Tímarit iðnaðarmanna - 01.09.1928, Side 16

Tímarit iðnaðarmanna - 01.09.1928, Side 16
T í M A R I T IÐNAÐARMANNA ok höfðu úti hitueldinn, því at þau vildu eigi gera reyk at mönnum: ok vóru þvi dyr allar opnar, er þau fóru jafnan út eða inn«.0 Ölhitan mun á söguöldinni hafa verið þannig, að vatnið í katli þeim, sem hita átti í maltið, var hitað upp með glóandi grjóti, uns það komst á hæfilegt hitastig, til þess að ná sykrinum sem best úr maltinu. Það mætti lei<)a mörg rök að því, að hitunin hefir verið þannig, því að hjá ölhitu- húsum í Noregi t. d. og í rústum hjá fornum stór- býlum hafa fundist allmiklir kestir af smásprungnu grjóti, sem vitanlega hefir sprungið, þegar það var látið glóandi heitt í kaldan löginn. Hjer á landi hefir líka fundist slíkt grjót, enda hefir gamalt fólk, bæði af Austurlandi og úr Skáftafelissýslu, sagt höf., að mjólk og annað hafi verið hitað all- víða á þenna hátt, lengi fram eftir þeirra æfi. Það er óþarft að færa hjer sönnur á það, að vatn til ölhitu var jafnan hitað í kötlum. Katlarnir voru fyrst framan af úr tálgugrjóti, eins og meðal annars er skýrt frá í Fritzners orðabók. Katlarnir voru nefndir eftir efninu, grýtur; síðar voru notaðir katlar úr járni og eir. Hjer má líka geta þess til gamans, að ölkatla þurfti í goðaheimum; t. d. not- aði Ægir í hinni miklu veislu, er hann bauð goð- unum til sín, ölketil þann, sem Þór náði frá tröll- konunni. Hitun á kötlunum breyttist, þegar fram á leið, einkum þegar hætt var að nota grýturnar, því að þá komu hin svonefndu eldvirki, sem meðal annars eru nefnd í Grettlu. Virkin hafa í fyrstu sjálfsagt verið þrífætt upphald, sem sumir kölluðu ketilkrók,2) en ketilskerðing kom síðar fram á sjónarsviðið; hún var hentugri, því að þá mátti færa nær og fjær eldinum, en vitanlega var gerður eldur undir kötlunum, eftir að menn færðu sjer virkin í nyt. Svo að vikið sje aftur að ölhitunni, þá hefir maltið að sjálfsögðu verið látið í vatnið, þegar það var nægilega heitt, og hrært svo í maukinu, uns ugglaust þótti, að maltsykurinn væri runninn; að svo búnu hefir vökvinn verið síaður frá hrostanum og kældur hæfilega í gilkerinu. Það sjest víða í fornritum vorum, að kveikjurnar voru látnar undir í kerið, og að líkindum hefir þeim verið roðið innanvert á botninn, svo að vel getur verið, að eitthvað aukaker hafi verið notað til þess að kæla maltvökvann, áður en hann var látinn í gilkerið, þar sem gangur átti að koma í ölið. Eftir þessu að dæma lítur út fyrir, að íslendingar hafi að minsta kosti ekki alment notað hinn svonefnda 1) Sfurlunga III, bls. 220—221; II, bls. 70, 186. Fjöru- tiu Islendingaþættir. Rvík. 1904, bls. 525. 2) Svipað því sem fundist hefir í víkingaskipunum norsku. kveikjustokk, sem frændþjóðir vorar notuðu, en all-líklegt er nú samt, að svipuð gergeymsla hafi átt sjer stað í Noregi. Alt fram að Sturlungaöld verður ekki sjeð, að hjer hafi verið notaður hum- all við ölhitu, og þessvegna gepmdist ekki mun- gátið, því að mjólkursúrgerð kom í það eftir nokkra daga, og svo hefir smám saman edikssýru- gerðin tekið við og dregið úr vínandanum. Loks hefir alt fúlnað, og orðið ódrekkandi. Humallinn hefir sem sje ekki þann kost einan, að gera ölið hressandi, heldur ver hann það talsvert skemdum. í byrjun Sturlungaaldar virðist höf. margt benda til þess, að þá hafi nokkuð alment verið farið að nota vallhumal, til þess að ná væmubragði af ölinu, og Islendingar voru ekki einir um þessa vallhum- alsnotkun, heldur fóru allar nágrannaþjóðir eins að. Þjóðverjar spöruðu ekki humalinn; það sjest á ýmsum gögnum, sem höf. hefir rekið sig á þar í landi; þeir komust líka fljótt upp á lagið að rækta ágætis humalsafbrigði, enda náði þýska ölið snemma fótfestu meðal nágrannaþjóðanna. Eins og áður hefir verið skýrt frá, heittu Islendingar mikið mungát, bæði á söguöldinni og síðar; það sjest á Islendingasögum, að menn höfðu sjerstaka ölhitu- menn, enda var ölhitan áríðandi liður í veisluhöld- unum, því að veislurnar fóru oft eftir því, hvernig mungátið reyndist. Olgerðin brást stundum, bæði hjer og hjá frændþjóðinni í Noregi. Um veislu þeirra Sigurðar Jórsalafara og Eysteins er komist svo að orði: »Mungát var ekki gott ok voru menn hljóðir®.1) Nærri má geta, að kveikjurnar hafa ekki dugað hjá ölhitumanni; mungátið hefir því að líkindum verið ógerjaður, áfengislaus maltvökvi. Engin andleg umskifti urðu hjá veislugestum, og því hefir ekki losnað um glaðværðina. Helst lítur út fyrir, að einstöku menn hafi gert sjer ölhitu að atvinnugrein, síðla á söguöldinni, eða í byrjun Sturlungaaldar. Þórhallur bóndi, sem nefndur var ölkofri, hefir að líkindum verið einn af þeim, því að um hann er sagt: »Hann hafði þá iðju að gera öl á þingum, til fjár sér. En af þeirri iðn varð hann brátt málkunnigr öllu stórmenni, því at þeir keyptu mest mungát*. Eflaust hefir þetta verið hálfgerð pukursala, eftir þeim lagaákvæðum að dæma, sem sett voru um ölsölu á alþingi, nema þessi sala hafi farið fram á öðrum þingum. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að Sturlunga skýrir frá því, að höfðingjar, sem nokkuð ljetu til sín taka, höfðu með sjer sjerstaka ölhitumenn til þingsins. Mungát heimafyrir munu konur oftast nær 1) Fornmannasögur VII, bls. 119. [ 46 j

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.