Steindóra Andreasen kann réttu handtökin við að smyrja brauð og snittur eins og sjá má. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207
Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is
Verð 8.290 kr.
Villibráðar-
hlaðborð
k b b22. o tó er - 18. nóvem er
Matreiðslumeistarar Perlunnar velja hráefni frá öllum
heimshornum til að útbúa bestu villibráð sem hægt
er að bjóða upp á. Nú getur þú notið þess besta í
villibráðarhlaðborði Perlunnar.
Fyrir mat er gestum boðið að bragða á sérvöldum
eðalvínum frá Chile og Argentínu.
Góð tækifærisg
jöf!
Jólahlaðborð Perlunnar hefst 19. nóvember
Tilboð mán.-þri. 6.890 kr. — Verð: 7.890 kr.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki