Tímarit iðnaðarmanna - 01.09.1928, Síða 25

Tímarit iðnaðarmanna - 01.09.1928, Síða 25
T í M A R I T IÐNAÐARMANNA Skýrsla Iðnskólans í Reykjavík skólaáriö 1927-1928. I. In Memoriam. í vetur kom það fyrir í fyrsta sinn, síðan jeg tók við forstöðu Iðnskólans, að hann yrði fyrir þeirri óhamingju og sorg, að dauðinn kallaði burt nokkurn af kennurum hans eða nemendum, á meðan á starfstíma skólans stóð. Og nú var það líka svo um munaði, því nú fjellu í valinn einn af kennurum skólans á miðjum vetri og tveir nem- endur í lok skólatímans. Og allir fyrir sömu sigð- inni, »hvíta dauðanum*. 1. Jóhannes Kjartansson, verkfræðingur, var fæddur að Hvammi í Dölum 8. des. árið 1900. Hann var sonur hjónanna Kjartans prófasts Helgasonar í Hruna og Sigríðar Jóhannesdóttur. Gagnfræðaprófi lauk hann í Reykjavík, utan skóla, vorið 1919, og hlaut þá hæsta einkunn allra utan- skólamanna. Áður hafði hann stundað nám við Flensborgarskólann í tvo vetur. Hann lauk stú- dentsprófi vorið 1922, með 1. einkunn, og verk- fræðaprófi við »Tekniska Höjskolen* í Niðarósi vorið 1926. Að því loknu kom hann út hingað og starfaði hjer að kenslu á vetrum, en var heima hjá foreldrum sínum á sumrin. Við Iðnskólann kendi hann veturinn 1926—1927, og fram til hátíða í vetur sem leið. Jóhannes sálugi var glæsilegur maður í sjón og reynd. Hann var hár vexti og svaraði sjer vel, og andlitið gáfulegt og frítt. Við ókunnuga var hann fáskiftinn, en glaður og reifur með góðum vinum. Hann var frjálslyndur í skoðunum, án þess þó að hylla slæpingsskap og ómensku. Við kenslu- störfin var hann lipur og óvenjulega ástsæll af nemendum sínum, — og þó var sem hann þráði jafnan að komast frá kenslunni og að verkfræði- legum störfum. Jeg átti því láni að fagna, að kynnast Jóhannesi sáluga bæði sem kennari hans og samverkamaður, og mun ávalt minnast hans með eftirsjá, sem glæsilegs fjelaga og ágætis drengs. 2. Ragnar l/algeir Sigurðsson, málunarnemi, var fæddur 30. nóv. 1910 í Reykjavk og ljest 30. mars síðastliðinn. Faðir hans, Sigurður Guð* mundsson, er einnig dáinn, en móðir hans, Sig • ríður Einarsdóttir, býr í Bergstaðastræti 12, og ólst Ragnar sál. upp hjá henni. Síðastliðið ár byrjaði hann að læra húsamálun hjá móðurbróður sínum, Einari Gíslasyni málarameistara, og byrjaði jafnframt nám í Iðnskólanum síðastliðið haust. Hann var vinsæll og efnilegur piltur, sem aðstand- endur hans og kunningjar höfðu gert sjer miklar vonir um. 3. Reginbaldur Guðmundsson, raflagnanemi, var fæddur 21. okt. 1909, í Hellukoti á Vatns- leysuströnd og ólst þar upp hjá foreldrum sínum, Guðrúnu sál. Helgadóttur og GuðmUndi bónda Olafssyni. I fyrra byrjaði hann að læra raflagnir hjá Júlíusi Björnssyni rafvirkja og kom í Iðnskól- ann síðasfliðið haust, en ljest skömmu eftir skóla- uppsögn, 15. maí síðastliðinn. Hann var stiltur og vandaður piltur, og stundaði nám sitt af stakri kostgæfni. II. Nemendur skólans. í skólann voru innritaðir alls 192 nemendur, en af þeim voru 10, sem annaðhvort veiktust eða hættu við að koma af öðrum ástæðum. Af þeim 182, sem stunduðu nám í skólanum, voru 3, er útskrifast höfðu áður og stunduðu nú framhalds- nám, og 7 voru að eins hálfan veturinn. Flestir voru trje- og húsasmíðanemar, eða 50 alls, járn- smíðanemar 46, húsgagnasmíðanemar 22, múr- smíðanemar 20, málun lærðu 8, prentun 7, raf- virkjun 7, bökun 5, skipasmíði 4, blikksmíði 3, úr- smíði 3, klæðskurð 2, bókband 2, járnsteypu 1, rörlagnir 1 og rafvjelavirkjun 1. Milli bekkjanna skiftust nemendurnir þannig, að 13 sátu í 4. bekk, 48 í 3. bekk, 47 í 2. bekk og 74 í 1. bekk. 1. bekkur var þrískiftur, en 2. og 3. tvískiftir. Undirbúningsdeild var engin í þetta sinn. III. Kennarar skólans. Tímakennarar voru þessir: Guðmundur Jónsson kennari, kendi teikningu í 1 55 ]

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.