Vikan - 21.05.1959, Síða 15
Hogan leit á úrið rétt áður en hann tók flösk-
urnar upp og sá, að klukkuna vantaði fimm mín-
útur í átta. Er hann var í þann veginn að fara
niður stigann, sneri hann sér við og leit aftur á
frú Hogan í gegnum opnar dyrnar.
„Vantar þig eitthvað, pabbi?“ sagði hún.
„Nei,“ sagði hann. „Nei,“ og hann gekk niður
tröppurnar.
Hann fór niður á hornið, hélt til hægri inn
Spooner-götuna, sem liggur að aðalgötunni í bæn-
um, en verzlun Fettucci er beint á móti Spooner-
götu og bankinn er hinum meginn við næsta horn,
en dálítill stígur er á milli búðarinnar og bank-
ans. Hogan tók upp lyklana sína og opnaði dyrn-
a. Hann gekk í gegnum búðina, opnaði dyrnar út
að stígnum og gægðist út. Köttur reyndi að troða
sér inn, en Hogan ýtti við honum með fætinum
og lokaði dyrunum. Hann fór úr jakkanum og
setti upp stóru svuntuna og hnýtti böndin í slaufu
fyrir aftan bak. í>á náði hann i kúst, sem var
fyrir aftan búðarborðið og sópaði aftan við það
og tók upp ruslið og um leið og hann gekk í gegn-
um búðina, opnaði hann dyrnar að stígnum. Kött-
urinn var farinn. Hann tæmdi nú ruslið úr sorp-
skúffunni í sorptunnuna og hristi hana lítilshátt-
ar til þess að losa kálblað, sem festst hafði við
hana. Síðan fór hann aftur inn í búðina og tók að
fást við pöntunarlistann. Frú Clonney kom inn
og bað um hálft kíló af fleski. Hún sagði, að
heitt væri í dag og tók Hogan undir það.
„Sumrin eru stöðugt að verða heitari og heit-
ari,“ sagði hann.
„Það er alveg rétt," sagði frú Clonney. „Hvern-
ig líður frúnni?"
„Alveg prýðilega," sagði Hogan. „Hún er að
fara á kvenfélagsfund."
„Eg líka, og ég hlakka svo mikið til að sjá
húsgögnin þeirra," sagði frú Clonney og fór út.
Hogan setti fimm punda fleskstykki á kjöt-
skerann og skar það niður. Hann lét sneiðarnar
á vaxpappír og bjó um þær í ísskápnum. Er
klukkuna vantaði tíu mínútur í níu teygði Hogan
sig upp í hillu. Hann ýtti kassa með „spaghetti"
til hliðar og tók niður annan með kornmat og
tæmdi hann í salernisskálina. Síðan skar hann út
Mikki Mús grímuna aftan á honum, reif pappann
í tætlur og skolaði honum niður. ííann fór inn í
búðina og fékk sér snærispotta og batt endan í
götin báðum megin á grímunni og þá leit hann
á úrið sitt — það var af Hamilton gerð með
U
svörtum visum. Klukkuna vantaði tvær mínútur
í níu.
Hann var dálítið taugaóstyrkur næstu fjórar
mínúturnar, en það leið hjá. Þegar klukkuna
vantaði eina mínútu í níu tók hann kústinn og
fór út til þess að sópa gangstéttina. Hann flýtti
sér við verk sitt — en var reyndar ennþá aS
sópa, er Warner opnaði dyrnar að bankanum.
Hann bauð Warner góðan daginn og nokkrum
sekúndum síðar kom starfslið bankans, þau voru
fjögur, út úr kaffistofunni. Hogan sá þau hinum
megin við götuna og veifaði til þeirra og þau
veifuðu aftur. Hann lauk við gangstéttina og fór
inn i búðina. Hann lagði úrið sitt á peningakass-
ann. Hann andvarpaði þunglega, þó var eins og
hann væri fremur að draga andann djúpt. Hann
vissi, að Warner væri nú búinn að opna peninga-
skápinn og væri að bera kassana með seðlunum i
skúffuna hjá gjaldkeranum. Hogan leit á úrið i
peningakassanum. Kentworthy nam staðar fyrir
framan dyrnar á búðinni, hristi höfuðið ofurlítið
og hélt áfram. Hogan andaði hægt frá sér. Hann
fór með vinstri höndina aftur fyrir bak og leysti
slaufuna á svuntunni sinni og þá fór stóri vísir-
inn á úrinu hans að nálgast strikið við fjórar
mínútur og loks var komið að því.
Hogan opnaði skúffuna með viðskiptabókunum
og tók upp marghleypuna, sem búðin átti. Það
va silfurlit Iver Johnson byssa. Hann gekk hratt
í gegnum búðina, tók af sér svuntuna, fór í jakk-
ann og lét marghleypuna í annan vasann. Mikki
Mús grímuna setti hann inn á sig, svo að hún
sást ekki. Hann opnaði dyrnar út að stígnum, leit
vandlega í kringum sig og gekk hratt út. Hann
skildi dyrnar eftir hálfopnar. Tuttugu metrar eru
á milli dyranna og aðalgötunnar, þar nam hann
staðar og leit í kringum sig og þá sneri hann
höfðinu að götunni, meðan hann gekk fram hjá
glugga bankans. Við bankadyrnar tók hann fram
grímuna og setti hana upp. Warner var einmitt
að fara inn í skrifstofu sína og sneri baki að
dyrunum. Það sást aðeins á höfuðið á Cup í
gegnum rimlana á gjaldkeraborðinu.
Hogan gekk hratt og hljóðlega í kringum af-
greiðsluborðið og inn í klefa gjcflkerans. Hann
hélt á marghleypunni í hægri hendinni. Will Cup
sneri sér við og sá hana. Hann stirðnaði upp.
Hogan setti fótinn undir tippið á öryggisbjöll-
unni og benti Will Cup að leggjast á gólfið. Will
gerði það strax. Þá opnaði Hogan peningaskúff-
una og með tveimur snöggum handahreyfingum
tók hann alla stóru seðlana. Með bendingu skip-
aði hann Will, sem lá á gólfinu, að snúa sér áð
veggnum og gerði Will það. Síðan gekk Hogan
aftur á bak kringum borðið. Við dyrnar á bank-
anum tók hann niður grímuna og er hann gekk
fram hjá glugganum, sneri hann höfðinu að göt-
unni til þess að ekki sæi í andlit honum. Hann
fór inn stíginn, gekk hratt að dyrunum og gekk
inn. Köttui'inn hafði komist inn, og góndi á hann,
þar sem hann sat á hrúgu af niðursuðudósum.
Hogan fór nú fram á salernið, reif grímuna og
skolaði henni niður. Hann fór úr jakkanum og
setti upp svuntuna. Hann gægðist inn í búðina, en
gekk síðan að peningakassanum. Marghleypan fór
aftur á sinn stað. Hann stimplaði engin sala> drð
fram efstu skúffuna, lyfti upp ýmsum skjölum,
sem var voru, raðaði hinu stolna fé þar undir,
setti skjölin ofan á og lokaði síðan skúffunni og
kassanum. Þá leit hann loksins á úrið sitt og sá,
að klukkan var sjö og hálfa mínútu yflr níu.
Hann var að reyna að koma kettinum út úr
vörugeymslunni, er hávaði barst út úr bankanum.
Hann tók kústinn og fór út á gangstéttina. Hann
heyrði alla söguna og lét í ljós álit sitt, er hann
var beðinn um. Hann sagðist halda, að þjófurinn
slyppi varla — hvert ætti hann svo sem að fara?
Og þó — frídagar færu í hönd —
Það gekk mikið á þennan dag. Fettucci var
hreykinn eins og þetta hefði verið hans eigin
banki. Lögreglubifreiðar þutu fram og aftur um
bæinn. Hrundruð ferðalanga urðu að stanza við
umferðatálmanir, sem settar höfðu verið upp
allt í kringum bæinn og leitað var i bifreiðum
hjá nokkrum skuggalegum náungum.
Frú Hogan hafði heyrt um atburðinn í síman-
um. Hún fór í betri fötin fyrr en venjulega og
kom við í búðinni á leið sinni á kvenfélagsfund-
inn. Hún vonaði, að Hogan hefði heyrt eitthva3
nýtt, en ekki reyndist það svo. „Eg skil ekki,
hvernig náunginn ætti að geta sloppið," sagffi
hann.
Frú Hogan var svo æst, að hún gleymdi þeim
féttum, sem hún sjálf hafði að færa. Hún mundi
eftir þeim, er hún var komin til frú Drake, en þá
bað hún um leyfi að hringja til búðarinnar og var
það fúslega veitt. „Ég gleymdi að segja þér, a3
John fékk viðurkenningu."
„Hvað segirðu?"
„I samkeppninni „Landið mitt."
„Hvað vann hann?“
„Hann fékk viðurkenningu."
„Ágætt. Prýðilegt ■—- nokkuð fleira?"
„Jú, nafnið hans með mynd verður birt í ölln
landinu. Líka í útvarpinu. Jafnvel i sjónvarpinu.
Það hefur verið beðið um mynd af honum."
„Ágætt," sagði Hogan. „Eg vona, að þetta
spilli honum ekki.“ Hann lagði tólið niður og
Framhald á bls. 18.
m'sTiNH
Hann fór niður á hornið og hélt til hægri
VIKAN
15