Fréttablaðið - 31.10.2009, Blaðsíða 94

Fréttablaðið - 31.10.2009, Blaðsíða 94
66 31. október 2009 LAUGARDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 PERSÓNAN LÁRÉTT 2. heilu, 6. skammstöfun, 8. sægur, 9. lærdómur, 11. skammstöfun, 12. samstæður jakki og pils, 14. vand- ræði, 16. á fæti, 17. heldur brott, 18. kjáni, 20. drykkur, 21. lokka. LÓÐRÉTT 1. bak, 3. 950, 4. sendir, 5. dýrahljóð, 7. sjampó, 10. gilding, 13. útdeildi, 15. myrði, 16. skrá, 19. stöðug hreyfing. LAUSN LÁRÉTT: 2. öllu, 6. eh, 8. mor, 9. nám, 11. fr, 12. dragt, 14. stand, 16. tá, 17. fer, 18. api, 20. te, 21. laða. LÓÐRÉTT: 1. lend, 3. lm, 4. loftnet, 5. urr, 7. hársápa, 10. mat, 13. gaf, 15. drep, 16. tal, 19. ið. Jón Garðar Ögmundsson Aldur: 46 ára. Starf: Framkvæmdastjóri. Fjölskylda: Ég á tvær dætur. Búseta: Bý á Seltjarnarnesi. Stjörnumerki: Ég er vatnsberi. Jón Garðar Ögmundsson er fram- kvæmdastjóri Lystar ehf., rekstaraðila McDonald‘s á Íslandi. Hamborgarakeðjan hættir á Íslandi í dag og Metro tekur við á morgun. „Ég held að hann hafi verið mjög ánægður. Kristján var ofsa góður maður,“ segir tónlistarmaðurinn og málarinn Gylfi Ægisson. Eitt af síðustu embættisverkum forsetans Kristjáns Eldjárns árið 1980 var að taka við tveimur mál- verkum sem Gylfi málaði handa honum og forsetafrúnni Halldóru Eldjárn á síldartunnulok. Gylfi var að sýna Kristjáni þakklætisvott fyrir 5.000 króna lán sem hann sló hjá honum nokkrum árum áður á óregluárum sínum. „Þetta var segl- skúta sem ég gaf Kristjáni og hús í snjó sem ég gaf henni. Þetta var málað bara spes fyrir þau áður en ég fór til þeirra. Þau voru mjög gestrisin og sýndu okkur bara stað- inn og allt,“ segir Gylfi, sem mætti á Bessastaði með þáverandi sam- býliskonu sinni. Sagt er frá fundinum í ævisögu Gylfa sem er væntanleg um miðj- an nóvember. Gylfi rekur söguna þegar hann var blankur fylliraft- ur, svangur og illa til reika í ónýt- um skóm og datt í hug að leita ásjár hjá sjálfum forsetanum, þótt hann þekkti hann ekki neitt. Í bókinni stendur orðrétt: „Nokkrum árum áður, þegar ég var á Svani frá Vest- mannaeyjum, hafði ég kynnst Þór- arni Stefánssyni, Tóta, systursyni Kristjáns Eldjárn forseta. Ég vissi að eftir að bera fór á mínu nafni í fjölmiðlum hafði Tóti sagt Kristj- áni að hann þekkti mig. Af þeirri ástæðu þótti mér rökrétt að hringja niður í Stjórnarráð og spyrja um forsetann. Svona nokkuð gat manni dottið í hug í vitleysunni“. Kristján vorkenndi Gylfa og gaf honum 5.000 krónur. Síðan greip forsetinn í hann og spurði hvenær hann ætlaði að hætta þessari vit- leysu. Þegar Gylfi hætti að drekka nokkrum árum síðar borgaði hann forsetanum peningana aftur og gaf honum málverkin í kaupbæti. „Þetta sat rosalega mikið í mér,“ segir hann um fyrsta fundinn með forsetanum. „Ég hélt áfram að drekka í einhvern tíma en samt hefur þetta aldrei horfið úr mínu minni. Mér fannst þetta frábærlega gert hjá Kristjáni.“ Á þessum árum voru 5.000 krónur töluverður pen- ingur en hvað gerði Gylfi eiginlega við hann? „Ég fór náttúrulega beint í ríkið. Ég keypti mér ekki skó alla vega,“ segir hann og hlær. Þess má geta að Gylfi reyndi eitt sinn að slá lán hjá fjármála- ráðherra Íslands, sem hann vill reyndar ekki nefna á nafn. Þá vantaði hann peninga til að kom- ast til Vestmannaeyja. „Ég var að velta því fyrir mér hvernig ég ætti að fara að þessu og þá datt mér í hug fjármálaráðuneytið. Þegar ég kom þar inn kom einn og ætlaði að henda mér út. Mér tókst að kom- ast að fjármálaráðherra og hann laumaði að mér 5.000 kalli en ég gleymdi reyndar að borga hann aftur.“ freyr@frettabladid.is GYLFI ÆGISSON: KRISTJÁN ELDJÁRN VAR OFSA GÓÐUR MAÐUR ENDURGALT FORSETANUM GREIÐANN MEÐ MÁLVERKUM Á BESSASTÖÐUM Gylfi ásamt forsetahjónunum Kristjáni og Halldóru Eldjárn eftir að hafa afhent þeim 5.000 krónurnar og mál- verkin. „Mér finnst markmiðinu vera náð með þessu. Að kynna íslensk lög fyrir Færeyingum. Síðan er það næsta verkefni að koma færeysk- um lögum á toppinn hér,“ segir Friðrik Ómar. Félagarnir Friðrik og hinn fær- eyski Jógvan eru í efsta sæti vin- sældalista bæði á Íslandi og í Fær- eyjum. Hér heima er plata þeirra Vinalög í efsta sæti Tónlistans en í Færeyjum er Tú nart við hjart- að á mær (Þú komst við hjartað í mér) í flutningi Jógvans í efsta sæti „Hit listans“. Söngfuglarnir tveir fóru til Fær- eyja um síðustu helgi og fengu mjög góðar viðtökur. „Það var alveg rosalega gaman að koma þangað. Við spiluðum í plötubúð í bænum og plöturnar ruku alveg út.“ Fordómar gagnvart samkyn- hneigðum hafi verið töluverðir í Færeyjum í gengum árin og hafa margir þurft að flytja úr landi eftir að hafa komið út úr skápnum. Frið- rik varð ekki var við neina fordóma í heimsókn sinni. „Þetta er alltaf blásið upp alveg eins og þegar ég fór í Eurovision. Maður vonar að þeim dögum fari að ljúka að þessu sé stillt upp svona og að maður sé réttdræpur fyrir að vera „gay“. Sem betur fer hafa þessi mál þró- ast alls staðar, sérstaklega í Skand- inavíu, til betri vegar. Þvert á móti voru Færeyingar höfðingjar heim að sækja.“ Friðrik og Jógvan notuðu tæki- færið og heimsóttu æskuslóðir hins síðarnefnda í Klakksvík og lentu í pönnukökuveislu hjá mömmu Jóg- vans. „Það var mjög skemmtilegt. Kjötskrokkarnir héngu í skúr fyrir aftan því þau voru að búa til skerpukjöt fyrir jólin,“ segir Frið- rik. - fb Á toppnum í Færeyjum og á Íslandi Á ÆSKUSLÓÐUM Friðrik Ómar og Jógvan lentu í pönnukökuveislu hjá foreldrum Jóg- vans í Klakksvík. Þeir félagar árita plötu sína í Skífunni í Kringlunni klukkan 14 í dag. Veðurverkefni Ólafs Elíassonar er meðal þeirra hundrað fyrirbæra sem sett hafa mark sitt á menningarsögu fyrsta áratugar 21. aldarinnar að mati menningarskríbenta breska blaðsins The Telegraph. Listi yfir þessi fyrirbæri var birtur á vefsíðu blaðs- ins í gær og Ólafur settur í hóp með nokkuð sögulegum atburðum. Í formála greinarinnar kemur fram að þessi fyrsti áratugur ein- kennist fyrst og fremst af því að allir gátu sett fram skoðun sína. „Þetta eru árin þar sem allir urðu gagnrýnendur. Lag, mynd, myndband, kvikmynd, hluti úr bók, allir gátu séð þetta og sagt sitt álit.“ Meðal þess sem kemst á blað eru Guantanamo-fangabúðirn- ar á Kúbu, árásirnar á World Trade Center, endurkoma Kylie Minogue og rassinn hennar, frumsýning Office-þáttanna og iPod-æðið. Þá má einnig finna Da Vinci-lykil Dan Brown, dúett Jay-Z og Beyonce í laginu Crazy in Love og Little Britain, svo eitthvað sé nefnt. Af nýlegri atburðum má síðan telja upp andlát Michaels Jackson, Slumdog Millionaire og sos- skeyti breska gamanleikarans Stephen Fry í gegnum Twitter-síðu sína. Veðurverkefni Ólafs trekkti að í kringum þrjú hundruð þúsund gesti þegar sýningin var opnuð í Tate Modern-safninu í október 2003. Í rökstuðningi gagnrýnenda The Telegraph kemur fram að þetta sé eitt það eftirminnilegasta sem gert hafi verið í samtímalist á þessum áratug. - fgg Ólafur setur mark sitt á söguna Í FRÍÐUM FLOKKI Veðurverkefni Ólafs Elíassonar er meðal þeirra hundrað fyrir- bæra sem sett hafa mark sitt á menning- arsögu 21. aldarinnar. Guðlaug Jónsdótt- ir, yfirhönnuður og aðstoðarforstjóri Dodd Mitchell-hönn- unarstofunnar í Los Angeles, hefur sagt starfi sínu lausu eftir níu ár hjá fyrirtæk- inu og ætlar að stofna eigið fyrirtæki. Fréttablaðið hefur sagt frá starfi Gullu, eins og hún er jafnan kölluð, en hún hlaut meðal annars fimm verðlaun á hönnunarhátíðinni Boutique Design 2008 í Miami. Fyrirtæki Gullu heitir G+, eða Gulla Jónsdótt- ir design Group. Hún verður áfram í Los Angeles. Lísa Kristjánsdóttir, sem starfað hefur sem viðburðastjóri hjá bókaútgáfunni Bjarti, hefur ákveðið að söðla um og gerast aðstoðar- maður Álfheiðar Ingadóttur heil- brigðisráðherra. Lísa er systir Ilmar leikkonu og hefur auk starfa sinna hjá Bjarti unnið sem aðstoðarleikstjóri. Hún hefur dvalist langdvölum í Flatey og þar hefur hún eflaust rekist nokkrum sinnum á verðandi yfirmann sinn, en Álfheiður á sem kunnugt er hótel í eynni. Uppistand Mið-Íslands-flokksins hefur slegið í gegn á öldurhúsum Reykjavíkur undanfarnar vikur. Þar koma fram ungu grínararnir Ari Eldjárn, Dóri DNA, Bergur Ebbi, Jóhann Alfreð og Árni Vilhjálms- son. Á fimmtudaginn hljóp svo Hugleikur Dagsson í skarðið fyrir Árna. Fullt var út úr dyrum það kvöld á Batteríinu og margir þekktir gestir létu sjá sig. Af þeim má nefna Hrafn Gunnlaugsson, Þórarin Eldjárn, Gísla Örn Garðars- son, Önnu Svövu Knútsdóttur og Steinda Jr. Sjónvarps- maðurinn Helgi Seljan var kynnir kvöldsins og stalst hann til að reykja úti í horni á meðan grínist- arnir skemmtu gestum. - hdm FRÉTTIR AF FÓLKI Auglýsingasími – Mest lesið VEISTU SVARIÐ? Svör við spurningum á síðu 8. 1. 1,6 milljónir króna. 2. Helgi Hjörvar alþingismaður. 3. Metro.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.