Fréttablaðið - 31.10.2009, Blaðsíða 43
LAUGARDAGUR 31. október 2009 3
Tölum saman heitir verkið sem
Vigdís Finnbogadóttir afhjúpar
á morgun í tilefni af ársafmæli
Söguhrings kvenna. Það er unnið
undir handleiðslu listakvennanna
Fitore Berisha og Helgu Arnalds.
Helga hefur einnig gert vídeóverk
um sköpunarferli verksins og það
verður frumsýnt við sama tæki-
færi. Fólk af erlendum og íslensk-
um uppruna skemmtir með tón-
list og dansi og boðið verður upp
á veitingar.
„Samkoman er öllum opin, líka
körlum,“ segir Kristín R. Vil-
hjálmsdóttir brosandi en hún er
frumkvöðull Söguhringsins. Það
er félagsskapur kvenna af erlend-
um uppruna sem hittast í Borgar-
bókasafni Reykjavíkur einu sinni
í mánuði ásamt íslenskum stall-
systrum til að njóta samveru,
deila reynslu hver með annarri
og æfa sig að tala íslensku.
Kristín flutti til Íslands í fyrra
eftir að hafa alist upp í Dan-
mörku og var fljótlega ráðin
verkefnisstjóri fjölmenningar-
deildar Borgarbókasafnsins. „Ég
sótti fyrirmynd starfseminn-
ar til Danmerkur þar sem bóka-
söfn eru mikil gátt inn í samfé-
lagið í tengslum við fjölmenningu
og innflytjendamál,“ segir hún.
„Þaðan kemur hugmyndin um
að hittast á bókasafninu og gera
eitthvað skapandi saman, byggja
brýr og hjálpa konum af erlend-
um uppruna og íslenskum konum
að tengjast.“
Kristín segir allar sem hafi
áhuga á að hitta aðrar konur í
fjölmenningarlegu umhverfi vel-
komnar í söguhringinn fyrsta
sunnudag hvers mánaðar. „Á
hverjum fundi fáum við eina konu
til að segja sögu sína og eftir það
er óformlegt spjall um allt mögu-
legt sem konunum liggur á hjarta.
Auðvitað eru töluð önnur tungu-
mál ef margar eru af sama þjóð-
erni en þetta er líka góður vett-
vangur til að miðla íslenskunni.
Markmiðið er þó fyrst og fremst
að eiga notalega samverustund.“
Kristín segir listaverkið Tölum
saman ótvírætt hafa skapað tengsl
milli kvennanna og veitt þeim
sjálfstraust og gleði.
gun@frettabladid.is
Vigdís afhjúpar verk
Söguhrings kvenna
Söguhringur kvenna verður eins árs á morgun, sunnudag. Í tilefni af því er gestum af báðum kynjum
boðið í Borgarbókasafnið við Tryggvagötu klukkan 14 til að fagna og vera viðstaddir afhjúpun listaverks.
Hér er listaverkið Tölum saman að verða til í Borgarbókasafni Reykjavíkur við Tryggvagötu. Það var gert í tilefni eins árs afmælis
Söguhrings kvenna. MYND/KRISTÍN R.
Sýning á viðhafnarúgáfu af
Fuzzy-kollinum verður í Aðal-
stræti 10.
Sigurður Már Helgason hefur
framleitt þúsundasta Fuzzy-koll-
inn. Sá er með rennda álfætur en
hinn venjulegi gærukollur hefur
fjóra ávala og sterka viðarfætur.
Kollurinn með álfæturna er við-
hafnarútgáfa af Fuzzy en hann er
nú ásamt eldri útgáfum til sýnis á
skörinni hjá Handverki og hönnun
í Aðalstæti 10.
Sigurður, sem er húsgagna-
bólstrari, hannaði og smíðaði
fyrsta Fuzzy-stólinn árið 1972.
Þetta er lítill kollur með sútaðri
lambsgæru. Sigurður notar gær-
una óklippta eins og hún kemur af
kindinni. Fæturnir eru renndir úr
fjölbreyttum viðartegundum í líki
vatnsdropa.
Nánari upplýsingar um kollinn
má nálgast á www.fuzzy.is
Þúsundasti
Fuzzy
Upprunalegur Fuzzy-kollur.
Mörkinni 6 • Sími 588 5518
Opnunartímar:
mán.-föstud. 10-18
laugardaga 10-16
Auglýsingasími
– Mest lesið
Fyrirlesari: Benedikta Jónsdóttir - Heilsuráðgjafi
Skráning: í síma 699-6416
benediktaj@hotmail.com—madurlifandi@madurlifandi.is
Hugsaðu um heilsuna
Lífið er ferðalag og þú getur stjórnað því
hvort þú lendir í spennandi ævintýrum
og lætur drauma þína rætast eða festist í
gráum hversdagsleikanum.
Ekki fresta því að koma á hnitmiðaðann
fyrirlestur um hvernig hægt er að hafa
ótrúleg áhrif á daglegt líf þitt.
Þriðjudagurinn 03. nóv.
kl: 17:30-19:30
í Borgartúni 24
Ævintýralíf
Verð: 1.900.-