Vikan - 21.05.1959, Page 2
PÓSTURINN
Góð þjónusta.
Kæri póstur!
Mér finnst alltaf svo grimmur í þér tónninn,
og allir, sem þér skrifa, eru alltaf að skammast
út í eitthvað. Þess vegna langar mig til þess að
skrifa þér nokkrar línur. Ég fór um daginn með
manni mínum upp í NAUST og við borðuðum þar
kvöldmat. Við vorum þar allt kvöldið og fengum
alveg prýðisgóða þjónustu. Alveg hreint frá því
að við komum inn og þangað til við fórum út.
Bæði dyravörðurinn og þjónarnir eru góðir og öll
þjónusta til fyrimyndar. Mér finnst líka að sumir
aðrir staðir ættu að taka sér NAUSTIÐ til fyrir-
myndar. Æg skrifaði þér nú þessar línur til þess
að segja þér, að það er hægt að fá góða þjón-
ustu á Islandi.
Kær kveðja. Ánægð.
SVAR: Þakka þér fyrir bréfið. Við crum þér
alveg sammála.
—O—
Kvenlöggan.
Kæra Vika!
Ég veit varla, hvort það þýðir nokkuð að skrifa
þér, en ég ætla nú að reyna samt. ®g er í fer-
legum vandræðum, því að pabbi minn er búinn að
reka mig að heiman, og ég er bara fimmtán ára
gömul. Svoleiðis er mál með vexti, að hann komst
að því, að ég hafði skrópað nokkrum sinnum úr
skólanum og þá varð hann agalega reiður og
fórum að vera saman. Hann heimsótti mig oft á
kvöldin og var hjá mér stundum dálítið lengi.
Svo sagði ég honum einu sinni að ég væri þreytt
i vinnunni og ég gæti ekki verið svona mikið með
honum, en þá varð hann vondur og hætti við mig.
Ég hef séð hann stundum á böllum eftir að þetta
skeði, og þá er hann með öðrum stelpum. Ég sé
svo mikið eftir honum, hvað á ég að gera?
Stína.
SVAR: Láttu strákinn sigla sinn sjó, hann er
ekki einu sinni þess virði, að þú gjótir til hans
öðru auganu. Líttu svo í önnur horn, þegar þn
fcrð á böll, og findu þér annan strák.
—O—
Rúntúrinn.
Margir hafa skrifað Vikunni og kvartað yfir
hinum svonefnda „rúnti.“ Hér birtist bréf frá
húsm.óður, sem átti leið um miðbceinn að kvöld-
lagi eigi alls fyrir löngu.
Kæra Vika! Það er nú ljóta plágan þetta ráp
í krökkunum i miðbænum á kvöldin. Ég brá mér
út, nýlega og þurfti að ganga gegnum bæinn og
fór eftir Austurstræti. Klukkan var rúmlega níu
og gatan var full af æpandi krakkaskríl. Þau
voru flest um fermingaaldur, svona frá þrettán
ára og allt upp í sautján, átján ára gömul, eða
táningar eins og Vísir kallar það. Þau röltu
hvíandi og flautandi um eða hengu fyrir utan
,,sjoppu“ eina alræmda, sem staðsett er þarna í
hjarta bæjarins. Þegar ég fór fram hjá þeim
kölluðu þau að mér ókvæðisorðum, og slíkt var
Hann barði hann í götuna hvað eftir annað og
dró hann síðan eftir henni með því að toga í fæt-
ur honum, en drengurinn lá á grúfu. Hann kom
sér síðan í burtu, en maður, sem kom þarna að í
bíl, tók strákinn upp og hefur sjálfsagt keyrt
bann upp á slysavarðstofu. Nú langar mig til
þess að spyrja, hvort svona lagað geti átt sér
stað, án þess að lögreglan komist í það, og hvort
ekki sé hægt að refsa svona föntum rækilega?
SVAK: Við höfum snúið okkur til rannsókn-
arlögreglunnar og leitað upplýsinga hjá henni,
hvort nokkur kœra, liggi fyrir vegna umrœdds
atburðar. Þar fengum við þau svör, að ekkert
hefði heyrst um þetta mál. Vessulega er leitt til
að vita, að sökudólgurinn skúli ekki vera komið
undír mannahendur, því að svona föntum bceri
að refsa harðlega.
—O—
„Próblem.“
Kæra Vika!
Ég er í voðalegri klípu, því að ég er hrifinn af
manni, sem vill ekki sjá mig. Ég á 3ja ára stelpu,
sem mér þykir agalega vænt um. Hún er nú eig-
inlega potturinn og pannan í þessu vandræða-
ástandi, því að svoleiðis er, að manninum þykii'
vænt um mig, en hann vill ekki giftast mér vegna
stelpunnar minnar. Fyrst, þegar við byrjuðum
að vera saman, vissi hann ekkert um barnið
mitt, en ég hafði komið því fyrir í fóstur hjá
foreldrum mínum, sem búa í sveit. Þegar hann
frétti það (ég sagði honum það) varð hann alveg
tjúllaður og rauk út í fússi og sagði mér rétt á
eftir, að það væri bezt, að við slitum sambandi
okkar. Ég veit ekki, hvað ég á að gera, getur þú
sagði að ef ég hagaði mér ekki betur þá gæti
ég hætt í skóla og farið að vinna og sjá fyrir
mér sjálf. Svo fór ég rétt á eftir á ball með
nokkrum krökkum og kvenlöggan kom og tók
mig og keyrði mig heim í lögreglujeppa. Pabbi
var á kenderíi og var að spila og hann sagði öll-
um hinum köllunum að fara og skammaði mig
alveg ógurlega mikið, og hann sló mig líka og
sagði að það væri víst bezt að ég færi að sjá
fyrir mér sjálf. Ég fór strax á eftir til mömmu
en hún og pabbi eru skilin, og hún er gift aftur.
Svo er pabbi búinn að tala við mig að segja mér
að ég megi koma til hans, en ég veit ekki hvað
ég á að gera. Hvað finnst þér Vika min?
G. J.
SVAR: Pabbi þinn bíður eftir þér, vinkona
góð, og flýttu þér heim til hans. fig er viss um,
að hann býður þér á batl, þegar þú ert orðinn 16
ára.
Söknuður.
Kæra Vika!
Ég er 19 ára gömul og búin að eiga heima í
Reykjavík í 3 ár. Foreldrar mínir búa á Selfossi,
og ég leigi hjá frænda minum. Ég vinn í verk-
smiðju og fer á fætur klukkan rúmlega 7 á
morgnanna, vinn allan daginn og fer yfirleitt
snemma að hátta, þar sem vinnan er dálítið erfið.
Um daginn fór ég á ball með einni vinkonu minni
og kynntist þar strák, sem ég er skotin í. Við
orðbragðið, að verstu orðhákum hefði þótt nóg |
um. Lögregluþjónar voru þarna á rjátli, en þeir §
virtust láta lögreglusamþykktina sem vind um §
eyru þjóta og skiptu sér ekkert af því, þótt þessir |
grislingar væru að flækjast úti eftir háttatíma. |
Svo keyrðu „gæjarnir" þarna um á bilum feðra E
sinna og þeyttu hornin og blístruðu eftir ;
„skvísunum" sínum eins og það er sagt á ,,góðri“ |
reykvísku. Er ekki kominn tími til að yfirvöldin i
grípi hér í taumanna, svo að friðsamir borgarar |
komist óáreittir leiðar sinnar um miðbæinn að |
kvöldlagi ? |
Húsmóðir. 1
SVAR: Jú, jú, þetta er ófremdarástand, en ekki I
má það gleymast að þetta er ekki síður heimilun- |
um að kenna en lögreglunni, sem cetti ekki að =
þurfa að eltast við „gœjana og skvísurnar“ eins =
og þú orðar það. En þegar öllu er á botninn I
hvolft skulum við minnast kvœðisins, sem borg- =
arskáldið orkti forðum: |
Því lífið heldur áfram, Austurstrœti,
og önnur kynslóð tekur viö af hinni,
sem forðum daga fór með þys og lœti
og fagnaði og liló á gangstétt þinni.
Kæri Póstur.
Ég varð vitni að hræðilegum atburði hérna um i
helgina. Ég var að hofa út um glugga hjá mér og i
sá þá drukkinn mann misþyrma 11—12 ára strák. i
„Ambassadeur" dagstofusettið vekur aðdá-
un allra sem unna fögru formi og vandaðri
framleiðslu, og telja það með fegurstu dag-
stofuhúsgögnum, sem liér hafi sézt á mark-
aðnum.
Sætis- og bakpúðar eru úr svampi og allir
lausir.
Rennilás á húsgagnaáklæði er algjör nýjung
hér á landi. Þetta auðveldar hreinsun áklæð-
isins, því nú má taka það af með einu hand-
taki og senda það í hreinsun.
Aklæðið er úr beztu fáanlegum efnum og
litur og gerð eftir eigin vali.
Góðir greiðsluskilmálar.
SKEIFAM
\ ?
LAUGAVEGI 66 SKÓLAVÖKÐUSTÍG 10
SÍMI 16975 SÍMI 15474
VIKAN