Fréttablaðið - 31.10.2009, Blaðsíða 83
LAUGARDAGUR 31. október 2009 55
BJÖRG MAGNÚSDÓTTIR Stuttmyndahátíðin Ljósvakaljóð er nú haldin í fjórða sinn.
Ljósvakaljóð, stuttmyndahátíð
ungs fólks, verður haldin í fjórða
skiptið fimmtudaginn 5. nóvem-
ber í Norræna húsinu. Keppt verð-
ur um bestu stuttmyndina, besta
frumsamda handritið og í annað
skiptið verður keppt um bestu
„pitch“-hugmyndina en sú keppni
sló í gegn í fyrra.
„Við höfum fengið vaxandi und-
irtektir. Við erum að prófa okkur
áfram með þessa handritakeppni í
ár og nú þegar eru handritin farin
að streyma inn. Maður finnur að
fólk er að bíða eftir tækifæri til
að láta ljós sitt skína,“ segir Björg
Magnúsdóttir skipuleggjandi.
Leitað er eftir verkum fólks á
aldrinum 15 til 25 ára og rennur
umsóknarfresturinn út á mánu-
daginn. Verðlaun fyrir bestu stutt-
myndina eru 50 þúsund krónur og
15 þúsund fást fyrir besta stutt-
myndahandritið.
Dómnefnd handritakeppninnar er
skipuð Friðriki Þór Friðrikssyni,
Yrsu Sigurðardóttur og Bergi Ebba
Benediktssyni. Í dómnefnd fyrir
stuttmynda- og pitch-keppnina sitja
Ragnar Bragason, Silja Hauksdótt-
ir og Ottó Geir Borg. „Það var ótrú-
lega jákvætt viðmót sem mætti
okkur og það er stórkostlegt að fá
þessa flottu leikstjóra, handrits og
rithöfunda til liðs við okkur,“ segir
Björg. „Það gerir þetta veglegra og
eftirsóknarverðara.“
Nánari upplýsingar um hátíðina má
finna á síðunni Ljosvakaljod.is.
- fb
Ljósvakaljóð haldin í fjórða sinn
Söngkonan og X-factor-dómar-
inn Dannii Minogue spjallaði við
Piers Morgan um
lífið og tilveruna í
nýlegu sjónvarps-
viðtali. Þar segist
söngkonan ávallt
hafa trúað því
að systir hennar,
Kylie, mundi ná
sér eftir krabba-
meinið. „Ég hugs-
aði aldrei út í það
að hún gæti dáið.
Maður gerir það
einfaldlega ekki.
Í hjarta mínu
vissi ég að hún
myndi sigra og
að hún myndi
ekki grein-
ast aftur með
þennan sjúkdóm,“
sagði söngkonan
gráti næst.
Var gráti næst
DANNII MINOGUE
Var viss um að systir
hennar myndi ná sér eftir
veikindin.
Joe Jackson, faðir poppgoðsins
Michaels Jackson, sagði í við-
tali við tímaritið Extra að sonur
hans væri meira virði nú heldur
en þegar hann var í lifanda lífi.
„Hann er meira virði núna en
þegar hann var á lífi. Ég mundi
frekar vilja hafa hann hjá mér.
Þegar hann var á lífi vildu fjöl-
miðlar ekki sýna hans innri
mann,“ sagði höfuð Jackson-fjöl-
skyldunnar. Hann sagðist þar að
auki gráta í hvert sinn sem hann
heyrði lag eftir son sinn. „Enginn
mun sjá mig gráta. En þegar ég
er einn með sjálfum mér hugsa
ég oft um allt það sem við höfum
gengið í gegnum.“
Jackson græt-
ur í einrúmi
SAKNAÐ Faðir Michaels Jackson tárast
þegar hann heyrir lag eftir son sinn.
Lífið virðist leika við Britney
Spears þessa dagana. Söng-
konan lauk nýverið vel lukk-
uðu tónleikaferðalagi og hefur
fundið ástina á ný með umboðs-
manni sínum, Jason Trawick.
Móðir Spears er himinlifandi
með piltinn, sem hefur víst verið
stoð og stytta Spears síðustu ár.
„Hann er yndislegur. Hann er
traustur. Hann er maðurinn sem
hver móðir mundi óska sér sem
tengdason,“ sagði Lynne Spears,
móðir Britney.
Lífið leikur
við Britney
ÁNÆGÐ Móðir Britney er ánægð með
kærasta dóttur sinnar.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/STEFÁ
N
Ferðaskrifstofa
Leyfishafi
Ferðamálastofu
Skráðu þig í netklúbb Plúsferða og
vertu fyrstur til að fá bestu tilboðin!
Engin bókunargjöld ef bókað er á netinu.
Bókaðu betur í vetur á
www.plusferdir.is
Fyrstur kemur, fyrstur fær!
SÓLARLOTTÓ
Tenerife - vika
Verð frá:99.900 kr.
m.v. tvo fullorðna og eitt barn í herbergi með hálfu
fæði. Brottfarir 4., 11., 18., og 25. nóvember.
HÁLFT
FÆÐI
4 STJÖRNU
SÓLARVEISLA
Í NÓVEMBER!