Fréttablaðið - 31.10.2009, Blaðsíða 40
6 fjölskyldan
úti að leika
er hollt og gott ...
BESTU RÓLÓARNIR
Ferð á leikvöllinn er góð fjölskylduskemmtun um helgar. Ef allir eru orðnir leiðir á leikvell-
inum í næsta nágrenni er af nógu að taka á höfuðborgarsvæðinu. Fjölskyldublaðið bendir
hér á nokkra einstaklega góða.
Seðlabankaróló
Á Arnarhóli er ágætis róluvöllur með klifurbraut og húsum. Þarna reynist krökkum auðvelt að virkja
ímyndunaraflið, enda platkíkir á svæðinu sem snýr að miðbænum. Þarna er líka sandkassi og rólur,
sem kunnugir fullyrða að séu kraftmestu rólur á höfuðborgarsvæðinu.
Grænuborg
Leikvöllurinn á Grænuborg, á Eiríksgötu gegnt Hallgrímskirkju,
er dæmi um leikvöll sem er á leikskólalóð. Slíkir leikvellir eru við
alla leikskóla, en misspennandi eins og gengur. Þeir standa
öllum opnir fyrir utan dagvistunartíma barnanna. Þessi á
Grænuborg er stór og spennandi, meðal annars með einni
hæstu rennibrautinni í bænum. Þá er stutt í myndastyttugarðinn
við safn Einars Jónssonar, sem krökkum finnst skemmtilegur.
Hljómskálagarðsróló
Hljómskálagarðinn, sem og Miklatún, mætti nýta mun betur fyrir
fjölskyldur í borginni. í Hljómskálagarðinum má þó finna
leikvörubíl og sandkassa og nokkuð mikilfenglega klifurgrind.
Hún er ekki heppileg fyrir yngstu börnin en krakkar á skólaaldri
fá góða útrás í þessari stóru klifurgrind.
Álafosskvosin
Leikvöllurinn í Álafoss-
kvosinni er með
víðáttumestu leikvöll-
um landsins. Betra
væri að tala um
leik svæði. Skemmtileg
rennibraut er þarna,
aparóla, rólur, þrauta-
braut og mjög spenn-
andi höggverk eftir
Magnús Tómasson.
Víkingaróló
Í Leirvogstunguhverfinu í Mosfellsbæ, við
enda Kvíslartungu, var opnaður í sumar
ljómandi skemmtilegur víkingaleikvöllur.
Hann samanstendur af húsaþyrpingu með
brú á milli sem krökkum finnst gaman að
leika sér í. Þarna er líka fyrirtaks aparóla,
sparkvöllur, grillaðstaða og aðstaða til að
snæða. Stutt er í hesthúsin í Mosfellsbæ svo
oft má rekast á hross í nágrenninu.
KAFFISOPINN INDÆLL ER Foreldrar sem sitja og fylgjast með börnum sínum
leika sér á leikvöllum eiga það á hættu að verða kalt, enda ekki á fullu í leik eins og
krakkarnir. Til að forðast kuldahroll er gott ráð að taka kaffi eða kakó með á leikvöllinn.
Tjarnarborg
Fjölbreytileg leiktæki fyrir litla krakka og stóra
er að finna á Tjarnarborg sem eins og nafnið
gefur til kynna er við Reykjavíkurtjörn.
Útsýnið yfir Þingholtin er skemmtilegt og
umhverfið notalegt. Sandurinn í sandkassan-
um er ljós sem er skemmtileg tilbreyting.
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/V
ILH
EL
M
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/V
PJ
ET
U
R
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/V
PJ
ET
U
R
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/V
PJ
ET
U
R
Tilboð gildir út nóvember 2009 eða meðan birgðir endast
Glerfínt og GLJÁANDI fyrir jólin
SparCreme
Burt með
uppsafnaðann kísil
Frábært efni til að
fjarlægja uppsöfnuð
óhreinindi, kísil og
sápuskánir. Notist
á postulín, keramik,
ryðfrítt stál o.fl.
Blue Star
Öflugt hreinsiefni
á gólf, veggi og
skápa
Vinnur á hverskyns
óhreinindum.
Þornar hratt og
skilur ekki eftir sig
sápuskán.
NABC
Baðherbergis-
hreinsir
Hreinsar, sótt-
hreinsar og
eyðir ólykt.
SparCling
WC-hreinsir
Fyrir harða
sýruþolna fleti.
Ultra
glerhreinsir
Hreinir gluggar
Til notkunar á alla
gler- og plastfleti.
HREIN FAGMENNSKA FRAM Í FINGURGÓMA HJÁ BESTA
Útsölustaðir
Besta Ármúla 23
Reykjavík
Sími 510-0000
Besta Brekkustíg 39
Njarðvík
Sími 420-0000
Besta Grundargötu 61
Grundarfirði
Sími 430-0000
Besta Miðvangi 13
Egilsstöðum
Sími 470-0000
Besta Egilsbraut 6
Neskaupstað
Sími 477-1900
A.Karlsson
Víkurhvarfi 8
Kópavogi Sími
5600-900
20%
afsláttur
af hreinsiefnum
T
ilb
o
ð
gi
ld
ir
út
nó
ve
mb
er 2009 eða meðan
birgðir
en
d
ast