Fréttablaðið - 30.10.2009, Side 49
30. október föstudagur 5
og skoða náttúruna hefur kennt
mér margt. Náttúran er skap-
andi og óútreiknanleg og fer
fram á að við séum sveigjan-
leg. Hér á Íslandi er náttúran
alltumlykjandi og umhverfið
er ekki manngert á sama hátt
og á mörgum öðrum stöðum.
Við Íslendingar höfum þurft
að aðlaga okkur að þessum
náttúruöflum sem hér eru að
verki og það hefur djúp áhrif
á hver við erum og hvernig
við hugsum.“
TEIKNAÐAR MINNINGAR
Nýlega setti Katrín upp
sýningu í Stokkhólmi sem
hún kallaði „Illustrated
Reminders“. Á sýning-
unni voru stór veggspjöld
af stafrænni náttúru Katr-
ínar en auk þess sýndi hún
glefsur úr heimi sínum í
handteikningum. Þeim lýsir
Katrín sem teiknuð-
um minningum eða
minni. „Hugmyndin
var sú að gerast land-
könnuður og teiknari
náttúruvísinda í eigin
náttúru. Hingað til hef
ég leyft þessum heimi
að flæða og vaxa af
sjálfu sér, en núna er
ég að einbeita mér að
því að greina náttúr-
una betur og skoða
hvernig hlutirnir
tengjast. Þessi
náttúra er
í s í f e l l d r i
þróun,
plöntur og
dýr umbreyta sér og
þróast hiklaust úr
takti við Darwin-
kenninguna. Það
þarf sérstaklega að fylgjast með
þessu. Margar af verunum í þess-
ari náttúru hafa auk þess orðið
áhuga á að tjá sig og eru farnar
að banka upp á hjá mér svo ófrið-
ur er af.“
Katrín hefur tekið þátt í fleiri
sýningum á árinu. Í haust var
hún meðal annars gestalistamað-
ur á Nordisk Panorama og hann-
aði plakat og allt útlit hátíðar-
innar, sem meðal annars fól í sér
lukkudýr. „Þessi gaur með eyrun
er vísun í unga kvikmyndagerðar-
manninn með kraftadelluna, unga
ofurhuginn sem eru allir vegir
færir og hefur óþrjótandi orku.“
LÍFIÐ Á 21. ÖLDINNI
Kostir þess að lifa og starfa á 21.
öldinni eru að Katrínar mati ótví-
ræðir. Hún hefur búið víðs vegar
um heim, nú síðast um nokkurra
ára skeið í Taívan og Hong Kong.
„Við lifum á spennandi tímum
sem gera okkur kleift að vera opin
og kynnast heiminum sem aldrei
fyrr. Veraldarvefurinn er eitt af
undrum verald-
ar, í gegn-
u m h a n n
höfum við
a ð g a n g a ð
stærsta bókasafni
heims og getum
verið í beinni teng-
ingu við fólk
a l l s s t a ð -
ar í heim-
inum. Og við
h ö f u m t æ k i -
færi til að ferð-
ast sem aldrei fyrr.
Ég lít á mig sem ferða-
lang sem ferðast hið innra
og hið ytra. Að vinna sem
hönnuður í umhverfi 21.
aldar kefst þess að við
séum opin, sveigjan-
leg og teygjanleg.
Til að mynda er
skrifstofa mín
að einhverjum
hluta til í sýndar-
veruleikanum
sem partur
af þessu stóra
Neti sem heimurinn er núna.“
JAÐARSAMFÉLAGIÐ ÍSLAND
Flakkið um heimsbyggðina hefur
síður en svo útþynnt aðdáun og
trú Katrínar á fósturjörðinni, held-
ur þvert á móti. Hún telur sérstöðu
Íslands mikla í alþjóðasamfélag-
inu. „Við lifum á breytingatímum.
Nú eru nýjar áherslur í því hvern-
ig við göngum um jörðina og um-
hverfið og hugsum um okkur í
samhengi við aðra á jörðinni. Mér
sýnist áherslan alls staðar í heim-
inum vera í auknum mæli á ræt-
urnar og að virkja sérstöðu. Sér-
staða okkar hér á landi felst í því
að við erum nútímasamfélag en
jafnframt jaðarsamfélag. Náttúr-
an, víðáttan og tómið hér er öflug
uppspretta ímyndunaraflsins, eins
og við sjáum glögglega ef litið er
til þess hvernig bankastarfsemin
og útrásin voru virkjuð en einn-
ig ef litið er til sagnahefðar okkar
og tónlistar. Það er mikilvægt að
leyfa skapandi greinum að þróast
í næði ef góðir hlutir eiga
að gerast, því þeir ger-
ast hægt. Dálítið eins
og með akurinn, þú
þarft að rækta hann
og sinna og gefa
honum tíma, til að
búast við góðri upp-
skeru.“
Sími : 568 5305 • Grandagarði 5
Opið v i rka daga
900 - 1800
Laugardag
900-1300
Arnar, Aníka
og Mat t i
bjóða ykkur
velkomin
mig
k efni úr ætihvönn og blágresi.
em vilja viðhalda góðu minni.
agaMemo fyrir gott minni!
SagaMemo
www.sagamedica.is
gar þú kaupir glas af SagaMemo
færðu annað á hálfvirði.
ð gildir 29. október - 1. nóvember 2009.
Helgartilboð Heilsuhússins
ðustíg, Kringlunni, Smáratorgi, Lágmúla, Selfossi og Akureyri
NÁTTÚRU
Stafræn náttúra Eitt af
veggspjöldunum Katrínar úr sýningunni
„Illustrated Reminders“.
Handteikningar Nýlega setti Katrín upp
sýningu í Stokkhólmi sem hún kallaði
„Illustrated Reminders“. Þar sýndi hún
stór veggspjöld af stafrænni náttúru auk
handteikninga sem hún lýsir sem teikn-
uðum minningum eða minni.