Fréttablaðið - 31.10.2009, Blaðsíða 80

Fréttablaðið - 31.10.2009, Blaðsíða 80
52 31. október 2009 LAUGARDAGUR „Nei, ég tel ekki að ég sé að ganga á bak orða minna,“ segir Bubbi Morthens en eins og kom fram í Fréttablaðinu í gær tekur Bubbi þátt í forkeppni Söngvakeppni Sjóvnvarpsins, Eurovision, ásamt nágranna sínum og vini, Óskari Páli Sveinssyni. Fræg ummæli Bubba frá árinu 2007 voru rifjuð upp í kjölfarið en þá sagðist hann aldrei ætla að taka þátt í Eurov- ision. Bubbi dregur aðeins í land með þessi orð. „Höfum þetta þá svona: Ég sé það ekki fyrir mér að ég muni syngja í Eurovision. Ég hef hins vegar aldrei verið feiminn við að viðurkenna að ég hafi haft rangt fyrir mér og er ófeiminn við að skipta um skoðun,“ segir Bubbi. Bubbi hefur sterkar skoðanir á keppninni. Að hans mati eru árin 1975 til 2007 einhver mestu hörm- ungarár í sögu hennar. „En frá árinu 2007 er eins og eitthvað hafi gerst. Maður fór að heyra lög sem höfðu einhvern karakter og þjóðir á borð við Frakka sýndu smá metnað. Ég meina Bretar sendu eitt fremsta dægurlagaskáld heims til leiks í fyrra [Andrew Lloyd Webber] og hann sat sjálfur við píanóið,“ segir Bubbi og bætir því við að hann hafi verið ákaflega hrifinn af laginu frá Tékklandi í fyrra. Bubbi segir útkomu lagsins velta mjög mikið á því að flytjandinn sem hann og Óskar hafa í huga láti slag standa. „Ég hlakka bara mikið til, mér finnst þetta spennandi og ég anda alveg sérstaklega rólega af því að ég mun ekki syngja lagið.“ - fgg Tónlist ★★★ Þorvaldur Þór Þorvaldsson Þorvaldur Þór Þorvaldsson Bragðgóður bræðingur Þorvaldur Þór Þorvaldsson trommu- leikari er tiltölulega nýkominn frá Bandaríkjunum þar sem hann var við tónlistarnám og lék með ýmsum tón- listarmönnum. Þessi fyrsta plata hans hefur að geyma ellefu lög sem hann samdi á meðan hann bjó enn vestan hafs. Tónlistin er blanda af djassi, rokki og poppi með bragðefnum héðan og þaðan. Þótt hún sé ekkert byltingar- kennd og minni t.d. á köflum nokkuð á djassrokkbræðing áttunda áratugarins þá er hún samt vel heppnuð. Laga- smíðarnar eru fínar og nokkuð fjölbreyttar. Hljóðfæraleikurinn er líka fyrsta flokks, enda valinn maður í hverju rúmi. Þorvaldur og bassaleikarinn Jon Estes sjá um grúvið og gera vel, en ofan á það prjóna Eyþór Gunnarsson á píanó og bræðurnir Óskar og Ómar Guð- jónssynir á saxófón og gítar. Þeir eiga allir góða spretti og skipta með sér framlínunni að hætti djassspilara, en sérstaka gleði veitir gítarleikur Ómars mér. Fæ ekki nóg af honum. Það er gott flæði í þessari tónlist, framvindan er þægileg og áreynslulaus. Platan er aðgengileg og tónlistin hittir oft beint á tilfinningaskynjarana. Bragðgóður bræðingur og fín frumsmíð. Trausti Júlíusson Niðurstaða: Aðgengileg og vel spiluð blanda af djassi, poppi og rokki. Plata sem ætti að geta höfðað til margra. BUBBI MORTHENS Segist í dag ekki sjá það fyrir sér að hann muni syngja í Eurovision. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Er ekki að fara á bak orða minna „Mér fannst bara kominn sá tími í lífi mínu að ég þyrfti að fara að gera eitt- hvað krefjandi. Þess vegna fór ég í íslensku í Háskólanum,“ segir Jónsi í Í svörtum fötum. „Ég veit svo sem ekki hvort ég klára þetta, en þetta er mjög gaman. Ég var síðast í skóla einhvern tímann á síðustu öld og finnst ég hafa yngst rosalega upp við þetta. Mér líður eiginlega eins og fermingarbarni.“ Jónsi hamast nú við að skrifa ritgerð og umfjöllunarefnið er nálægt áhuga- málinu – góðir og slæmir popptextar. Hljómsveitin Í svörtum fötum heldur upp á tíu ára afmæli í vor og ætlar að gefa út safnplötu af því tilefni. Jónsi segir að tvö ný lög muni líta dagsins ljós í millitíðinni. - drg Jónsi lærir íslensku LÍÐUR SEM FERMINGARBARNI Jón Jósep Snæbjörnsson, Jónsi í Í svörtum fötum. Sagan um Bítlana og leið sveit- arinnar til heimsfrægðar hefur nú þegar verið umfjöllunarefni nokkurra kvikmynda. Ein bætist við bráðlega. Hún heitir Nowhere Boy og er byggð á bók Júlíu Baird, hálfsystur Lennons, Imagine this: growing up with my broth- er John Lennon. Myndin fjallar um unglingsárin í Liverpool, sam- band Johns við foreldra sína og Paul McCartney og fyrstu spor- in í músikinni með fyrirrennara Bítlanna, The Quarrymen. John Lennon leikur hinn óþekkti Aaron Johnson, sem er ekkert sérlega líkur Lennon í útliti, en leikstjóri myndarinnar er Sam Taylor-Wood. Þetta er hans fyrsta mynd í fullri lengd. Ný mynd um Lennon ÚR NOWHERE BOY John Lennon eins og hann lítur út í myndinni. Leikarinn Dennis Hopper hefur greinst með krabbamein í blöðru- hálskirtli. Hann hefur aflýst þátttöku sinni í listasýningu í Ástralíu vegna veikindanna. Hopper mun gangast undir meðferð í Kaliforníu og vonast umboðsmaður hans til að allt gangi að óskum. Leikarinn, sem er 73 ára, var lagður inn á spítala í New York fyrir nokkru vegna flensuein- kenna og ofþornunar. Þá kom krabbameinið í ljós. Hopper er þekktastur fyrir leik sinn í mynd- unum Easy Ryder, Apocalypse Now og Blue Velvet. Undanfarið hefur hann leikið í sjónvarpsút- gáfu kvikmyndarinnar Crash. Hopper með krabbamein DENNIS HOPPER Hinn 73 ára leikari hefur greinst með krabbamein í blöðru- hálskirtli. Sífellt færist í vöxt að konur taki sig saman og spili fót- bolta. Hingað til hefur slíkt aðallega loðað við karlkynið en sjónvarpskonan Þóra Arnórsdóttir telur kven- kynið alveg eins eiga rétt á þessum „heilaga“ tíma. Sjónvarpskonan Þóra Arnórsdóttir hefur tekið fram skóna á nýjan leik eftir töluverða fjarveru frá fótbolta. Hún æfir í Hlíðaskóla ásamt vösk- um hópi kvenna undir nafninu FC Þú sparkar eins og stelpa. Hart er tekist á á æfingum enda eru sérstök verðlaun í boði á árshátíð félagsins fyrir flottustu áverkana. Þóra segir konur eiga ekkert síður rétt á „heilögum“ tíma eins og karlarnir og bumbuboltinn þeirra. „Mennirnir geta farið á þess- ar æfingar hvernig sem ástandið er heima fyrir af því að þetta er „heilagur tími“. Konur geta alveg eins átt svoleiðis stundir,“ segir Þóra sem æfði frá unga aldri með Breiðabliki þar til hún tók hand- boltann fram yfir. Sjónvarpskonan hefur engu síður haft brennandi áhuga á knattspyrnu og lék nokkra leiki með ungmennafélaginu Drangi og bjó einnig til lítið lið í Washington, þegar hún var þar við nám, sem var blandað körlum og konum. Þegar Þóra sneri heim var lítið um svona „utandeildarlið“ en Þóra telur árangur kvennalandsliðsins hafa kveikt í margri kvennakemp- unni. „Þetta eru alveg þvílíkar fyr- irmyndir. Ég fór með stjúpdætur mínar þrjár á heimildarmyndina og þær voru alveg agndofa.“ Enn er hins vegar ekki komin formleg utandeild í kvennaknattspyrnu eins og hefð hefur verið fyrir hjá körl- um en sjónvarpskonan bindur vonir við að það geti orðið að veruleika í náinni framtíð. „Það væri alveg frábært, að geta æft einu sinni í viku og svo spilað einn leik. Það er ekki mikið meiri tími sem maður hefur í þetta.“ freyrgigja@frettabladid.is Þóra tekur fram skóna á ný Á ÍTALSKAN HÁTT Þóra reimar á sig skóna og er klædd í landsliðstreyju Ítalíu. Hún segir konur vel geta átt heilagan tíma eins og karlarnir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FRÆKNAR FÓTBOLTAHETJUR Þóra í miðj- unni ásamt þeim (fr.v) Ágústu Sigmars- dóttur, Bryndísi Pétursdóttur, Sólveigu Ingadóttur og Bryndísi Sveinsdóttur. Á FLEYGIFERÐ Sjónvarpskonan Þóra Arnórsdóttir hefur tekið fram skóna á nýjan leik eftir að knattspyrnuhæfileikar hennar höfðu legið í dvala í dágóðan tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN YUMMIY U M M I ALWAYS SO YUMMI Hverfi sgata 123, S. 588-2121 www.yummiyummi.net K1, Kao Na Kai Mild Chicken with coconut milk rice - Broiled chicken topped with cucumber, carrot and tasty house sauce over rice. K2, Kao Moo Daeng Mild Roasted pork, boiled egg, cucumber and special house sauce over rice. K3, Kao Pad Panang Hot Fried rice with chicken stir fried in panang curry sauce K4, Fried rice rolls Medium Fried rice with chicken and egg wrapped in roll skin then deep fried K5, Stir fried noodles Hot yummi suki with Chicken and egg N1, Poor Boy Noodle Hot Flat rice noodle with tofu and vegetables in a spicy soy-sauce based soup. N2, Bah Mee Mild Egg noodles with chicken, roasts pork or tofu. N3, Guey Teaw Nam Medium Flat rice noodle with chicken, roasts pork or tofu. N4, Sen Mee Nam Medium Rice Vermicelli noodles with chicken or tofu N5, Guey Teaw Ruer Hot Rice noodles with stewed beef or chicken in a Thai spicy soy sauce-based soup. N6, Guey Teaw Nuer Hot Rice noodles with stewed beef in a Thai spicy soy sauce-based soup. THAI NOODLES SOUPS Noodles bowls with or without soup broth. For 699.- Special for 999.- GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA! Ath. Nýr matseðill frá og með 2. nóvember 2009. New Menu for 999.-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.