Fréttablaðið - 23.10.2009, Blaðsíða 8
8 23. október 2009 FÖSTUDAGUR
1 Hvenær á að taka endur-
skoðaða áætlun Íslands fyrir á
stjórnarfundi AGS?
2 Hvað hefur Liverpool nú
tapað mörgum leikjum í röð?
3 Hvaða íslenska söngkona
reynir nú fyrir sér í sænska
Eurovision?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 34
ÞEIR SPARA
MEST SEM SKRÁ
SIG STRAX
-15%
Dekkja-, smur- og
viðgerðaþjónusta
Reiknaðu hvað þú sparar
og skráðu þig á N1.is.
Skráðu þig í Sparitilboð N1 og lækkaðu
rekstrarkostnað bílsins um tugi þúsunda
króna á næstu 12 mánuðum.
Rúðuþurrkur
NeoForm. Ný þurrkublöð frá Trico
NÝ ÚTGÁFA af rúðuþurrkum frá
FÓLK „Auðvitað er þetta ansi stuttur
fyrirvari, en maður hleypur nú til
fyrir góða kúnna,“ segir Birna
Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri
hjá RB-Rúmum í Hafnarfirði.
Fyrirtækið lauk í gær við smíði
á rúmi fyrir hæsta mann heims,
hinn tyrkneska Sultan Kösen, sem
kom til landsins í gær í tilefni af
útkomu nýjustu heimsmetabókar
Guinness. Fréttablaðið sagði frá
því í gær að GÁ Húsgögn hefðu
sérsmíðað stól fyrir Kösen.
Rúmið sem RB-Rúm smíðuðu
fyrir kappann er 1,60 metrar á
breidd og 2,70 metrar á lengd en
Kösen er sjálfur tæplega tveir og
hálfur metri á hæð. Rúminu og
stólnum var komið fyrir í herbergi
á Hótel Loftleiðum í gær, en þar
mun Kösen dvelja meðan á heim-
sókn hans stendur. - kg
Sérsmíðaður stóll og rúm fyrir hávaxnasta mann heims á Hótel Loftleiðum:
Rúm Kösens 1,60 sinnum 2,70
UPPBÚIÐ RÚM Starfsmaður Hótels Loftleiða mátaði rúm Sultans Kösen í gær og eins
og sést er plássið yfrið. FRÉTTABLAÐIÐ PJETUR
FJÁRMÁL Eftirlitsnefnd með fjár-
málum sveitarfélaga hefur sent
sex sveitarfélögum erindi vegna
slæmrar fjárhagsstöðu sem fram
kemur í ársreikningum fyrir árið
2008. Skuldir á íbúa þar eru frá því
að vera tvöfalt hærri en að með-
altali í landinu í að vera tæplega
þrefalt hærri.
Sveitarfélögin eru: Álftanes,
Fjarðabyggð, Reykjanesbær,
Borgarbyggð, Hafnarfjarðarbær
og Grundarfjarðarbær. Frétta-
blaðið hefur heimildir fyrir því að
sveitarfélögin gætu orðið fleiri.
Staða Álftaness er verst, en
heildarskuldir og skuldbindingar
sveitarfélagsins nema um tveimur
milljónum króna á íbúa. Sama tala á
landinu er að meðaltali 700 þúsund.
Álftnesingar skulda því tæplega
þrefalt meira en landsmenn að
meðaltali. Í bréfi nefndarinnar til
sveitarfélagsins segir að ekki verði
annað séð en að fjármál sveitarfé-
lagsins stefni í óefni.
Skuldir og skuldbindingar
Fjarðabyggðar nema 1.750 þús-
und krónum á hvern íbúa, 1.598
í Reykjanesbæ, 1.349 í Hafnar-
firði, 1.444 í Borgarbyggð og 1.337
í Grundarfirði.
Inni í þessum tölum eru í ein-
hverjum tilvikum skuldbindingar
vegna rekstrarleigusamninga. Með
því er átt við það þegar einkaaðilar
reisa eða kaupa mannvirki og bæj-
arfélagið gerir leigusamninga til
láns tíma. Þessar skuldbindingar
eru hæstar í Reykjanesbæ, tæpir
tólf milljarðar króna, en þar seldi
bæjarfélagið ýmis mannvirki.
Kristinn Guðlaugsson, forseti
bæjarstjórnar Álftaness, segir
stöðuna staðfestingu á gagnrýni
á störf fyrri meirihluta, en meiri-
hlutaskipti urðu þar á dögun-
um. Hann segir landakaup skýra
slæma skuldastöðu að mestu leyti
og þá sé rekstrarleiga nýrrar
sundlaugar íþyngjandi.
Lán sveitarfélagsins voru geng-
istryggð og rekstrarleigan er það
einnig. „Með skatttekjum eigum
við að geta rekið grunnþjónustu
sveitarfélagsins. En leiðrétting
varðandi gengið verður að koma
frá ríkisstjórninni.“
Árni Sigfússon, bæjarstjóri
Reykjanesbæjar, segir rekstur
ársins 2008 valda sérstökum vand-
ræðum nú. Gjöld hafi verið töluvert
umfram tekjur og svo hafi bæjar-
félagið brugðist fljótt við atvinnu-
leysi og aukið framkvæmdir.
- kóp
Staða sex sveitarfé-
laga þykir alvarleg
Sex sveitarfélög eru til skoðunar hjá nefnd um fjármál sveitarfélaga. Skuldir á
íbúa eru þar margfalt hærri en á landsvísu. Álftnesingar skulda þrefalt meira
en landsmenn að meðaltali og þykir þar stefna í óefni.
HEILBRIGÐISMÁL Barn á höfuðborgar-
svæðinu sýktist nýverið af völdum
skógarmítils. Sýkingin greindist í
tæka tíð og gengst barnið undir
viðeigandi meðferð.
Ef sýking af völdum skógarmítils
greinist ekki geta hlotist af alvar-
leg veikindi. Veiran leggst á tauga-
kerfið og getur skaðað bæði mænu
og heila.
Samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins á ekkert af þessu við um
tilvikið sem greinst hefur hér; talið
er víst að barnið nái sér að fullu.
Erling Ólafsson, skordýrafræð-
ingur hjá Náttúrufræðistofnun
Íslands, segir að skógarmítill hafi
tekið sér bólfestu á Íslandi með
hlýnandi loftslagi. Honum hafi um
leið fjölgað mjög annars staðar á
Norðurlöndunum. Erling segir að
í ljósi aðstæðna hafi aðeins verið
tímaspursmál hvenær sýkingar-
tilfelli kæmi upp. Kveðst hann ótt-
ast að heilbrigðiskerfið sé almennt
ekki búið undir að takast á við
þetta nýja vandamál.
Siv Friðleifsdóttir, þingmaður
Framsóknarflokks og fyrrver-
andi heilbrigðisráðherra, deilir
þeim áhyggjum með Erling. Hefur
hún lagt fram fyrirspurn um málið
til heilbrigðisráðherra. „Þetta er
vandamál sem er að festa rætur
og ég tel mikilvægt að heilbrigð-
isþjónustan geti greint þau tilvik
sem koma upp og almenningur sé
á varðbergi,“ segir Siv. - bþs
Smádýr sem geta haft áhrif á heilsu fólks hafa numið hér land vegna hlýnunar:
Barn sýktist af völdum skógarmítils
REYKJANESBÆR Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, segir reksturinn árið 2008 valda miklum vanda nú. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FJÖLMIÐLAR Um hundrað manns
hafa sótt um að gerast „marijú-
ana-gagnrýnendur“ fyrir banda-
ríska dagblaðið Westword, sem
kemur út í Denver í Colorado í
Bandaríkjunum. Colorado er eitt
14 ríkja Bandaríkjanna sem leyfa
sölu á kannabisefnum til lækn-
inga. Gagnrýnandinn þarf því að
vera haldinn kvilla, geti fengið
lyfin löglega og borgi þau sjálfur.
„Þetta snýst ekki um að meta
gæði lyfsins, heldur um að meta
gæði stofnunarinnar [sem selur
það],“ segir í tilkynningu: „Við
getum ekki verið með gagnrýn-
anda sem er skakkur allan tím-
ann.“ BBC greinir frá þessu. - kóþ
Auglýst eftir gagnrýnanda:
Margir vilja
meta marijúana
SKÓGARMÍTILL
Skógarmítill er blóðsuga á spendýr-
um sem heldur sig í gróðri, einkum
í skógarbotnum. Þegar hann vantar
blóð skríður hann upp í gróðurinn og
krækir sig við blóðgjafa, sem er oftast
meðalstórt eða stórt spendýr. Lífshætt-
ir skógarmítils á Íslandi eru ókannaðir
en flestir hafa fundist á mönnum og
hundum. Skógarmítlar hafa fundist hér
frá því snemma sumars.
VEISTU SVARIÐ?