Fréttablaðið - 31.10.2009, Blaðsíða 76

Fréttablaðið - 31.10.2009, Blaðsíða 76
48 31. október 2009 LAUGARDAGUR utlit@frettabladid.is DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA Anna Margrét Björnsson OKKUR LANGAR Í … Nýja Nutritious-meikið frá Estée Lauder sem er fullkomið fyrir vetrarhúð sem á það til að þorna og verða erfið viðfangs. Undur- falleg áferð. Geggjað eldrautt varagloss frá Estée Lauder fyrir hrekkjavökuna í kvöld. Wonder-púðrið frá Make Up Store sem er eitt það besta sem við höfum prófað, verður aldrei matt heldur gæðir húðina skínandi ljóma. Nú er skammdegið að færast yfir og augljóst að allur snefill af frekn- um sumarsins er á braut. Í dag er hrekkjavakan og upplagt að nota fölt hörund haustsins í stíl við búninginn í kvöld. En undur og stór- merki – það virðist enn sem helmingur þjóðarinnar sé nýkominn frá Tenerife. Það hefur mikið verið rætt um skinkurn- ar svokölluðu undanfar- ið, stúlkur sem tóku við af hnökkunum í sólar- bekkja- og „spray tan“- aðdáun sinni en ég furða mig enn þá á þeirri tísku að reyna að dekkja hör- undslit sem mest á sem ónáttúrulegastan hátt. Ég hreinlega skil ekki hvers vegna sætar stúlkur vilja virkilega taka konur eins og Victoriu Beckham til fyrirmyndar og verða undarlega appelsínugular (jú eða hreinlega kúka- brúnar) á lit. Það er bara ekkert aðlaðandi við lík- ama sem er gæddur þeirri gervibrúnku sem fæst af ljósabekkjum eða enda- lausum dollum af brúnku- kremi. Nú er ég alls ekk- ert að segja að sólarpúður eða brúnkukrem eigi að vera á einhverjum bann- lista, það er að segja, yfir sumartímann. Örlítil dustun af slíku púðri á nef og kinnar er falleg til að gylla húðina en ég skil ekki hvers vegna orðatiltækið „less is more“ virðist ekki hafa síast inn hjá svo mörgum. Það er ekkert skinkulegt við að farða sig eða lita á sér hárið svo lengi sem það er gert á náttúrulegan hátt. Útlitið sem tröllríður „skinkunum“ svokölluðu með ofurbrúnu andliti, ofurlituð- um augabrúnum og annaðhvort ofurstrípuðu eða blásvörtu og gervi- legu hári er bara allt of algengt og gerir það að verkum að allar þessar stúlkur líta út fyrir að vera nákvæmlega eins, klónaðar af hver ann- arri. Hugtakið náttúruleg fegurð virðist vera allfjarri og útkoman lík- ist frekar klámstjörnum en því sem birtist á síðum tískublaðanna. Ef maður er ekki af suðrænum ættum þá skil ég ekki hvers vegna það á að þykja ljótt að vera fölur á brún og brá. Slík húð hefur oft á tíðum verið í hávegum höfð og það má líka taka fram að hún er þá iðulega minna hrukkótt, fínlegri og fallegri heldur en sólbrún húð. Það er svo auðvitað hægt að lífga upp á andlitið með dálitlum kinnalitaroða en í guðanna bænum, sparið púðrið! Föla árstíðin Blúnda sem oft á tíðum er tengd við viktoríutímabilið var færð í nútímalegan og kvenlegan búning hjá mörgum hönnuðum fyrir vet- urinn. Stella McCartney notaði hana óspart í dásamlega fögrum kjólum og toppum og Erin Fetherston notaði hana ásamt siffoni til að framkalla kvenlegan „elegans“. Sniðin voru jafnframt mjög kvenleg með áherslur á mitti og mjaðmir. Litirnir voru klassískir – svart, hvítt og mjúkir bleikir tónar. - amb BLÚNDUR OG SIFFON Í VETUR KVENLEGT OG RÓMANTÍSKT GEGNSÆTT Gullfalleg samsetning af blúndutoppi og sokkabuxum með síðu pilsi frá Stellu McCartney. VÍTT Skemmtileg samsetning af siffon- toppi, víðu ballerínupilsi og slaufu í hárinu hjá Erin Fetherston. LILLABLÁTT Ævintýralegur kjóll úr lilla- bláu siffoni með silfurlitu víðu pilsi hjá Erin Fetherston. ELEGANT Flottur svartur kjóll með silfurbrydd- ingum og áherslu á mjaðmir hjá Erin Fetherston. PÚFFERMAR Blúndu- skyrta við aðsniðið hnésítt pils frá Stellu McCartney. > Í DAG VERÐUR GLÆSILEG TÍSKUSÝNING Í FRÍKIRKJUNNI KLUKKAN 17. Sýndir verða munúðarfullir kjólar frá skaparanum, draumkennd höfuðföt frá Thelmu og dúnmjúkir silkiklútar frá Go With Jan. Spennandi viðburður sem enginn tískuunnandi ætti að láta fram hjá sér fara. Þau voru ljós á leiðum okkar Tónlistardagskrá við kertaljós í Fossvogskirkju á Allra heilagra messu sunnudaginn 1.nóvember á degi syrgjenda. kl. 14.00-16.00. Dagskrá 14:00 Óskar Guðjónsson og Ómar Guðjónsson leika saman á saxófón og gítar. 14.30 Sólveig Samúelsdóttir syngur við undirleik Lenku Mátéova 15.00 Ólöf Arnalds syngur við eigin undirleik. 15.30 Voces Masculorum syngja undir stjórn Kára Þormar. Aðgangur er ókeypis og frjálst að koma og far að vild. Starfsfólk kirkju- garðann er til leiðsagnar og friðarkerti Hjálparstarfs kirkjunnar til sölu. Reykjavíkurprófastsdæmin og Kirkjugarðar prófastsdæmanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.