Tímarit iðnaðarmanna - 01.09.1928, Síða 22

Tímarit iðnaðarmanna - 01.09.1928, Síða 22
w 7. mynd. Gerámur. lofti. Olinu er svo rent niður í gerkjallarana, í miklar eikarámur (sjá 7. m.), sem notaðar eru við gerðina. Erlendis hafa menn komist að raun um, að ó- hentugt sje að nota eikarílát, sökum dálítillar ger- smitunar, enda þótt það hafi verið gert öld eftir öld. Síðastliðið sumar rjeðist Tómas Tómasson í þann kostnað að koma sjer upp aluminium-hylkj- um (sjá 5. m.), sem nægðu að mestu leyti fyrir Pilsnergerðina, svo að það verður ekki með góðri samvisku sagt, að hann sje á eftir tímanum. Fimta deild ölgerðarhússins er ísvjelastofan (sjá 8. m.); frá henni liggja kuldablönduæðar um gerkjallara ölgerðarinnar, því að ölið verður jafnan að gera svo og svo lengi á sama hitastigi. Sje út af þessu breytt, getur gerið úrkynjast og breytt bragði ölsins. Sjötta deild ölgerðarinnar, er aftöppun Pilsner- ölsins. Að henni er nær eingöngu unnið með vjel- um, enda má ekkert út af bregða, svo að hvorki tapist kolsýra, nje ölið óhreinkist á neinn hátt. Pilsnerinn rennur í hreinum æðum úr gerámunum í gegnum síur inn í aftöppunarvjelarnar (sjá 9. m.); því er þannig fyrir komið, að flokkur af loftþjettum flöskum er kominn í aftöppunarvjelina, áður en ölið rennur í þær. Maltölsaftöppuninni er hagað á svip- 8. mynd. ísvjelarstofan. aðan hátt, en samt dálítið öðruvísi fyrir þá sök, að ölvökvinn er mjög þykkur. Sjöunda deild ölgerðarinnar er Pasteurs-hitun á ölinu (sjá 10. m.). Þegar búið er að Ioka flöskun- um í aftöppunarvjelinni, eru þær látnar í hitunar- vjelarnar. Þær eru mjög umfangsmiklar, og vinnu- lagi þeirra vel fyrir komið. Hitunarvjelarnar velgja aðeins ölið fyrst í stað, en svo smáeykst hitinn í því, án þess að nokkuð sje við vjelarnar átt, þang- að til hituninni er lokið. Pasteurs-hitunarvjelarnar í ölgerðinni >Egill Skallgrímsson* eru af nýtísku gerð, enda þykir það borga sig, þótt þær sjeu dýr- ari en hinar eldri. Þegar flöskurnar eru teknar upp úr hitunartækj- um þessum, eru límdir á þær miðar og settir á miðana mánaðardagar eða númer, til þess að vita jafnan um aldur ölsins (sjá 12. m.). Áttunda deildin er gerhreinræktunarstofa, og er hún nauðsynleg, því jafnan er skift um ger öðru- hvoru, ekki síst fyrir þá sök, að það er hálfkvalið í svo áfengislitlu öli, sem hjer er leyft að gera. Gerhreinræktunaráhöldin eru gerð eftir fyrirsögn hins kunna vísindamanns E. Chr. Hansens. Ölgeymsludeildin, sem er hin níunda í röðinni, l 52 ]

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.