Vikan - 21.05.1959, Qupperneq 10
Dönsk dagstofuhúsgögn úr eik, teiknuð af Finn Juhl.
Norskt hjónarúm úr
eik, framieitt hjá Öst-
fold & Bakkestad
möbeifabrik. Takið
eftir brikinni ofan á
fótagaflinum.
HIJ8GÖGIVI -
EÐA EITTHVAÐ MEIRA
Húsgögn hafa fylgt manninum í ómunatíð. Fyrst hafa þessi verk-
fœri ef svo má að orði kveða, verið mjög frumstæð og fábrotin. En
þar sem maðurinn hafði fegurðarskyn fram yfir aðrar skepnur, fór
fljótlega að bera á því, að notagildi þeirra hluta, sem hann hafði
í kringum sig var honum ekki nóg. Menn eyddu tíma og lögðu á
sig erfiði til að fá listrænt útlit á nytjahluti, enda þótt nytsemi hlut-
arins yxi að engu við slíkt. I»essi ástriða kom einungis af innri
þörf.
Húsgögn hafa á öllum timum endurspeglað hið ríkjandi listform.
A Baroktimanum voru þau t. d. mjög útflúruð og íþyngd skrauti,
sem nútímamönnum finnst smekklaust. A vorum dögum endurspegla
húsgögn Funktionalismann, sem ræður rikjum í húsagerðarlist og
húsbúnaði yfirleitt. Aherzla er lögð á hreinar línur og fleti og svo
hitt, að eiginleikar efniviðarins fái að njóta sín.
Norðurlandaþjóðirnar þykja hafa náð einna beztum árangri í
gerð nútíma húsgagna, Islenzk húsgagnagerð hefur verið fremur
aftarlega á merinni fram á síðustu ár og Iiggja til þess eðlilegar
ástæður. Henni hefur þó stórlega fleygt fram í seinni tið, en samt
vantar herzlumuninn hvað útlitið snertir, þegar Norðurlamdamenn
og þá sérstaklega Danir eru hafðir í huga. I>að ber þó að hafa í
huga að miklir erfiðieikar hafa verið á því hér að afla ýmissa harð-
viðartegunda, sem mikið eru notaðar i þessa hiuti.
Myndirnar hér á síðunni gefa nokkra hugmynd um húsgagna-
framleiðslu frænda okkar á Norðurlöndum, en flest sýnishornin eru
þó dönsk. Augljóst er, að áherzla er lögð á gott efni, einfalt form,
sem oft minnir nokkuð á nútima höggmyndalist. Þessi húsgögn eru
yfirleitt mjög létt í meðförum og hagkvæm í notkun. Þau eru gerð
með notagildið fyrir augiun en fullnægja um leið þeirri listrænu
kröfu, sem flestir vel menntaðir nútímamenn gera til umhverfisins.
Til vinstri: Stóll frá Os Möblefabrik i
en. Stóllinn er úr teak, en bak og seta úr
yfirdekktu svampgúmíi. MálmhóIIíar á
fótunum. Fyrir miðju: Danskur hæginda-
stóll frá Jörgensens Möbelfabrik, Bramm-
inge, Danmörk. Grindin er úr harðvlð cn
stóllinn er að öðru leyti bólstraður með
svampgúmmíi.
Til vinstri: Spegill, hilla með tveim skúffum og stóll frá
Gjövik-möbler i Osló. Einstaklega létt og listrænt að forrn:.
Fyrir miðju: Borðstofuskápur frá Bjásta Snickerifabrik í
Svíþjóð. Einfaldur að gerð en fallegur. Til hægri: Saumaborð
úr teak og basti frá Bjövik-möbler í Osló.
Skilveggur í stofu er byggður upp með lausum
h Ilum og fjórir skápar settir inní. I hillurnar
má raða bókum eða hverskonar listmunum.
Slíkur veggur er skemmtileg lausn og gott dæmi
um listrænan húsbúnað.