Fréttablaðið - 31.10.2009, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 31.10.2009, Blaðsíða 4
4 31. október 2009 LAUGARDAGUR Jóhann Ólafsson & Co NÚNA! SKIPTU OSRAM SPARPERU R ALLT AÐ 80% ORKU- SPARNAÐ UR SPARAÐU með OSRAM SPARPERUM. Rangt var farið með frumsýning- ardag leikverksins Hnykill í grein á fimmtudaginn. Verkið er frumsýnt 6. nóvember. LEIÐRÉTT STJÓRNSÝSLA Skipulagsstofnun hefur, í annað sinn, úrskurðað að ekki þurfi að fara fram sameigin- legt mat umhverfisáhrifa Suðvest- urlínu. Stofnunin hafði úrskurðað þess efnis í mars, en Svandís Svav- arsdóttir umhverfisráðherra felldi þann úrskurð úr gildi og bað um nýjan, sem nú er fallinn á sama veg. Hægt er að kæra ákvörðun- ina til umhverfisráðherra til 4. desember. Svandís Svavarsdóttir umhverf- isráðherra vísar í þann frest og segir málið í eðlilegum farvegi. „Skipulagsstofnun hefur leitað eftir ítarlegri upplýsingum eins og fyrir var lagt og byggt sinn úrskurð á þeim gögnum. Nú taka við eðli- legir ferlar og frestir.“ Samkvæmt úrskurðinum uppfyllir fram- kvæmdin ekki þau ski lyrði sem lög gera ráð fyrir að þurfi til sameiginlegs mats. Stofnunin vísar sérstaklega í úrskurð fyrrum umhverfisráð- herra, Þórunnar Sveinbjarnardótt- ur, vegna álversins í Helguvík, en hann féll 3. apríl 2008. Þar kemur fram sú túlkun að ákvörðun um sameiginlegt mat skuli liggja fyrir áður en tekin er ákvörðun um mat- sáætlun. Svo var ekki í þessu til- viki. Þá kemur fram í úrskurðinum að vafi leiki á hvað sé átt við í lögum um „fyrirhugaðar framkvæmdir“. Skipulagsstofnun metur svo að um fastmótaða framkvæmd þurfi að vera að ræða, sem komin sé á það stig að geta hlotið málsmeðferð. Framkvæmdir á hugmyndastigi hafi ekki áhrif. Samkvæmt þessum skilningi metur stofnunin eftirfar- andi framkvæmdir á sama svæði og línan, eða háð framkvæmdinni: álver í Helguvík, Bitruvirkjun, Hverahlíðarvirkjun, kísilmálm- verksmiðju í Helguvík, stækkun Reykjanesvirkjunar og jarðhita- nýtingu við Gráuhnjúka. Ágúst Hafberg hjá Norðuráli, sem reisa mun álverið í Helguvík, fagnar úrskurðinum og segir hann í samræmi við væntingar. Hann segir ákvörðun umhverfisráð- herra um að fella fyrri ákvörðun stofnunarinnar úr gildi hafa tafið málið. Ekki hafi verið hægt að ganga frá ákveðnum samningum eða aflétta fyrirvörum á ýmsum framkvæmdum. Ágúst segir fjármögnun verk- efnisins ganga vel, unnið sé að henni í samráði við þrjá banka; tvo franska og einn hollenskan. kolbeinn@frettabladid.is Ekki sameiginlegt mat á Suðvesturlínu Skipulagsstofnun hefur úrskurðað að ekki sé þörf á sameiginlegu mati á um- hverfisáhrifum Suðvesturlínu. Málið í eðlilegu ferli, segir umhverfisráðherra og kærufrestur enn í gildi. Úrskurður fyrri umhverfisráðherra hafði áhrif. SVANDÍS SVAVARSDÓTTIR Sveitarfélagið Ölfus ítrekaði and- stöðu sína við lagningu línunnar, þó sveitarfélagið telji að ekki þurfi sam- eiginlegt mat á línunni. Sveitarstjórn telur línuna hafa verulega neikvæð áhrif á núverandi ferðaþjónustu og útivist og frekari uppbyggingu. „Þau neikvæðu áhrif sé ekki hægt að réttlæta þar sem fyrirhuguð fram- kvæmd miði einkum að því að flytja orku af Suðurlandi og standa því í vegi fyrir uppbyggingu atvinnutæki- færa m.a. í Sveitarfélaginu Ölfusi.“ Grindavíkurbær taldi að meta ætti línuna með öðrum framkvæmdum. ÖLFUS Á MÓTI HELGUVÍK Álver í Helguvík mun nýta nýja Suðvesturlínu. Skipulagsstofnun hefur nú úrskurðað að ekki þurfi sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum línunnar. Kæru- frestur er þó ekki runninn út. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 25° 16° 8° 8° 12° 10° 16° 8° 8° 25° 19° 20° 20° 31° 5° 16° 17° 6° Á MORGUN Hæg austlæg eða breytileg átt. MÁNUDAGUR Vaxandi SA-átt S-til, hægviðri NA-lands. 7 7 7 7 8 8 8 8 6 9 8 10 9 10 4 7 5 7 4 10 2 11 4 4 1 3 1 5 2 0 0 3 STUND MILLI STRÍÐA Í morg- unsárið verður rigning sunnan- og vestantil en það lægir og dregur úr úrkomu er líður á daginn. Á morgun lítur út fyrir ágæt- isveður, hægviðri og nokkuð bjart en það kólnar heldur á landinu, einkum norðantil. Soffía Sveinsdóttir Veður- fréttamaður VIÐSKIPTI Eik Banki tapaði hundr- að milljónum danskra króna á þriðja ársfjórðungi. Þetta jafn- gildir tæpum 2,5 milljörðum íslenskra króna. Á sama tíma í fyrra nam tapið 33 milljónum danskra króna. Tekjur bankans námu 543 milljónum króna á fjórðungn- um, sem er 24 prósenta aukning á milli ára. Í uppgjöri bankans segir að hann hafi endurmetið vænting- ar um afkomu ársins og búist við að tapið aukist um fimmtíu millj- ónir danskra króna til viðbótar. Þá er haft eftir Marner Jacobsen bankastjóra að búast megi við afskriftum úr bókum bankans. Bankinn fékk 327 milljónir króna frá dönskum stjórnvöld- um á fjórðungnum í samræmi við aðstoð við dönsk fjármálafyrir- tæki í kreppunni. - jab Aukið tap hjá Eik Banka: Tími afskrifta fram undan MARNER JACOBSEN Eik Bank fékk 327 milljónir danskra króna hjá dönskum stjórnvöldum til að dempa áhrifin af fjármálakreppunni á þriðja ársfjórðungi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA LÖGREGLUMÁL Ökumenn tveggja bíla sluppu án alvarlegra meiðsla þegar bílar þeirra skullu saman á Sæbraut í gær. Áreksturinn varð ofan við Holtagarða um klukkan níu í gærmorgun. Málið er enn í rann- sókn en samkvæmt upplýsing- um frá lögreglunni er ljóst að öðrum bílnum hefur verið ekið yfir á rauðu ljósi á gatnamótum Sæbrautar og Holtavegar. Bílarn- ir eru stórskemmdir. Ökumenn- irnir voru fluttir á sjúkrahús með meiðsl á hálsi og baki. - gar Harður árekstur á Sæbraut: Keyrt fyrir bíl gegn rauðu ljósi Á SÆBRAUT Tveir fólksbílar eru mikið skemmdir eftir árekstur í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BANDARÍKIN Írakskur maður hefur verið handtekinn í Arizona í Bandaríkjunum fyrir að hafa vís- vitandi ekið bíl á dóttur sína. Maðurinn keyrði á dótturina og vinkonu hennar á bílastæði í síðustu viku. Að því loknu flúði hann af vettvangi og fannst ekki fyrr en í gær. Dóttirin, sem er tvítug, slasaðist lífshættulega en er á batavegi. Vinkona hennar slasaðist minna. Ástæður árásarinnar voru þær að manninum þótti dóttirin vera orðin of vestræn í háttum og lifði ekki samkvæmt hefðbundnum írökskum siðum. - þeb Þótti dóttirin of vestræn: Íraki keyrði á dóttur sína BELGÍA, AP Evrópusambandið telur að 100 milljarða evra þurfi í sjóð til hjálpar fátækum ríkjum vegna loftslagsbreytinga. Allt að helm- ingur þeirrar upphæðar eigi að koma frá ríkjum víða um heim. Leiðtogar ríkja sambandsins segjast ætla að leggja sanngjarna upphæð í sjóðinn en hafa þó ekki komið sér saman um það hversu há hún verður. Sjóðurinn á að hvetja fátækari ríki til þess að nota minni orku, vernda skóga og auka notkun endurnýjanlegrar orku. Umhverfisverndarsinnar hafa gagnrýnt Evrópusambandið harð- lega og segja samkomulagið ekki gera nægilegt gagn. Þeir segja að með víðtækari aðgerðum hefði verið hægt að setja fordæmi fyrir Bandaríkin og Kína. Þannig hefði verið hægt að setja pressu á ríkin og fá þau til að samþykkja að draga úr losun gróðurhúsaloft- tegunda á loftslagsráðstefnunni í Kaupmannahöfn í desember. Þar verður þess freistað að gera nýtt samkomulag um losun gróður- húsalofttegunda og aðgerðir gegn loftslagsbreytingum. Gordon Brown forsætisráðherra Bretlands er þvert á móti á þeirri skoðun að aðgerðir Evrópusam- bandsins séu skref í átt að slíku samkomulagi. - þeb Aðgerðir til hjálpar fátækum ríkjum vegna loftslagsbreytinga: Þurfa 100 milljarða evra í sjóð Á FUNDI Guido Westerwelle, utan- ríkisráðherra Þýskalands, og Angela Merkel, kanslari Þýskalands, spjölluðu við Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta á fundinum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP BRETLAND, AP David Nutt, yfir- maður fíkniefnamála hjá breska innanríkisráðuneytinu, var rek- inn í gær. Ástæðan var sú að hann sagði í fjölmiðlum að maríjúana, e-töflur og LSD væru hættuminni en áfengi. Nutt gagnrýndi fyrr í vikunni þann mun sem gerður er á áfengi og tóbaki annars vegar og ólögleg- um eiturlyfjum hins vegar. Hann hefur áður gagnrýnt innanríkis- ráðuneytið fyrir að herða reglur um maríjúana. Undir þá gagnrýni tóku margir vísindamenn. Ráðuneytið hefur staðfest brott- reksturinn og mun tilkynna um eft- irmann hans á næstu dögum. - þeb Breskur embættismaður: Rekinn fyrir að tala um eiturlyf GENGIÐ 30.10.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 237,0451 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 124,01 124,61 205,02 206,02 184,03 185,05 24,722 24,866 22,015 22,145 17,737 17,841 1,3633 1,3713 197,35 198,53 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR Rangt var farið með nafn Söru Margrétar Nordahl á forsíðu Popps, fylgirits Fréttablaðsins, í gær. Beðist er velvirðingar á því.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.