Fréttablaðið - 31.10.2009, Page 18

Fréttablaðið - 31.10.2009, Page 18
18 31. október 2009 LAUGARDAGUR UMRÆÐAN Ásta R. Jóhannesdóttir skrifar um Alþingi Íslenskt samfélag stendur á margan hátt á tímamótum. Hrun fjármálakerfisins hér á landi og ein dýpsta kreppa í íslensku efnahagslífi á síðari tímum leiðir ekki aðeins hug- ann að þeirri óráðsíu sem virðist hafa einkennt rekstur bankanna og margra fyrirtækja sem flugu hátt á veikburða útrásarvængjum heldur einnig að stjórnkerfinu í heild og þeim gildum sem það er reist á. Hrunið hefur enda leitt til mjög mikillar samfélagsumræðu um lýðræði og ríkisvald þar sem hlutverk Alþingis og tengsl þess við framkvæmdar- valdið hefur oft borið á góma. Lýðræðislegur grundvöllur stjórnsýslunnar Hér á landi liggur uppspretta opinbers valds hjá þjóðinni. Hún velur sér fulltrúa til setu á Alþingi, ekki aðeins til að ákveða hvaða lög eigi að gilda í landinu og hvernig fjármunum ríkisins skuli ráð- stafað, heldur ræður afstaða þingmanna einnig skipun ríkisstjórnarinnar. Ráðherrar, æðstu hand- hafar framkvæmdarvalds, verða að hafa traust meirihluta þingmanna og bera ábyrgð á embættis- athöfnum sínum gagnvart Alþingi og á þennan hátt fær starfsemi framkvæmdarvaldsins lýðræðislegan grundvöll til að starfa á. Þetta eru allt atriði sem ég tel að standa beri vörð um í okkar stjórnskipun. Ákveðnar skyldur fylgja aftur á móti þessari stöðu Alþingis. Það er hlutverk þess að fylgjast með því að starfsemi ríkisstjórnar og stjórnsýsl- unnar í heild samrýmist þeim áherslum sem þingið vill að stjórnvöld hafi að leiðarljósi. Á hinn bóginn verður ekki fram hjá því litið að mikil áhersla á myndun meirihlutastjórna hér á landi og flokks- hollusta þingmanna getur hamlað því að þingið haldi uppi virku eftirliti með ríkisstjórninni. Því er mikilvægt að Alþingi sé vakandi og hugi stöðugt að því hvernig rækja megi þetta lýðræðislega hlut- verk sitt. Reglur um þingeftirlit – ábendingar um úrbætur Til að varpa skýrara ljósi á eftirlitshlutverk þings- ins ákvað forsætisnefnd á síðasta ári að frum- kvæði forvera míns, Sturlu Böðvarssonar, að fela vinnuhópi undir forystu Bryndísar Hlöðversdótt- ur, aðstoðarrektors og forseta lagadeildar Háskól- ans á Bifröst, að fara yfir lagareglur sem fjalla um þing eftirlit, bera þær saman við reglur í nágranna- ríkjunum og koma með ábendingar um úrbætur. Umboð vinnuhópsins var víðtækt og átti hann að skila forsætisnefnd skýrslu að ári liðnu. Þessi skýrsla liggur núna fyrir og hafa niðurstöður vinnu- hópsins verið kynntar fyrir forsætisnefnd. Skýrslan er jafnframt birt á vef Alþingis og þannig aðgengi- leg almenningi. Í skýrslunni er bent á fjölmörg atriði sem hægt er að bæta og ýmsar hugmyndir reifaðar. Sum atriðin fela í sér tæknilegar lagfæringar en önnur miða að róttækari endurskipulagningu á starfsemi þings- ins. Athygli vekur t.d. hversu ófullkomnar reglur um upplýsinga- og sannleiksskyldu ráðherra eru hér á landi í samanburði við nágrannaríkin. Úr því verður að bæta enda afar mikilvægt að tryggt sé að ávallt séu lagðar réttar og nægilega greinargóðar upplýsingar fyrir Alþingi til að það geti gegnt lýð- ræðislegu hlutverki sínu. Þá er vert að vekja athygli á þremur atriðum sem koma fram í skýrslunni sem eiga að geta leitt til virkara eftirlits af hálfu þingsins þrátt fyrir ríka hefð fyrir meirihlutastjórnum og flokkshollustu þingmanna. Skýrari línur Í fyrsta lagi kemur fram í skýrslunni að hér vant- ar skýrari verkferla fyrir athugun mála þar sem upp koma álitamál um ákvarðanir ráðherra og vinnubrögð í stjórnsýslunni. Samkvæmt núgild- andi reglum er óskýrt hver á að hafa frumkvæði í málum af þessu tagi og hvernig þau eru meðhöndl- uð innan þingsins. Af þessum sökum á þingið erfitt með að komast að sameiginlegri niðurstöðu í slík- um málum sem er í raun óviðunandi fyrir alla aðila. Annars staðar á Norðurlöndum og víðar í Evrópu hefur meiri rækt verið lögð við þessi atriði og ljós- ara hvernig þingin standa að athugun á störfum ráðherra og stjórnsýslunnar. Mikilvægt er að skoða reynslu þeirra á þessu sviði. Auka þarf rétt minni hlutans Í öðru lagi er í skýrslunni bent á að auka megi möguleika stjórnarandstöðunnar til að hefja athug- un mála og kalla eftir upplýsingum sérstaklega innan þingnefnda, enda fellur það almennt í hlut stjórnarandstöðunnar að halda uppi virku eftir- liti og veita ríkisstjórninni aðhald. Aukin réttindi minni hlutans hljóta að vera sérstaklega mikilvæg hér á landi þar sem hefðin kennir okkur að leið- togar stjórnmálaflokkanna leggja allt í sölurnar til að mynda sem öflugasta meirihlutastjórn. Þá hafa reglur víða í nágrannaríkjunum verið tekin til end- urskoðunar með það að markmiði að tryggja betur réttindi stjórnarandstöðunnar og Evrópuráðið sam- þykkt tilmæli til aðildarríkjanna í þá veru. Gula spjaldið Í þriðja lagi er bent á að beita megi mildari úrræð- um en vantrausti eða ákæru til að koma á fram- færi athugasemdum eða gagnrýni þingsins á vinnubrögð í stjórnsýslunni, með öðrum orðum að hægt sé að grípa til gula spjaldsins í stað þess að þingmeirihlutinn geti aðeins veifað því rauða. Ef stjórnar þingmenn telja vinnubrögð sem ráðherra ber ábyrgð á ámælisverð er líklegra að þeir geti stutt slíka tillögu fremur en að lýsa yfir vantrausti á ráðherrann. Eins og bent er á í skýrslunni er þó ekki þörf á því að gera breytingar á reglum til að fylgja þessari ábendingu eftir, einstakir þingmenn og þingnefndir geta lagt fram þingsályktunartillög- ur þar sem viðhorf þingsins til málefna stjórnsýsl- unnar koma fram. Pólitískar hefðir og núgildandi regluumhverfi ýta þó ekki undir það. Eftirlitshlutverk Alþingis verður að styrkja Hér á landi er of algengt að álitamál um vinnu- brögð ráðherra og annarra stjórnvaldshafa, t.d. um embættaveitingar, endi með pólitískum ásökunum í þingsal án sanngjarnrar athugunar og yfirvegaðr- ar umræðu. Stjórnarmeirihlutinn stendur þá jafn- an með ríkisstjórninni og efnisleg niðurstaða fæst ekki í málið. Með því að leggja við hlustir og huga nánar að þeim atriðum sem hér hafa verið gerð að umtalsefni má ef til vill færa umræðuna upp úr farvegi flokkspólitískra átakastjórnmála af þessu tagi. Til að mæta sívaxandi kröfu um lýðræðisleg og málefnaleg vinnubrögð í íslenskum stjórnmálum er mikilvægt að áfram verði unnið með þær ábending- ar og tillögur sem koma fram í skýrslu vinnuhóps- ins. Hefur forsætisnefnd þegar samþykkt að bregð- ast við ábendingum vinnuhópsins með jákvæðum hætti og er vinna þegar hafin við undirbúning að breytingum á löggjöf sem miða að því að styrkja eftirlitshlutverk Alþingis. Hér er mikilvægt mál á ferðinni sem hefur sér- staka skírskotun til okkar nú. Bæta þarf lagaramm- ann um eftirlit Alþingis með störfum ráðherra og stjórnsýslunnar og styrkja þannig lýðræðislegan grundvöll stjórnskipunarinnar. Höfundur er forseti Alþingis. Eftirlitshlutverk Alþingis UMRÆÐAN Sigurður Magnússon skrifar um sveitar- stjórnamál Mörg sveitarfélög búa við fjárhagsvanda eftir efnahagshrunið sem má rekja til mistaka við einkavæðingu bankanna og eftirlitsleysi með fjár- málastarfi. Eignir sveit- arfélaganna rýrnuðu milli áranna 2007 og 2008 um 44 milljarða. Mik- ill viðsnúningur varð í tekjuafkomu eða um 21 milljarð króna. Mestur var hallinn hjá þeim sveitarfélög- um sem voru skuldugust. Á Álfta- nesi var 392 milljón króna hagnað- ur árið 2007 en 832 milljón króna tap árið 2008. Eigið fé sem hafði vaxið frá 2006, síðasta ári D-list- ans, úr 236 milljónum í 706 milljón- ir, brann upp í hruninu. Ríkisvald sem kemur bönkum og sparisjóð- um til aðstoðar hlýtur að taka á vanda sveitarfélaganna sem fara með u.þ.b. 30% af hinni opinberu stjórnsýslu í landinu og þurfa að verja störf og grunnþjónustu. Lán Álftaness voru um 1600 milljónir fyrir hrunið, þar af um 500 milljónir erlend lán. Miðað við gengi í haust voru erlendu lánin orðin um 1200 milljónir. Innlend lán hafa líka hækkað mikið vegna verðbólgu. Leiga íþróttamiðstöðv- ar sem er í eigu Fasteignar hefur hækkað en leigan er að hálfu geng- istryggð. Gengishrunið hefur því valdið miklu tjóni, sérstaklega þar sem fjárhagstaðan var veik fyrir. Með styrkingu krónunnar mun þetta tjón vonandi að hluta til ganga til baka. Í „Árbók sveitarfélaganna 2009“ greinir frá rekstri sveitar- félaganna árið 2008. Í Árbókinni eru upplýsingar um skuldir þeirra með skuldbindingum eins og þær voru í efnahag ársins 2008, í krón- um á hvern íbúa. Álftanes er þar með eina milljón króna og er í hópi með átta öðrum sveitarfélögum þar sem skuldir á íbúa eru yfir milljón, í þessum hópi eru m.a. Kópavogur, Hafnarfjörður, Fjarðarbyggð og Grundarfjarðabær, svo dæmi séu nefnd. Nítján sveitarfélög koma svo skammt á eftir með milli 700 þúsund til eina milljón króna á hvern íbúa. Hér að framan eru ekki taldar skuldir utan efnahags s.s. leigu- skuldbindingar. Að sjálfsögðu þarf að horfa til þeirra þegar greiðslu- geta er metin. Nægilegt veltufé frá rekstri þarf að vera til staðar til að standa undir lánum. Ekkert sveit- arfélag getur til lengdar fjármagn- að rekstur með lánsfé. Jafnframt þarf að horfa til langtímaáætlana en aðstæður sveitarfélaganna eru ólíkar. Hvað Álftanes varðar þarf ríkisvald að verða við kröfum um auknar jöfnunargreiðslur en til lengri tíma litið munu tekjustofn- ar styrkjast. Á Álftanesi er áætl- að að íbúum fjölgi á næstu árum úr 2500 í 3500 og munu skuldir og skuldbindingar á hvern íbúa lækka. Skattstofnar munu eflast og breikka með tilkomu atvinnulífs en byggð fyrir atvinnu- líf hefur verið skipulögð. Núverandi eignir í lóðum og byggingarlandi munu mæta skuldum með frek- ari uppbyggingu. Fjárhagsvandi margra sveitarfélaga hefur auk- ist eftir hrunið. Á Álfta- nesi varð röng stefna D- listans um árabil til þess að auka á vandann. D-listinn fylgdi markaðshyggju í skipulagsmálum og nýtti ekki hagvaxtarskeiðið frá 2002-2006 til að styrkja eigið fé bæjarsjóðs. Þetta er staðfest í skýrslu endurskoðanda sveitar- félagsins með ársreikningi 2006. Á þessu tímabili fjölgaði íbúum um 50 % og voru byggðar á fjórða hundrað íbúðir og sérbýli. Þó var ekki úthlutað einni einustu lóð, heldur keyptu verktakar allt land til skipulagningar og tóku til sín hagnaðinn af lóðasölu. Áætla má að verktakahagnaður hafi verið 1500 milljónir. Ef hagnaðurinn hefði runnið í bæjarsjóð hefði bæj- arsjóður verið skuldlítill þegar hrunið skall á. Fyrir 1500 millj- ónir hefði mátt byggja öll íþrótta- mannvirki á Álftanesi. Álftanes- ingar þurftu hins vegar að taka lán fyrir öllum fjárfestingum sem fjölguninni fylgdu, meðan aðrar bæjarstjórnir á höfuðborgarsvæð- inu skipulögðu lóðir til úthlutun- ar og nýttu hagnað til að byggja skóla- og íþróttamannvirki. D-list- inn vanrækti líka að krefjast end- urskoðunar á greiðslum frá Jöfn- unarsjóði en rökstutt hefur verið að greiðslur frá honum þyrftu að tvöfaldast til að jafna þann aðstöð- umun sem er á milli Álftaness og höfuðborgarsvæðisins. Þessi munur er tilkominn vegna þess að hlutfall barna og unglinga er 40% hærra á Álftanesi en á höfuðborg- arsvæðinu. Ef aðstöðumunur væri að fullu jafnaður ætti að greiða til Álftaness um 100-200 milljón- ir hærra framlag árlega. Ámælis- vert er að þetta hafa viðgengist um langt árabil og leitt til þess að bæj- arsjóður hefur þurft að selja eignir fyrir rekstri. Framundan er mikið verkefni að endurreisa atvinnulíf í land- inu, bæta fjárhag sveitarfélaga og heimila. Sveitarfélagið Álfta- ness mun vinna sig frá núverandi vanda með stuðningi ríkisvalds sem hlýtur að leiðrétta jöfnunar- greiðslur og aðstoða við að draga úr tjóni vegna gengishruns. Álft- nesingar hafa líka sýnt það á þessu ári, að þrátt fyrir samdrátt hefur verið seldur byggingaréttur fyrir rúmar 400 milljónir í „grænum miðbæ“. Hrunið hlýtur líka að hvetja til aukinnar samvinnu milli sveitarfélaga á höfuðborgarsvæð- inu með það markmiði að hagræða, samræma ákvarðanatöku og jafna aðstöðu af ýmsu tagi. Höfundur er bæjarfulltrúi og oddviti Á-lista. Verkefni til úrlausnar Bæta þarf lagarammann um eftirlit Alþingis með störfum ráðherra og stjórnsýslunnar og styrkja þannig lýðræðislegan grundvöll stjórn- skipunarinnar. ÁSTA RAGNHEIÐUR JÓHANNESDÓTTIR SIGURÐUR MAGNÚSSON

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.