Vikan - 30.04.1959, Blaðsíða 23
C. H. Sleigh gat ekki sofið þessa
nótt. Skyndilega kallaði hann á menn
sína og skipaði þeim að rannsaka
hvern svefnskála. Kápa Berndt fannst
troðin út með tveimur koddum, og
skömmu síðar fannst opið i girðing-
unni.
Þjóðverjarnir voru farnir að vona,
að Berndt hefði heppnast flóttinn.
En skömmu eftir hádegi næsta dag,
heyrðu þeir eitt skot í fjarska, og
um leiö brustu allar vonir þeirra.
Alex Weir (foringi í skógarvarða-
sveitinni, lét riffilinn síga og sagði
skjálfraddaður: „Ég miðaði á fæt-
urnai’ á honum. Hann hrasaði, þegar
ég hleypti af . . .“
Weir hafði rekizt á hann skammt
frá fangabúðunum, litið á vegabréf
hans. Maðurinn hafði sagzt vera
hollenzkur sjómaður, sem misst hefði
af skipi sínu og væri nú á norður-
leið, til þess að reyna að ná því í
Skotlandi.
Skógarvörðurinn hafði hlustað á
sögu ókunna marmsins með bland-
inni samúð. Hann trúði henni hálf-
vegis, en það var eitthvað dularfullt
við þetta allt.
„Ef þér viljið, skal ég sjá um, að
þér komizt til Glasgow." Weir benti
á bækistöðvar sinar, sem lágu þar
nærri.
Á leióinni reyndi maðurinn að finna
ráö til undankomu. Hann kom auga
á kjarr sér á vinstri hönd. Handan
við það var skógur.
Skyndilega stökk hann af stað í
áttina að skóginum.
Um leið skildist Weir, að þetta var
Þjóðverjinn, sem saknað var. Hann
mioaöi á fætur Brendts, en í sama
bili hrasaði Brendt við, svo að kúlan
kom í bakið á honum.
Þegar læknirinn kom að Berndt,
var hann dáinn.
Skömmu síðar var Hans Rahmlow,
kapteinn, fluttur frá London til
Grizedale. Kapteinninn fyrrverandi
af U-57« gekk til Kretschmer og
rétti honum höndina. Kretschmer leit
ekki við henni.
„Það ætti að krossfesta þig fyrir
hugleysi, Rahmlow. Ég var að koma
frá jarðarför Berndts, eins manna
þinna. Þú verður dæmdur á morg-
un.“
Rahmlow svaf illa þessa nótt. Og
ú/fifSuA áÁyýýýuyn/
/
brezku hermönnunum stóð ekki á
sama. Þegar átti að leiða Rahmlow
fyrir rétt næsta dag, var hann lagð-
ur af stað ásamt brezkum varðmönn-
um til annarra fangabúða. Skömmu
síðar var hann fluttur til Kanada.
Á meðan hafði U-570 verið breytt
í H.M.S. Graph — og hlutverk hans
var að elta uppi systurkafbáta sína
og sökkva þeim. Brátt var kafbátur-
inn kominn á haf út, undir stjórn
Marriotts undirforingja.
Undan Spánarströndum rakst kaf-
báturinn á nokkra togara, sem hann
lét í friði. Föstudaginn 16. október
heyrðist hávaði í leitartækjum kaf-
bátsins. Lítið flutningaskip óvinanna
birtist fyrii' ofan kafbátinn. En það
fékk að halda áfram sína leið. Menn-
irnir vildu ekki koma upp um kaf-
bátinn, þar eð þeir voru að leita að
enn stærri bráð.
En Marriott fór að hafa áhyggj-
ur út af því að hann fyndi ekki
þessa eftirsóttu bráð.
Dag einn stóð hann við hring-
sjána í kafbát sínum. Skyndilega
heyrðist frá manni þeim, sem sat við
leitartækin: „Kafbátur í nánd.“
Marriott lét breyta stefnu og reyndi
að staðsetja þennan óvænta gest.
Hann leit enn í hringsjána og bölv-
aði. Hann trúið ekki sinum eigin
augum. Skammt framundan kom
hann auga á kafbát ofansjávar!
Marriott bjó þegar x stað alla menn
sina undir árásina. Hinn kafbátur-
inn var málaður með skærgrænni
málningu, og sólin endurvarpaðist
at gljáandi skrokknum.
Marriott lét hleypa af fjórum
tundurskeytum í einu — brezkum
tundurskeytum. Síðan lét hann hraða
ferðinni og bjóst til að ráðast að
hinum bátnum frá stjórnborða. Þess
þui’fti ekki.
Ógurlegur hávaði heyrðist gegnum
þykka veggi kafbátsins — tvær
sprengingar, og í kjölfar þeirra alls
kyns kynjahijóo.
Sumir yngri mannanna glottu og
tókust í hendur. En Marriott hætti
ekki á neitt. Hann beið lengi, áður
hann fór upp á yfirborðið og hlóð
aftur framhlaupin með tundurskeyt-
um. Þetta kvöld mátti sjá umsögn
um þetta í skipsdagbókinni, sem skar
sig út úr öllu öðru: „1650: Sökktum
kafbát, staðs. 44 gráður 31 mín. N
— 7 gráður 25 mín. V."
1 miðjum Biscayflóanum var kaf-
bátur sokltinn til botns — af völdum
systurbáts síns.
„Enginn vafi?“ spurði Hitler.
„Enginn vafi!“ svaraði Dönitz.
Hann hafði tilkynnt tap á þrem-
ur kafbátum á einni viku. Auk þess
tók það hann sárt að þurfa að segja,
að tveir þeirra hefðu verið skotnir
niður í Biscayflóanum.
Hitler skalf af reiði. „Rahnilow?
Hvar er hann?"
1 fangabúður í Kanada.
„Hvað á að gera við hann?“
„Það er ekkert hægt að gera. Hin-
ir liðsforingjarnir hafa ýtskúfað
hann, en hann er vel geymdur . í
kanadísku fangabúðunum."
Hitler vissi ekki hvernig hann átti
að hegða sér. Dönizt bjóst á hverri
stundu við að sjá hann þeyta frá sér
stólnum og skrefa um herbergið eins
og dýr í búri.
„Það verður að eyðileggja þennan
kafbát," skipaði hann loks. „pjör-
eyðileggja hann.“ Hann kreppti hnef-
ana. „Það verður að finna hann.“
En örlög þessa kafbáts urðu önn-
ur en Hitler ætlaðist fyrir. Kafbát-
urinn var mjög mikið notaður í strið-
inu, auk þess sem hann var notaður
til almennrar æfingakennslu. En 20.
marz 1944 strandaði hann undan
skozku eyjunni Islay -— og engin von
var um að ná honum aftur á flot.
I-Iægt og hægt liðaðist hann i sund-
ur, og varð að lokum ókennilegt
hrúgald.
Sjónum hafði verið goldinn sá
skattur, sem honum bar . —,u.....
Framhald af bls. 26.
Nauðsynlegt, því að ef 40. g4—g5,
Rf6—g4 og svart fær sterkt frípeð.
40. -- Db5—e2!!
Þessi staða líkist mest skákdæmi,
þar sem hvítt getur engu leikið, án
þess að leiða yfir sig skyndilegt tap.
T. d. 41. Rf2—h3, Rf6—g4!; og vinn-
ur. 41. Rf2—g4, Rf6Xg4!; 41. Hh2
—h3 eða hl, Þá Rf6—g4 og vinnur.
41. d4—d5 Kh7—g8!!
Ekki 41. ----. h6—h5 vegna 42.
Rf2—h3 ásamt 43. Rh3—g5|.
42. h4—h5 Kg8—h7
43. e3—e4 Bf6Xe4
44. Bf2xe4 De2Xe4
45. d5—d6 c7X<16
46. f5—f6 g7Xf6
47. Hh2—d2 De4—e2!!
(ÍÖFGGINGAFElAGffi
KLAPPARSTÍG 26 . REYKJAVÍK
SlMI 11730
Kennarinx: „Eins og þið vitið,
börnin bóð, þá er maðurinn öðruvísi
en dýrin, að því leyti, að hann veit,
hvað hann er. Hann veit að hann er
maður, en dýrið veit ekki að það er
dýr. Ef svínið vissi, að það væri
svín, þá-----“
Nemandinn greip frarn í og sagði:
„Þá væri það maður."
.....
SKÁK
Fallegur endir eftir harðan leik.
48. Hd2Xe2
49. Itgl —f2
50. KÍ2XÍ1
51. Iífl—f2
52. Kf2—eS
53. Ke3—e4
Gefið.
f3Xe2
e2xflDf
Iíh7—g7
Kg7—Í7
Kf7—e6
(16—d5f
Heildsölubirgðir
I. BBYNJÓLSSON & KVABAN
Fyrir 100.000 kr. HEIMILISTRYGGINGU
greiðið þér:
Steinhús
Ttmburhús
Reykjavík Akureyri Hafnarfi. ASrir kaupsL oq kauptún Annarssfaðar
30o.~ 3oo.- 325.- 325,—
^75.' 5oo.- 525.- 635.-
VIKAN
23