Fréttablaðið - 31.10.2009, Blaðsíða 61
FRAMHALD AF FORSÍÐU
menntaður í fræðum Rudolfs Stein-
er og vildi vinna að hugmyndum
um fjölskylduhús út frá hugmynd-
um Steiners um garð bernskunn-
ar. „Hann vinnur þó út frá víðara
sjónarhorni núna,“ segir Linda.
„Við Patrick hittumst fyrir tveim-
ur árum og fórum alveg á flug í
hugmyndavinnunni,“ segir Linda
Mjöll. Hún bætir við að fjölgað hafi
í hópnum eftir að fyrstu skrefin
voru stigin; ýmsir vilji vinna að
fjölskylduvænum stað í miðborg-
inni þar sem hægt sé að koma
saman, ræða málin, leika sér og
fræðast.
„Við erum öll í krefjandi störfum
annars staðar, en viljum jafnframt
nota orkuna okkar í í þetta verk-
efni. Við höfum fengið mjög góð
viðbrögð frá fólki sem er til í að
halda fyrirlestra í Fjölskylduhús-
inu og leggja okkur lið á einn eða
annan hátt.“
Fjölskylduhúsið Memm
Hugmyndin um fjölskylduhúsið
komst á enn frekara flug þegar
Linda Mjöll las auglýsingu um
styrkveitingar Reykjavíkurborgar
undir heitinu Enn betri Reykja-
vík. Sá styrkur hefur að vísu ekki
fengist enn því verið er að fara
yfir umsóknina. Linda Mjöll segir
hins vegar að verkefnið hafi pass-
að svo fullkomlega að lýsingunni
að aðstandendur fengu aukna trú
á því þegar þeir sáu að það væri
virkilega í takt við tímann.
Nýlega var svo Facebook-síða
hússins sett á laggirnar. Þar var
meðal annars óskað eftir nafni á
það og varð nafnið Memm fyrir
valinu. „Það segir svo margt, meðal
annars um andrúmsloftið sem við
viljum ná, viltu vera memm, viltu
vera með okkur?“
Te og kaffi í samstarf
En hvernig verður svo Fjölskyldu-
húsið Memm nákvæmlega og hvar
verður það til húsa? „Við erum ekki
komin með örugga staðsetningu,
en viljum vera í miðbænum, í Þing-
holtunum,“ segir Linda Mjöll. Í því
verður kaffihús, sem rekið verður
í samstarfi við Te og kaffi. Það
verður hannað að innan af Lindu
Mjöll, sem ætlar að nýta þekk-
ingu sýna við leikmyndagerð, rétt
eins og hún gerði í kjallara áður-
nefndrar verslunar, Liggalá, en
þar var aðstaða fyrir börn. Andrew
Burgess arkitekt og Daníel Hjörtur
Sigmundsson skúlptúristi vinna
einnig að hönnun Fjölskylduhúss-
ins.
Draumurinn er svo að hafa
skemmtilegt og frumlegt leiksvæði
í kringum húsið. Starfsemin á svo
að vera af ýmsum toga. Mömmu-
morgnar verða við lýði og ýmiss
konar námskeið. Einnig er staður-
inn einfaldlega hugsaður fyrir for-
eldra sem vilja slappa af í mjög
barnvænu umhverfi, kíkja í blöð
eða á netið en sjá börnin við leik á
sama tíma. „Framtíðarsýnin er svo
auðvitað að opna fleiri Fjölskyldu-
hús um allan bæinn,“ segir Linda að
lokum full af bjartsýni, enda tím-
arnir góðir fyrir fjölskyldur. - sbt
Hluti hópsins Á myndinni má sjá frá vinstri Patrick Immer ásamt dóttur sinni
Arielle, Margréti Kristínu Sigurðardóttur ásamt syninum Ágústi Erni, Kristínu
Sigurðardóttur ásamt Dagmar Völu og Stefáni, Lindu Mjöll Stefánsdóttur
ásamt syninum Alexander og Lovísu Sigurðardóttur ásamt syninum Jökli.
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
BYLGJAN
Í FYRSTA SÆTI
Bylgjan ber af og tryggir að skilaboð auglýsenda
komist áleiðis til mikilvægustu markhópanna.*
* Samkvæmt mælingum Capacent á hlustun í mínútum í aldurshópnum 18 – 49 ára, vika 40, 2009.
Í viku 40 var hlustun á Bylgjuna, Létt Bylgjuna og Gull Bylgjuna 52%.
Auglýsing á Bylgjunni birtist samtímis á Létt Bylgjunni og Gull Bylgjunni.
BYLGJAN ÞAKKAR HLUSTENDUM SAMFYLGDINA Á HVERJUM DEGI
Húsið mun gefa börnum og foreldrum frá unga aldri miðstöð
fyrir lífsgleði og jákvæðan lifnaðarhátt. Miðstöð sem hefur að
geyma ólíka lagskipta starfsemi sem er í grunninn öllum
gjaldfrjáls, foreldrar geta sem sagt sótt stað með börnum sínum
án þess að peningar þurfi að koma við sögu. Því verður ókeypis
aðgangur að leikaðstöðu, leshorni, útileiksvæði og fleira.
Sem liður í að skapa beinar tekjur væru einnig haldin þar
námskeið. Eitt af markmiðum hússins er að gera Reykjavíkur-
borg að fjölskylduvænni borg, þar sem meðvitund og virðing sé
við umhverfi okkar og aðhlynning að fólkinu sem þar býr.
Hægt er að hafa samband með tölvupósti í fjolskylduhus@
gmail.com eða í gegnum Facebook en síða hússins heitir
Fjölskylduhúsið.
Hugmyndafræði Memm