Fréttablaðið - 31.10.2009, Blaðsíða 70
42 31. október 2009 LAUGARDAGUR
BAKÞANKAR
Karenar D.
Kjartans-
dóttur
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Ég bara fíla ekki
þessar nýju orku-
sparandi týpur!
Þetta er
aldrei góðs
viti!
Palli. Hvernig get-
urðu tekið á móti
skilaboðum án
þess að skrifa niður
símanúmerið eða
hver hringdi?
Af hverju
ertu að
ráðast á
mig?
Ég er ekki að
ráðast á þig,
ég er bara að
spyrja þig.
Mér líður
eins og
þú sért að
ráðast á
mig.
ÉG VIL BARA FÁ
SKILABOÐIN
MÍN!
Mamma!
pabbi er
að ráðast á
mig!
Af hverju
fær Lóa að
borða með
höndun-
um?
Af því að hún er
enn þá ungabarn.
En á meðan hún vex
úr grasi mun hún læra
borðsiðina af ykkur
Hannesi.
SLURP
SMJATT
Nú, þá er víst
best að ég
biðjist fyrirfram
afsökunar.
Ofbeldi gegn börnum skiptir litlu
Íslensk kona hefur opnað vefsíðu þar sem hún lýsir skelfilegu ofbeldi og sinnuleysi
sem börn hennar hafa þurft að þola af hendi
föður síns. Konan er þó neydd til þess að
veita honum umgengnisrétt þótt börnin ótt-
ist manninn mjög og líði miklar þjáningar
hans vegna. Ástæðan er sú að það er börn-
um mikilvægt og hollt að fá að umgangast
báða foreldra sína. Þetta mikilvægi finnst
mér þó ekki fyrir hendi ef foreldrið beit-
ir barnið ítrekað ofbeldi. Einhverra hluta
vegna virðist hið opinbera kjósa að líta
fram hjá þeirri staðreynd.
Í MEISTARAPRÓFSRITGERÐ í lögfræði
eftir konu að nafni Elísabet Gísladótt-
ir, sem birt var fyrr á þessu ári og lítið
hefur verið fjallað um, líklega af því
hún afsannar vinsælt kaffistofuraus,
kemur fram að draga megi þá álykt-
un að ofbeldi innan veggja heimil-
isins hafi mjög takmörkuð áhrif við
mat á forsjárhæfni foreldris. Sömu-
leiðis virðist mikið þurfa að koma til
svo að umgengnisréttur sé skertur á
grundvelli slíks ofbeldis, jafnvel þótt
sýnt sé fram á að samneyti við foreldri
geti beinlínis verið barninu skaðlegt.
Í ÚTDRÆTTI um ritgerðina segir
svo að af niðurstöðunum megi draga
í efa að börnum sé tryggð fullnægj-
andi vernd gegn ofbeldi í íslenskum
lögum og lagaframkvæmd. Það verði
að teljast æskilegt að lögfest verði sérstakt
ákvæði í barnalög sem leggur þá skyldu
á úrskurðaraðila að huga sérstaklega að
vernd barna gegn ofbeldi þegar teknar eru
ákvarðanir um forsjá eða umgengnisrétt.
ELÍSABET fjallaði einnig um mál þar sem
ógnandi faðir hafði skapað mikinn ótta hjá
ungum börnum sínum. Svo illa leið þeim að
sýnt þótti að þau gætu ekki farið til hans
nema með gæslumann frá hinu opinbera
með sér. Það dugði reyndar ekki heldur til
því gæslumaðurinn varð svo óttasleginn við
manninn að hann treysti sér ekki til að vera
nálægt honum heldur. Hið blíða og opinbera
kerfi brást þá við með því að fjölga gæslu-
manni um einn, því ekki máttu blessuð
börnin missa af samvistum við föðurinn.
Í LÖGUM og alþjóðlegum mannréttinda-
samningum er almennt gengið út frá því að
það sé mikilvægur grundvallarréttur barns
að þekkja og njóta umönnunar beggja for-
eldra. Fólk hlýtur þó að gera sér grein fyrir
að í ákveðnum tilvikum er hins vegar ljóst
að samneyti við foreldra er börnum ekki
fyrir bestu heldur stefnir velferð þeirra í
voða. Heimilisofbeldi linnir oft ekki þrátt
fyrir skilnað eða sambúðarslit foreldra
samkvæmt rannsókn Elísabetar vegna þess
hve mikilvægt það þykir að brjóta ekki
á umgengnisrétti foreldris við barn sitt.
Líðan barnsins og þess sem það vill verja
skiptir litlu sem engu.
Blaðberinn
bíður
þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið