Vikan - 21.05.1959, Qupperneq 3
Hœttulegar fatahreinsanir.
VIKAi
Otgefandi: VXKAN H.F.
Blaðst jóm:
Hilinar A. Kristjánsson (ábm.)
Jónas Jónasson
Bragi Kristjónsson
Ásbjörn Magnússon
(auglýsingast jóri)
Framkvæmdast jóri:
Hilmar A. Kristjánsson
Verð í lausasölu kr. 10,00. Áskriftarverð
kr. 216,00 fyrir hálft árið. Greiðist fyrir-
fram.
Ritstjóm og auglýsingar:
Tjarnargata 4. Siml 15004, pósthólf 149.
Afgreiðsla, dreifing:
Blaðadreifing h.f., Miklubraut 15. Simi
15017.
Prentað í Steindórsprent h.f.
Kápuprentun I
Prentsmiðjunni Eddu h.f.
Myndamót gerð í
Myndamótum h.f., Hverfisgö’tu 50.
ekki gefið mér eitthvert ráð ? Með fyrirfram
þökk.
Óhamingjusöm.
SVAR: Steinhœttu að hugsa um þennan mann
og gleymdu því ekki,að þú ert sjálf potturinn og
pannan í þessu en ekki harnið þitt. Scettu þig
við það, að það var ekki rétti maðurinn, sem þú
hittir í þetta skipti.
—O—
Prentvillupúkinn
Kæra Vika!
Ósköp ertu illa prófarkalesin. Ertu svona fá-
tæk að þú getir ekki fengið alminnilegan hrein-
gerningarmann til þess að pússa og skrúbba fjár-
ans ekkisens prentvillupúkann ? Annars sá ég
það i síðasta pósti, (hvur var allur útbíaður af
feitum og svörtum púkum) að þú ert að fá nýjan
ritstjóra og óska ég þér til lukku með það. Bless-
uð hættu nú að birta þessar vitlausu stjömuspá-
dómakerlingabækur. Konan min á von á barni
(börnum) og hún þýkist hafa lesið það út úr
Vikustjörnuspádómi, að það verði þriburar, (og
ég er pikkandi nervös, en segðu engum það)
Annars í alvöru að tala, hver er þessi nýi rit-
stjóri ?
SVAR: Skammastu þln ekki maður að vera
svona forvitinn, en ef þú vilt fá að vita það,
lestu þá stjömuspádómana.
—O—
U [ :;! ■ Frímerki.
Kæri Póstur!
Væri ekki hægt að koma því svoleiðis fyrir að
hægt væri að fá frímerki keypt í bókabúum, sér-
staklega í úthverfum? Það er svo erfitt að þurfa
alltaf að fara niður í miðbæ til þess að geta póst-
lagt bréf (fengið fyrst frímerki).
Othverfingur
SVAR: Keyptu fleiri frimerki, þegar þú ferð í
bœinn.
—O—
Kurteisi og Ameríkanar.
Kæra Vika.
Það er alltaf verið að hneykslast á íslenzkum
stelpum, þegar þær eru með könum. Eg verð að
vikurkenna það, að sumar stelpur eru lauslátar
og eru bara með þeim til þess að láta þá ,,splæsa“
á sig og skemmta sér með þeim eins og það er
stundum sagt. Fyrir dálitlu síðan kynntist ég
strák, sem er á Keflavíkurflugvelli í varnarliðinu
þar. Nú svo, þegar ég kom með hann heim, ætlaði
pabbi alveg að ganga af göflunum og kallaði
mig öllum illum nöfnum og hundskammaði strák-
greyið á sinni bjöguðu og asnalegu ensku. Hann
varð steinhissa, en kvaddi eins og sjentilmaður
og fró. Svo rifumst við pabbi auðvitað, og ég
sagði honum, að hann gæti sjálfur verið dóni,
því að við hefðum ábyggilega ekki ætlað að gera
neitt ljótt.
Eg sé mikið eftir að hafa verið að rífa þetta
kjaft við pabba, en þó finnst mér, að hann hafi
átt þetta skilið. Hvað finnst þér Vika mín? Við
erum saman í laumi strákurinn og ég og við er-
um hrifin hvort af öðru og ætlum að gifta okkur.
Þó er ég dálítið hrædd, hvað finnst þér að við
ættum að gera?
18 ára.
SVAB; Vitaskuld hefðir þú ekki átt að standa
uppi í hárinu á föður þínum. Mundu það að eitt
af því, sem þú taldir stráknum þínum til hróss
var það, að hann vœri kurteis og það er aldrei
kurteisi að standa uppi í hárinu á föður sínum.
Hvað giftungunni viðkemur er erfitt að gefa ráð.
Ef þiö eruð hrifin hvort af öðru, virðist fátt vera
því til fyrirstöðu, að þið giftið ylckur, en þó í,
guðana bœnum, farðu hægt í sakirnar og mundu,
að þú ert aðeins 18 ára, og þetta er mikilvœgt
spor, sem þú ert að stíga. Reyndu að tála við
foreldra þína um þetta.
Kæra Vika!
Ljótt er ástandið hérna í bænum með fata-
hreinsanirnar margar hverjar. Eg fór með frakka
mannsins míns í fatahreinsun, sem ekki er langt
frá „Síld og fisk"-verzlun, sem ég verzla gjarn-
an við. Ég spurði stúlkuna, hvort ég þyrfti ekki
að taka tölurnar af frakkanum, en hún sagði, að
það væri alveg óþarfi. Þegar ég svo sótti frakk-
ann á tilsettum tíma, þá voru allar tölurnar ó-
nýtar á frakkanum og blettir á honum, sem ekki
var hægt að ná úr. Ég fékk að tala við foráða-
mann þessarar aumu stofnunar, en hann hrissti
bara hausinn og tautaði í sífellu, við tökum enga
ábyrgð, við tökum enga ábyrgð, við tökum enga
ábyrgð. Þar sem þetta var það eina, sem ég gat
fengið upp úr mannveslingnum, fór ég burt í
fússi, og bæði öskureið. Sættumst við á það, mað-
urinn minn og ég, að koma aldrei þarna inn aftur
og við það munum við bæði standa.
SVAfi; Ég trúi því vel. Eg var einmitt að ræða
við einn vin minn um daginn, yfir kaffibolla, um
allsky^is svik, og hann kom með þá uppástungu
að svona fólk yrði assskellt á Lœkjartorgi.
—O—
Garðrœkt.
Blessuð Vika mín góð heldurðu nú ekki, að
þú vildir brýna fyrir foreldrum að banna börnum
að skemma garða og leika sér í annara manna
görðum. 1 fyrra eyðilögðu börn nefnilega garð-
inn hérna hjá okkur, snemma vors og hann bar
ekki sitt barr eftir það.
Húsmóðir.
Við komum þessu hér með á framfœri bœði við
foreldra og böm.
—O—
Leynivínsalar
Kæri Póstur!
Mikið djöfuls plága er þessi sprúttsala leyni-
vinsalanna. Það segir mér það piltur, sem ég
kannast við og er bezta skinn, og lýgur ekki
mikið, að hægt sé að fá vin allt frá ákavítis-
óþvera og upp i koníak, allar stundir sólar-
hringsins. Margt hefur verið skrifað um drykkju-
ómenningu Islendinga og allflestir dregið enga
dul á, aö þar erum við hreinustu skithælar eins
og bóndinn sagði um smalann, sem missti á í
pytt. Og það þarf enga rithöfunda eða önnur tild-
umenni með vandlætingasvip til þess að laga
þetta. Eg, gömul kerling orðin, ofan úr sveit, get
lagt lausnina á borðið, að mér heilli og lifandi.
Ef við göngum jafn vel fram á móti sprútt-
sölunum og landhelgisbrjótunum, þá mun okkur
takast að brjóta þá á bak aftur og láta þá liggja
afvelta, akfeita og úrkynjaða inni í bjúikkbilun-
um sínum. Stattu þig nú Vika mín og birtu þetta
bréf. Aðflutt.
Ekki skulum við liggja á liði okkar til þess að
upprœta sprúttsöluna.
VIKAN