Vikan - 21.05.1959, Síða 14
Þegar Hogan rændi banka
Klukkan fjórar og hálfa mínútu yfir níu laug-
ardaginn fyrir verkalýðsdaginn árið 1955 rændi
Hogan banka. Hann var fjörutíu og tveggja ára,
kvæntur og tveggja barna faðir. Börnin hétu
John og Johan og voru tólf og þrettán ára að
aldri. Skirnarnafn frú Hogan var Joan og Hogans
var Johan, en þar sem þau kölluðu sig ætíð
mamma og pabbi varð enginn ruglingur á nafn-
giftum þeirra og barnanna, sem álitin voru gáfuð
og dugleg eftir aldri og höfðu bæði hlaupið yfir
bekk í skólanum. Hoganfjölskyldan bjó í húsinu
númer 215 við East Maple-götu, sem var brún-
leitt timburhús með hvítri rönd ■— húsin eru
reyndar tvö af sömu gerð. Númer 215 er húsið
beint á móti götuljósinu og það er húsið með
stóra trénu í garðinum, sem er annaðhvort úr
eik eða álmi — en sem sagt stærsta tréð í göt-
unni og jafnvel í öllum bænum. Það hlýtur að
vera stórt tré.
John og Joan voru ennþá í rúminu, þegar rán-
ið fór fram, af því að það var laugardagur.
Klukkan tiu minútur yfir níu fékk frú Hogan
sér tebolla eins og hún var vön. Hogan fór
snemma í vinnuna. Frú Hogan drakk teið sitt
hægt, það var mjög heitt, og las framtíð sína í
telaufunum. Það var ský og stór stjarna með
tveimur litlum blettum í botninum á bollanum, en
þá var klukkan orðin tólf mínútur yfir níu og
ránið löngu afstaðið.
Það er einkar fróðlegt að athuga, hvernig Hogan
fór að því að ræna banka. Hann hugsaði mikið
um það og gaf sér nægan tíma, en ekki ræddi
hann um það við neinn. Hann las aðeins dag-
blaðið sitt og ráðgaðist við sjálfan sig. Eftir
miklar bollaleggingar komst hann að þeirri nið-
urstöðu, að fólk hefði alltof mikið fyrir því að
ræna banka, og þess vegna kæmist það í kland-
ur. Því einfaldara, þeim mun betra, hugsaði hann
alltaf. Fólk væri of slóttugt og hefði of mikinn
viðbúnað, svo maður tali nú ekki um allan gaura-
ganginn, sem þessu var samfara. Ef maður tæki
þessu rólega, sleppti öllu brambolti, myndi banka-
rán vera tiltölulega heilbrigð áhætta -—• nema
náttúrlega ófyrirsjáanleg óheppni eða slys kæmi
til, en slíkt gat nú jafnvel komið fyrir mann
gangandi á götu eða hvar sem var. tJr því að
aðferð Hogans reyndist svona ágætlega, sann-
aði hún, að hann hafði reiknað rétt. Hann var
stundum að hugsa um að rita dálítinn pésa um
aðferð sína, þegar „hvernig á að . . .“ vitleysa var
í tízku. Hann bjó til fyrstu setninguna, sem
hljóðaði svo: „Til þess að ræna banka með góð-
um árangri, ber að sleppa öllum gauragangi."
Hogan var ekki bara afgreiðslumaður í ný-
lenduvöruverzlun Fettuccis. Hann var eiginlega
fremur verzlunarstjóri. Hogan var yfirmaður og
jafnvel réð eða rak sendisveininn, sem fór með
nýlenduvörurnar eftir skólatima. Hann pantaði
jafnvel hjá sölumönnunum jafnvel þótt Fettucci
væri líka i búðinni, t. d. að tala við einhvem við-
skiptavinanna. „Þú skalt gera það, John,“ myndi
hann segja og kinka kolli til þess, er hann var
að tala við, „John þekkir þetta allt. Hann hefur
verið hjá mér — hversu lengi hefirðu verið hjá
mér, John?“
„Sextán ár.“
„Sextán ár. Hann þekkir starfið alveg eins vel
og ég. Hann John setur jafnvel peningana í
bankann fyrir mig.“
Vissulega gerði hann það. Hvenær, sem hann
hafði tima til, fór Hogan inn í vörugeymsluna
fyrir innan, leysti af sér svuntuna, setti upp háls-
bindi, fór í jakka og gekk aftur í gegnum búðina
að peningakassanum. Þar lágu ávísanirnar og
peningarnir tilbúnir fyrir hann inni í bankabók
með teygju utan um. Síðan fór hann í næsta hús,
að gatinu hjá gjaldkeranum, rétti Cup ávísanirn-
ar og bankabókina og spjallaði einnig ofurlítið
vi j hann. Svo fékk hann bankabókina aftur, at-
hugaði innstæðudálkinn, setti teygjuna utan um
hana og hélt aftur inn í búðina og setti banka-
bókina i peningakassann, hélt áfram inn í geymsl-
una, tók af sér hálsbindið og jakkann, setti upp
Hogan gekk hratt og hljóðlega I kring-
um afgreiðsluborðið og inn til gjaldker-
ans. Haim hélt á marghleypunni í hægri
hendinni. Will Cup sneri sér við og sá
hana. Hann stirðnaði upp. Hogan setti fót-
inn undir tippið á öryggisbjöllunni og benti
Will Cup að leggjast á gólfið. W!ill gerði
það strax. Þá opnaði Hogan peningaskúff-
una og með tveimur snöggum handahreyf-
ingum tók hann alla stóru seðlana.
svuntuna og sneri svo aftur inn í búðina tilbúinn
að afgreiða. Væri engin biðröð við gatið hjá
gjaldkeranum tók þetta allt ekki nema fimm
mínútur, jafnvel þótt hann tefði dálítið og spjall-
aði við Cup.
Hogan var maður eftirtektarsamur og það kom
honum vel, er hann þurfti að fremja bankarán.
Til dæmis hafði hann tekið eftir því, að stóru
seðlarnir voru alltaf geymdir hægra megin í
skúffunni hjá gjaldkeranum og einnig hvaða
daga mest kæmi inn af peningum. Fimmtudagar
voru útborgunardagar hjá niðursuðuverksmiðj-
unni og þessvegna var meiri peninga að vænta þá
en venjulega. Stundum tók fólk út nokkurt fé á
föstudögum til þess að nota yfir helgina. En það
var sem sagt ekki svo ýkja mikill munur á
fimmtudags-, föstudags- og laugardagsmorgnum.
Þó voru laugardagar eiginlega síztir, af. þvi að
fólk fór ekki að ná sér í fé svo snemma að morgni
dags, og bankanum yrði lokað á hádegi. En hann
hugsaði sig vandlega um og komst að þeirri nið-
eftir John
urstöðu, að laugardagur fyrir langa helgi að
sumri til myndi heppilegasti dagurinn. Fólk færi
í ferðalög og frí, ættingjar kæmu í heimsóknir
og þar fram eftir götunum og bankinn yrði lok-
aður á mánudegi. Já, hann hugsaði og hugsaði og
komst að raun um, að laugardagurinn fyrir
verkalýðsdaginn væri heppilegur að því leyti, að
þá væri allt að helmingi meira í kassanum en
venjulega — það sá hann, er Cup dró skúffuna
út.
Hogan hugsaði um þetta allt árið, náttúrlega
ekki alltaf, en þegar hann hafði tíma tM. Árið
var líka mjög annasamt. Það var árið sem John
og Joan fengu hettusóttina og frú Hogan lét draga
úr sér allar tennurnar og fékk sér falskar. Það
var árið, þegar Hogan var formaður skógarhúss-
nefndar. Það var mikið og erfitt starf. Larry
Shield dó þetta sama ár — hann var bróðir frú
Hogan og var jarðarför hans gerð frá húsi Hog-
anhjónanna við East Maple-götu. Larry var pip-
arsveinn og bjó í herbergi í Pine Three húsinu og
hann lék billiard næstum á hverju kvöldi. Hann
vann í Silver-veitingahúsinu, en þar var lokað
klukkan níu og þá fór Larry að leika billiard og
lék venjulega í klukkutíma. Það var þess vegna,
sem allir urðu hissa, að hann lét eftir sig tólf
hundruð dollara, er jarðafararkostnaðurinn hafði
verið greiddur. Og það þótti jafnvel enn furðu-
legra, að hann arfleiddi frú Hogan að þessum
peningum og öðrum eignum, nema tvíhleypuna
sína ánafnaði hann John Hogan yngra. Hogan
þótti vænt um það, enda þótt hann væri enginn
veiðimaður sjálfur. Hann setti byssuna innst í
skápinn í baðherberginu, þar sem hann geymdi
ýmsa muni slna, til þess að láta unga John ekki
ná í hana. Hann vildi ekki láta krakkana vera
að fikta við byssuna og hann keypti aldrei nein
skot. Nokkurn hluta af þessum tólf hundruð doll-
urum notaði frú Hogan til að borga með fölskú
tennurnar. Einnig keypti hún reiðhjól handa
John og brúðuvagn og brúðu, sem bæði talaði og
gekk ,handa Joan. Með brúðunni fylgdu þrír kjól-
ar, dálítil ferðataska og snyrtiáhöld. Hogan hélt,
að þetta myndi spilla krökkunum, en svo reynd-
ist ekki. Þau fengu alveg jafn góðar einkunnir í
skólanum og John fékk sér vinnu við blaðaút-
burð. Já, þetta var merkilegt ár. Bæði John og
Joan langaði til að taka þátt í samkeppni W. R.
Hearst, „Landið mitt“, en Hogan fannst það vera
heldur mikið fyrir þau. Að lokum féllst hann þó
á það, af því að þau lofuðu að draga það til
sumarsins.
Enginn varð var við neina breytingu í fari
Hogans þetta ár. Reyndar var hann að hugsa um
að ræna bankann, en aðeins á kvöldin, þegar
ekki var fundur í skógarhússnefnd eða einhver
almennileg kvikmynd, svo að hugmyndin náði
engum heljartökum á honum og fólk tók ekki
eftir neinum breytingum.
Hann hafði þrauthugsað öll smáatriði, og þess
vegna var hann hvorki óundirbúinn né óstyrkur
á taugum. Sumarið var mjög heitt og heitu dag-
arnir fleiri en venjulega. Á laugardag hafði ver-
ið óskaplegur hiti i tvær vikur stanzlaust og fólk
var almennt orðið slæpt og þreytt og flýtti sér
út úr bænum, enda þótt hitinn væri alveg eins
mikill uppi í sveit. Fólk hugsaði ekki út í það.
Börnin voru öll í uppnámi vegna þess, að brátt
yrðu birt úrslitin í ritgerðasamkeppninni og fyrstu
verðlaun voru tveggja daga ferðalag til Washing-
ton, allt frítt — hótelherbergi, þrjár máltíðir á
dag og akstur um borgina í glæsilegri bifreið —
ekki aðeins fyrir þann sem sigraði heldur einnig
fyrir ferðafélaga; svo yrði farið í Hvíta húsið —
forsetanum heilsað — og allt hvað eina. Hogan
fannst þau gera sér of miklar vonir og vakti
athygli á því.
„Þið verðið að vera undir það búin að tapa,“
sagði hann við börn sín. „Líklega hafa þúsundir
barna einnig tekið þátt í þessu. Ef þið gerið ykk-
ur of miklar vonir, verða vonbrigðin meiri en
ella. Ég vil ekki sjá neinn raunasvip á andlitum
ykkar, er samkeppninni er lokið."
Steinbeck
„Ég var á móti þessu frá upphafi," sagði hann
við frú Hogan. Það var sama morguninn og hún
sá Washington minnismerkið í tebollanum sínum,
en hún sagði engum frá því nema Ruth Tyler,
konu Bob Tyler. Ruthie kom til hennar með spilin
sín og fór að spá í þau í eldhúsinu hjá frú Hogan,
en hún fann enga ferð. Hún sagði frú Hogan
reyndar, að spilin hefðu nú ekki allaf rétt fyrir
sér. Hún las úr spilunum, að frú Winkle ætlaði 1
ferðalag til Evrópu og einni viku síðar festist
fiskbein í hálsinum á frú Winkle og hún kafnaði.
Ruthie furðaði sig á því, hvort eitthveiít sam-
band gæti verið á milli fiskbeinsins og sjóferðar-
innar til Evrópu. „Maður verður að túlka þau
rétt.“ Ruthie sagði einnig, að hún sæi peninga
streyma til Hoganfjölskyldunnar.
„Æ, ég er nú búin að fá þá frá vesalings
Larry,“ sagði frú Hogan mæðulega.
„Ég hlýt að hafa ruglað framtíðarspilunum
saman við fortiðarspilin," sagði Ruthie. „Maður
verður að túlka þau rétt.“
Laugardagurinn rann upp með þrumuveðri.
Fyrstu veðurfréttir í útvarpinu um morguninn
hljóðuð svo: „Áframhaldandi hiti og rakt loft,
smáskúrir á sunnudagskvöld og mánudag."
Frú Hogan sagði: „Ég er svo aldeilis hissa!
Kominn verkalýðsdagur."
„Já, við vorum heppinn að hafa ekki gert
neinar áætlanir," sagði Hogan, lauk við eggið sitt
og þerraði diskinn sinn með brauðsneiðinni, sem
hann var að borða.
„Setti ég kaffi á listann ?“ sagði frú Hogan.
Hann tók miðann upp úr vasa sínum og leit á
hann. „Jú, þú gerðir það.“
„Einhvern veginn datt mér í hug, að ég hefði
gleymt því, sagði frú Hogan. „Við Ruth ætlum
á kvenfélagsfund síðdegis. Hann verður hjá frú
Alfred Drake. Þú veitzt, að þau eru nýflutt í
bæinn. Ég hlakka svo mikið til að sjá húsgögnin
þeirra."
„Þau verzla við okkur,“ sagði Hogan. „Þau
opnuðu reikning í síðustu viku. Eru mjólkur-
fiöskurnar tilbúnar ? “
„Þær eru frammi í gangi.“
Sakamálasaga
14
VIKAN