Fréttablaðið - 23.10.2009, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Brynhildar
Björnsdóttur
Í dag er föstudagurinn 23. okt-
óber 2009, 296. dagur ársins.
8.43 13.12 17.40
8.35 12.57 17.17
Nú líður að jólaverslun með til-heyrandi auglýsingum, útbíuð-
um í jólatrjám og jólasveinum,
löngu áður en það er einu sinni
hægt að láta börn undir sex ára
telja niður daga sem eru þrisvar
sinnum fleiri en tær og fingur.
AÐ vanda munu þrír helstu
verslunar kjarnar höfuðborgar-
svæðisins keppa um hylli neytenda
(hylli neytenda er einn uppáhalds-
frasinn minn) með því að bjóða
betri kjör, meiri söng, fleiri pipar-
kökur og mörg tonn af ókeypis
skyndi jólaskapi sem verður úðað
út í mengað stórborgarloftið. Við
þessi árlegu tímamót er vert að
skoða hvernig kjarnarnir þrír
taka á móti viðskipta vinum sínum
og kunningjum.
KAUPMENN við Laugaveg hafa
löngum kvartað yfir því að vera
ekki nógu vinsælir hjá Íslending-
um á veturna. Þeirri kynslóð sem
nú ber uppi efnahag landsins og
þar af leiðandi jólaverslunina er
sennilega enn í fersku minni að
fjúka um Laugaveginn í kafalds-
byl og stinga sér öðru hverju inn
í pínulitlar, troðfullar, sjóðheitar
búðir þar sem maður var alltaf
með rassinn á einhverjum full-
orðnum í andlitinu.
RÓMANTÍK Laugavegarins er
samt augljós allan ársins hring,
einkum um jólaleytið. Þegar beygt
er inn á Laugaveg af Snorrabraut
blasir hins vegar við stóreflis
ljósaskilti frá innheimtuþjónust-
unni Intrum sem minnir vegfar-
endur á að eyða ekki um efni fram,
annars verði allur varningurinn
endurheimtur. Ekki gera ekki neitt
en ekki gera of mikið heldur.
YFIR Smáralindinni gnæfir
Deloitte-turninn og sést úr öllum
áttum. Skilaboð turnsins eru
einföld og þarfnast ekki endur-
skoðunar: hér geturðu fengið allt
sem hugurinn girnist, svo kemurðu
bara með kvittanirnar til okkar og
við sjáum um endurgreiðslu frá
skattinum.
ÞEGAR að Kringlunni er komið er
helsta kennileitið Hús verslunar-
innar, myndarleg og rismikil bygg-
ing sem sendir mjög ákveðin skila-
boð með löngutangarlíki til himins:
hér skal verslað, hugsum ekki um
óþarfa smámuni eins og hvort við
eigum fyrir því. Beint á móti Húsi
verslunarinnar er svo trygginga-
félag, svona til að hnykkja á því að
þetta reddast. Allt saman.
KANNSKI Laugavegurinn verði
betur sóttur fyrir þessi jól en
undanfarin ár.
Kaupmátturinn
og dýrðin