Vikan - 30.04.1959, Side 11
Chery Crane er hón fannst meðal
slæpingja i Los Angeles.
Við skulum ekki halda, að þetta
mál sé engöngu rætt í útvarpsþætt-
inu „Spurt og spjallað'1 hér í okkar
ágæta útvarpi -— o sei — sei — nei!
Það er víðar Guð en í Görðum —
eins og þar stendur. Og það eru víð-
ar syndum spilltar sálir en á Islandi
— bæði ungar og gamlar. En mun-
urinn er þó, að unga fólkið, meðan
það á ekki afkvæmi, eyðileggur aðal-
lega sitt eigið lif, en við — hin eldri
— verðum að skilja ,að ef unga fólk-
ið er spillt, þá er sökin okkar, ein-
staklinganna og þjóðfélagsins.
/%llt frá dögum IVióse
Allt frá dögum Móse hefur okkur
verið kennt að syndir feðranna komi
fram á börnunum. Kynslóð eftir kyn-
slóð hafa sannað þetta. Hvernig get-
um við þá í stóru eða smáu skotið
okkur undan ábyrgðinni?
Það minnsta, sem við getum gert,
er að viðurkenna, að ekki er allt sem
skyldi.
Við skulum ekki fara að vitna í
nein nærtæk dæmi í okkar litla þjóð-
félagi, það gæti verið allt of við-
kvæmt mál. Birtar hafa verið ekki
alls fyrir löngu blaðagreinar sem
skýrt hafa frá börnum, sem komið
er með á sjúkrahús blá og marin.
Jafnvel ósannað mál, hvort ekki hafi
verið um brunabletti að ræða eftir
vindlinga á andliti eins ungbarnsins.
Þess er heldur ekki langt að minn-
ast, að birt var frásögn í dagblöðön-
um þess efnis, að vöggubarn hefði
gleymst úti í vagninum sínum næt-
urlangt. Um hitt skulum við alls
ekki ræða, hvað við persónulega
Jiomumst í kynni við. Mæður bilað-
ar á tagum eftir nýafstaðinn hjóna-
skilnað, konur, sem koma dauðþreytt-
ar heim úr vinnunni með litlu börn-
in sín, sem hirt hafa verið á ein-
hverju barnaheimilinu á leiðinni
heim. Móðir og barn, þre'ytt og von-
svikin þessa litlu stund, sem þau
egia saman á degi hverjum, eiga
ekki alltaf uppbyggilegar eða á-
nægjulegar stundir saman, oft síður
en svo. Það er óþarft að ræða hér
lengi um hina meira eða minna mis-
heppnuðu skólavist og léleg námsaf-
köst eldri barnanna, sem búa við
eintóma upplausn i heimilisháttum.
Við skulum heldur ekki vera lang-
orð um þann sársauka og þá andlegu
ofraun, sem það er hverjum ungling
að finna, að hann á engan bakhjarl,
engan, sem hægt er að treysta,
hvorki í meðlæti né mótlæti, eða sem
hægt er að virða og vera hreykinn
af, en slíkt gefur óþroskuðum ung-
ling aukið þrek og sjálfsvirðingu.
Engan, sem gefur þau fordæmi, sem
eru heppileg til eftirbreytni fyrir
ungmennið og um leið hyrningar-
SPILLING ELDRI
KYNSLÚDARINNAR
steinn að lífshamingju þess sjálfs og
niðja þess.
Hollywood
þetta draumaland
Nei, við skulum heldur tala um
Hollywood þetta draumaland, sem
við flest fáum aðeins séð gegnum
„hugmyndanna gler."
Á undanförnum árum höfum við
heyrt hverja harmsöguna af annarri
um hin glötuðu börn kvikmyndaleik-
aranna þar.
Taugaveiklun, eirðarleysi og lífs-
leiði eru hinir tryggu förunautar
þeirra bama, sem búa við skort á
ástúð og umhyggju foreldranna og
finna, að hvorki þeir né lífið sjálft
gerii' neinar kröfur til þeirra, en
þess í stað hent í þau öllu því, sem
hægt er að kaupa fyrir peninga.
Hvers er hægt að vænta af barni,
sem verður að skipta um föður og
móður — jafnvel mörgum sinnum.
Hver ber ábyrgðina?
Hver ber ábyrgðina, þegar 14 ára
telpa verður morðingi?
Cheryl Crane, dóttir Lönu Turner
drap, eins og allir muna, elskhuga
móður sinnar með brauðhníf, þegar
henni fannst ekki vera um annað að
velja til að bjarga lifi móður sinnar.
Nafn Lönu Turner var löngu þekkt
meðal kvikmyndahúsgesta, en síðan
þetta kom fyrir hefur það verið á
hvers manns vörum.
Hún er að visu ekki eins mikil
leikkona og margir vilja vera láta,
en hún hefur fallegt andlit og er
mjög glæsileg. Þrátt fyrir sín 38 ár
hefur hún til þessa verið ein af hin-
um eftirsóttu konum í Hollywood.
Því að fyrir utan sitt góða útlit er
hún mjög þekkt og stórrík.
Það er því eitt af þessu óskiljan-
lega að hún skuli hafa haft jafn
náið samband við slíkan mann og
Johnny Stompanato var.
Undirheimar
Hollywood
A vísu á Hollywood sína undir-
heima, þar sem slíkir menn, á þeirra
máli „entelmen — gangsters," sem
lögreglan hefur stöðugt auga með, en
getur ekki klófest, stunda allskonar
atvinnu, sem ekki þolir dagsins ljós,
en gefur því betri arð. Johnny
Stompanato var einn af þessum
mönnum, en þrátt fyrir það voru
hann og Lana Turner áaðskiljanleg í
fulla 14 mánuði, og það þurfti hvorki
meira né minna en morð til þess að
það yrði að verulegu hneyksli.
í leif að ástinni
Lana hefur ekki verið við eina fjöl-
ina felld í ástamálum sínum, en hún
hefur gefið þá skýringu á því -— að
hún sé ávalt í leit að ástinni. Þetta
er liklega eina rétta svarið, þvi að
eigingirnin getur verið svo mikil, að
aldrei sé hægt að elska neinn, nema
sjálfan sig.
17 ára gömul kom Lana Turner
fyrst til Hollywood og gat þá bók-
staflega ekki þverfótað fyrir aðdá-
JLana og dóttirin á frumsýningu.
endum. Hún opinberaði fljótlega trú-
lofun sína með ungum og þekktum
lögfræðing, en giftist skömmu seinna
bezta vini hans. Þau voru gift í tæp
tvö ár, en þá skildu þau þau og hún
giftist Stephen Crane, sem er faðir
Cheryl hins óhamingjusama barns
hennar.
Cheryl hefur ávalt elskað móður
sína afar heitt og veiið hreykin af
henni, en eftir því sem hún eltist og
hún fór að skilja meir það sem fram
fór, varð þess meira og meira vart,
að barnið var óhamingjusamt og yfir-
spennt á taugum. Sambandið á milli
móður og dóttur hefur þó ávallt
verið gott og Cheryl naut hverrar
stundar, sem hún gat fengið að vera
með móður sinni, sem eðlilegt var,
því að faðirinn var floginn út í veð-
ur og vind. Það er þó aðallega eftir
að Lana fer að vera samvistum við
Johnny Stompanato, þann mann, sem
lögreglustjórinn í vissum hluta
Hollywoodborgar gaf þann vitnis-
burð, að hann væri rakinn þorpari,
að Cheryl virðist vera á góðri leið
með að fara í hundana. Hún hverfur
fyrirvaralaust frá heimavistarskólan-
um, sem hún átti að vera í. Hennar
er leitað i marga daga af lögreglunni
og hún fannst að lokum, þar sem
hún e að þvælast stefnulaust og án
nokkurra fyrirætlana meðal slæp-
ingja í Los Angelse. Þá fyrst gat
hún ekki lengur leynt sálarkvölum
sinum og óttanum við þann mann,
sem móðir hennar var samvistum við.
IVSóðir min er a
lífshæffu
Hún fer samt heim til móður sinn-
ar og þar skeður það, að hún verður
þessum manni að bana. I marga
klukkutima hlustar hún á hann hóta
móður sinni öllu illu, jafnvel lifláti,
þar sem hann dvelst einn með henni
inni í svefnherbergi hennar. Það síð-
asta, sem hún heyrir, áður en hún
brýzt inn í herbergið og fremur
verknaðinn er, að hann segir: „Ég
á eftir að ná mér niðri á þér, hvort
sem það verður í dag eða á morgun
eftir mánuð eða ár. Þá er henni allri
lokið óttinn og skeflingin verður öllu
öðru yfirsterkara.
Cheryl Crane er fundin saklaus
bæði af réttvísini og samtíð sinni.
Samkvæmt dómsúrskurði býr hún nú
hjá ömmu sinnl.
Hún er nú aðeins 15 ára gömul, en
skuggi fortíðarinnar mun aldrei vikja
frá henni né niðjum hennar.
„Allt í 8agi“
Þetta var í Hollywood. Ekkert
líkt þessu getur nokkurn tíma skeð
hér í höfuðborginni okkar, þar sem
„allt er í lagi" og íbúarnir segja
brosandi „allt í lagi", þegar einhverj-
um öfugugga finnst einmitt eitthvað
vera í ólagi. Og það er kannske líka
„allt í lagi," þótt sum börnin okkar
steyti hnefann full af þrjósku og sár-
saukafullri reiði og reiði til höggs
gegn spillingu eldri kynslóðarinnar.
Lana Turner í réttarhöldunum.
VIKAN
11