Fréttablaðið - 31.10.2009, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 31.10.2009, Blaðsíða 38
4 fjölskyldan minningar ...ylja okkur á síðkvöldum Myndverkakonan Salbjörg Rita Jónsdóttir býður upp á barnamyndatök-ur á vettvangi en hún vill helst mynda börn í umhverfi sem þau þekkja og líður vel í. Ljós- myndaþjónustan hefur fengið nafn- ið Köttur úti í mýri og lýsir hún til- urð hennar með eftirfarandi hætti á heimasíðunni www.kottur-uti-i- myri.com: „Köttur úti í mýri kemur við sögu í niðurlagi margra ævintýra. Sem barn opnaðist mér marglitur heimur þjóðsagna og ævintýra í safni Jóns Árnasonar. Upp frá því langaði mig að segja ævintýri. Ég lærði hönnun og listir í sjónrænum miðlum í Þýskalandi og nota því frekar myndir en orð til að segja frá.“ Salbjörg hefur lengi haft gaman af því að mynda börn og hefur hug- myndin blundað í henni um margra ára skeið. Hún reynir oftast að láta sem minnst fyrir sér fara til að ná augnablikum þegar börnin eru sem eðlilegust. „Það eykur líkurn- ar á því að ég nái að festa á mynd einhverja þá töfra sem þau upp- lifa.“ Salbjörg er ekki ljósmynd- ari í tæknilegum skilningi þess orðs þótt hún noti myndavélina til að draga upp portrett af fólki. „Ég byggi á bakgrunni mínum í hönnun og listum til að ljá ljósmyndunum ákveðinn blæ.“ Salbjörg reynir að skapa ákveðna stemningu með vali á sjónarhorn- um og linsum. Þá eyðir hún dágóð- um tíma í eftirvinnsluforritum til að auka áhrif ljóss og skugga og draga fram ákveðna liti. Í sumum tilfellum færir hún hluti úr stað eða margfaldar myndefnið svo dæmi séu tekin. „Ég reyni að fanga raun- veruleikann sem ég skerpi síðan á með eftirvinnslu og oft verð- ur útkoman eilítið ævintýraleg. Umfram allt reyni ég þó að mynda börnin við að gera eitthvað sem þau hafa gaman af til að myndin verði minning um það. Stundum hentar þó betur að taka uppstilltar myndir og tek ég þær vitanlega líka að mér ásamt því að mynda börn við hin ýmsu tækifæri.“ Nánari upplýsing- ar er að finna á heimasíðunni. - ve HVERSDAGSLEG ævintýri fest á filmu Salbjörg Rita Jónsdóttir fangar hversdagsleg ævintýri barna á filmu. Hún skerpir á þeim með eilítið ævintýralegri útkomu en leggur þó höfuðáherslu á að myndirnar verði minn- ing um það sem börnin hafa gaman af að gera. Hefur lengi haft ánægju af því að mynda börn Hugmyndin að ljósmynda- þjónustunni hefur blundað í Salbjörgu lengi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Í geimflaugaleik Ísar er hugfanginn af geimnum og ef vel er að gáð má sjá fljúgandi geimflaug á ferð. Margföldun Í sumum tilfellum færir Salbjörg hluti úr stað og margfaldar myndefnið. Prinsessa Dalía hefur gaman af prinsessum en Salbjörg tók af henni myndaseríu í prinsessuleik. M YN D /S A LB JÖ RG ÍS LE N SK A S IA .I S S FG 4 20 40 0 4. 20 08 www.lur.is 10:00 – 18:00mánfös Opið: lau 11:00 – 16:00 Frábært úrval sófa og hvíldarstóla Jól í október Jólasveinarnir í glugga Rammagerðarinnar hafa fylgt aðdraganda jóla lengi. Þó að ekki séu allir sáttir við jólaskreytingar í október er það skemmtileg tilbreyting fyrir börn og fullorðna að rölta fram hjá glugganum og komast í snemm- búið jólaskap. Hugað að föndri Ekki er jólaföndurráð nema í tíma sé tekið! Nú styttist í að það sé leyfilegt að fara að huga að jólaföndri fjölskyldunnar. Upplagt er að nota næstu vikur til þess að viða að sér efni í föndrið, könglum, rúllum undan klósettpappír og því sem til fellur. Hugmyndaflugið er eina hindrunin hér. Svo er tilvalið að hafa notalega föndurstund við upphaf aðventunnar og gera jólagjafir sem hitta örugglega í mark hjá stórfjölskyldunni, enda halda allir mest upp á heimagerðar gjafir að því er rannsóknir herma. INNRAMMAÐAR MINNINGAR Myndir af ættingjum og vinum eru fyrirtaks skraut á hverju heimili. Nú er um að gera að nota haustkvöldin til að framkalla nokkrar góðar myndir í stað þess að láta þær liggja í tölvunni um ókomna tíð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.