Vikan - 30.04.1959, Síða 10
Stuttur kvöldkjóll úr rósóttu efni, þau eru nú
mjög 1 tízku.
Hvernig lizt ykkur á nýjustu sam-
kvæmisgreiösluna ?
Öklasíður kvöldkjóll frá Balmain,
skreyttur meö perlusaumi.
Við þurfum ekki að brjóta heilann um hvað
við eigum að gera svo að gamli kjóllinn geti
orðið nokkum veginn móðins.
Við kaupum beltl . . . . Nú eru það belti og
aftur belti, því mitUð má vera þar sem það raun-
verulega er.
Kjólarnir eru ekki eins stuttir elns og þeir voru.
Þeir eru allir komnir niður fyrir hnéð og mega
jafnvel vera örlítið síöari.
Pilsin eru oft plisseruð og stundum allur kjóll-
inn, því pliaseringar eru mikið i tizku í ár.
Perlur eru aftur komnar í tízku til skreytingar
á kvöldkjólum. Pierre Balmain sem er þekktur
fyrir stílhreinan fatnað saekir hugmyndir sínar
í ár mjög mikið U1 austurlandanna. Kvöldkjól-
arnir frá Balmain eru afar efnismiklir og perlum
skreyttir.
Jaeques Heim’s sýnir nú öklasíða kvöldkjóla.
Carven hefur alltaf og gerir enn, hugsað mest
um hinar smávöxnu konur. Þær fá hvergi í
heiminum klæðilegri fatnað en þar.
Patnaður frá Carven, engu síður en ilmvatnið,
sem oft fæst hér og margir kannast þess vegna
við, hefur eitthvað heillandi til að bera sem er
alveg sérkennilegt fyrir þetta tízkuhús.
Saint Laurent, eftirmaður Dior og Chanel cru
þau sem mesta eftirtckt vekja með fatnaði sín-
um í vor, ekki af því að hann er sérkennilegri
en hinna tízkuhúsanna í París, heldur af því að
þau komast næst óskum fólksins.
NÝJUSTU TÍZKUFRÉTTIR
FRÁ
10
VIKAN